Fréttablaðið - 16.11.2019, Blaðsíða 70
1 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R38 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sumarrós (Rósa)
Garðarsdóttir,
prestsfrú frá Akureyri,
lést mánudaginn 11. nóvember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 18. nóvember kl. 13.30.
Jóhanna Erla, Birgir Snæbjörn og fjölskyldur.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Sigurður Bjarni Jónsson
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, sonur og tengdasonur,
Gunnar Tryggvi Reynisson
Andrésbrunni 2,
113 Reykjavík,
lést á Landspítala við Hringbraut
þann 6. nóvember. Útförin verður gerð frá
Guðríðarkirkju mánudaginn 25. nóvember kl. 13.00.
Ingibjörg S. Frostadóttir
Björg Valdís Gunnarsdóttir
Ísak Logi Gunnarsson
Tristan Freyr Gunnarsson
Björg R. Thomassen Reynir Ásgeirsson
Björg V. Hansdóttir Frosti Gunnarsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Margrét Guðmundsdóttir
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi 6. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Aðstandendur þakka öllum
þeim sem komið hafa að umönnun og aðhlynningu
í veikindum hennar.
Ingibjörg White Duncan Wills
Guðmundur Ómar Þráinsson Bergþóra Haraldsdóttir
Hulda Þyri Þráinsdóttir Helgi Kristinn Hannesson
Margrét Þráinsdóttir Héðinn Kjartansson
Lúðvík Þráinsson Berglind Hafþórsdóttir Byrd
Jón Guðmundsson
barnabörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Gréta Jónsdóttir
Reynimel 50, Reykjavík,
lést sunnudaginn 3. nóvember
á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
mánudaginn 18. nóvember kl. 13.00.
Sigurður Erling Baldursson
Þuríður Ellisif Baldursdóttir Jóhann S. Erlendsson
Ingi Þór Vöggsson
Baldur og Freyr Jónssynir
Baldur Erling, Margeir Jón, María Sif og Hulda Hrönn
Sigurðarbörn,
Arnar Páll og Jóhann Baldur Jóhannssynir
og langömmubörn.
Faðir okkar,
Gunnar Gunnarsson
Höfða, Akranesi,
lést sunnudaginn 3. nóvember.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Gunnar H. Gunnarsson
Ragnar Gunnarsson
Listamaðurinn
Nonni Ragnarsson
verður jarðsunginn
frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 19. nóvember kl. 16.00.
Aðstandendur og vinir NONNA.
Þetta er skemmtilegur titill og mikill heiður að vera valinn,“ segir Viktor Weiss-happel Vilhjálmsson, graf-ískur hönnuður, sem kosinn var bjartasta von Evrópu
á evrópskri hönnunarhátíð, ADC*E, í
Barcelona um fyrri helgi. Hann hlaut þá
upphefð fyrir verkefnið Útmeð’ða sem
var unnið fyrir Rauða krossinn.
Útmeð’ða snerist um að velja orð yfir
ástand eða erfiðar tilfinningar sem fólk
er gjarnt á að fela, setja þau á peysur og
bera með stolti. Alls voru ellefu útgáfur af
bótum, með hugtökum á borð við kvíða,
reiði og þunglyndi, búnar til og hægt var
að raða þeim á flíkur eftir vild. „Þessar
bætur vöktu athygli. Geðhjálp var að
selja þær á sínum tíma og Húrra Reykja-
vík tók þær inn í búðina sína. Þær seldust
upp,“ segir Viktor. Hann telur vinsældir
bótanna og jafnvel viðurkenninguna á
hönnunarhátíðinni mega að einhverju
leyti rekja til taktsins í samfélaginu.
„Fólk er farið að opna meira á tilfinn-
ingar sínar en áður og bæturnar áttu að
ýta undir það.“ Þess má geta að verkefnið
Útmeð’ða fékk líka silfur á hátíðinni í
Barcelona í f lokknum Graphic Design
undir Graphic Communication.
Viktor útskrifaðist úr grafískri hönn-
un við Listaháskólann árið 2015. „Það
var mjög góð undirstaða,“ segir hann
og heldur áfram: „Eftir það vann ég hjá
Döðlum í ár og flutti svo til Stokkhólms
og vann hjá Essen International. Ég hef
starfað hjá Jónsson & Lemacks frá 2017
en er nú að opna nýja hönnunarstofu
með Albert Muñoz. Hún heitir Ulysses.
Við ætlum að sérhæfa okkur í mörkun
og skapa grípandi ásýnd fyrir okkar
viðskiptavini. Við deilum þaki með
Aton.JL á Laugavegi 26, en með okkar
eigin stofu og mörkunarverkefni.“ Hvað
varðar næstu skref kveðst hann ætla að
hlúa að fyrirtækinu. „Það er það sem er
í hausnum á mér þessa dagana,“ segir
hann. „Ég er mjög spenntur fyrir fram-
haldinu.“
Hann er ekki óvanur því að fá viður-
kenningar. Hefur hlotið verðlaun hjá
ADC*E áður og líka frá Félagi íslenskra
teiknara. Spurður hvort hann ætli ekki
að búa til bót með áletruninni Bjartasta
vonin og festa á peysuna sína svarar
Viktor í spaugi: „Það er ágætis hugmynd.“
gun@frettabladid.is
Viktor bjartasta vonin
Viktor Weisshappel Vilhjálmsson var valinn bjartasta von Evrópu á hönnunarhátíð-
inni Art Directors Club of Europe, fyrir verkefnið Útmeð’ða sem hann vann fyrir RKÍ.
Viktor er barnabarnabarn píanóleikarans Fritz Weisshappel sem hingað fluttist 1927. Listrænn eins og langafinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1
6
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:3
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
3
F
-F
7
F
4
2
4
3
F
-F
6
B
8
2
4
3
F
-F
5
7
C
2
4
3
F
-F
4
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
9
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K