Fréttablaðið - 16.11.2019, Blaðsíða 35
D-vítamín, eða sólarvítamín-ið eins og það er oft kallað, gegnir gríðarlega víðtæku
hlutverki í líkamsstarfsemi okkar
og hafa fjölmargar rannsóknir
gefið okkur vísbendingar um
hversu alvarlegar af leiðingar
D-vítamínskortur hefur í för
með sér. Skortur D-vítamíns
þegar kemur á fullorðinsár getur
valdið beinþynningu, beinmeyru,
vöðvarýrnun og tannskemmdum.
D-vítamínskortur
á norðlægum slóðum
Sérfræðingar við Friedman
School of Nutrition Science and
Policy hafa birt rannsóknir sem
gerðar voru á skólabörnum í
Boston og sýndu að allt að 90%
þeirra skorti D-vítamín. Einnig
kom þar fram að þeir sem eru í
of þyngd, með dökka húð og/eða
lifa á norðlægum slóðum skorti
það oftar en aðrir. Þessar niður-
stöður ættum við á Íslandi ekki að
hundsa þar sem hér vantar veru-
lega upp á að sólin skíni nægilega
mikið á okkur og einnig eru allt
of mörg börn í of þyngd. Við þetta
má svo bæta að landskönnun á
mataræði 6 ára barna á Íslandi frá
2011-2012 sýndi að einungis um
25% barnanna fengu ráðlagðan
dagskammt eða meira af D-víta-
míni og var neysla fjórðungs
barna undir lágmarksþörf (2,5
µg/dag). Vonandi eru þessar tölur
orðnar betri í dag en það er full
þörf á stöðugri umfjöllun þar sem
þetta vítamín er okkur svo lífs-
nauðsynlegt.
Byggjum upp og viðhöldum
sterkum beinum
Fyrstu 30 ár
ævinnar byggj-
um við upp
beinin og því
afar mikilvægt
að við fáum allt-
af þau næringar-
og bætiefni sem
þarf til að gera
beinin sterk.
D-vítamín þurfum
við alltaf að taka
inn í bætiefnaformi, alla
ævi, en það sér um að
líkaminn taki upp
kalkið úr næringunni.
K2-vítamín er ekki síður
mikilvægt þar sem það
sér um að binda kalkið í
beinunum.
Hrönn Hjálm-
arsdóttir,
heilsumark-
þjálfi hjá
Artasan
Nýtt
munn-
sprey er
komið á
markað frá
Better
You,
sérstak-
lega hann-
að í þeim
tilgangi að
styðja við
beinheilsu.
Allt að þrefaldur
dagskammtur
Í september voru svo birtar niður-
stöður klínískra rannsókna (við
sama skóla) þar sem skoðað var
hvað það þyrfti að taka inn mikið
magn daglega af D-vítamíni til að
hækka gildin hjá þeim börnum
sem mældust með skort. Í ljós kom
að stærstur hluti barnanna þurfti
að taka 2000 a.e. (alþjóðlegar
einingar) af D-vítamíni í 6 mánuði
til að ná ásættanlegum gildum en
hámarksskammtur fyrir 9 ára og
eldri er 4000 a.e. á dag.
Þetta segir okkur að ef um
D-vítamínskort er að ræða, dugir
ekki að taka bara ráðlagðan dag-
skammt, enda er hann hugsaður
til að viðhalda þeim gildum sem
fyrir eru, ekki til að hækka þau.
Þessar niðurstöður eiga ekki síður
við um fullorðna einstaklinga
og þá í stærri skömmtum en hjá
börnum.
Hvar fáum við D-vítamín?
Þetta vítamín er ekki eins og
önnur vítamín sem við getum
fengið úr fjölbreyttri fæðu en
aðeins um 10% af D-vítamíni
koma úr matnum. Sólin er helsta
og besta uppspretta D-vítamíns en
það verður til í líkama okkar vegna
áhrifa UVB-geisla sólarinnar á
húðina. Þetta gerist eingöngu
þegar hún er mjög hátt á lofti og ef
hún skín á stóran hluta líkamans.
Því er erfitt fyrir fólk á norðlægum
slóðum að tryggja sér nægilegt
magn nema kannski rétt yfir
hásumarið. Landlæknisembættið
hvetur fólk til að taka D-vítamín
sérstaklega í formi bætiefna því
eins og áður kom fram er það
okkur lífsins ómögulegt að fá það
úr fæðunni eða frá sólinni nema í
takmörkuðum mæli.
K-vítamín gegn
beinþynningu
Beinþynning er sjúkdómur sem
ber að taka alvarlega en til 30
ára aldurs erum við að byggja
upp beinin og það skiptir miklu
máli að beinþéttni sé góð þegar
komið er á þennan aldur. Það
eru nokkur efni sem við þurfum
nauðsynlega að fá nóg af til að
fyrirbyggja beinþynningu en
þar eru einna mikilvægust kalk,
magnesíum og D- og K-vítamín. D-
vítamín þurfum við alltaf að taka
inn í bætiefnaformi,
alla ævi en það sér
um að líkaminn
taki upp kalkið
úr næringunni.
K2-vítamín er
ekki síður mikil-
vægt þar sem það
sér um að binda
kalkið í beinunum. Nú er talið að
í mataræði okkar Vesturlandabúa
sé sjaldnast nægilega mikið magn
af þessu vítamíni til að það nái að
sinna sínu hlutverki og því þeim
mun mikilvægara fyrir marga að
fá það í bætiefnaformi.
D og K2 fyrir beinin
Better You Dlux D+K2 munn-
spreyið inniheldur 3000 a.e. af
D-vítamíni ásamt K2 og er það sér-
staklega hannað í þeim tilgangi að
styðja við beinheilsu. Munn sprey
er góður kostur þar sem melt-
ingin getur verið undir álagi vegna
ýmiss konar veikinda og með því
að úða munnspreyjum frá Better
You út í kinn förum við fram hjá
meltingarkerfinu og tryggjum
hraða og mikla upptöku.
D+ K2 fæst í apótekum, heilsu-
húsum og heilsuhillum verslana.
Það hentar grænmetisætum og
sykursjúkum, sem og þeim sem
eru á glútenlausu fæði.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
2mánaða skammtur
PRÓGASTRÓ GULL innheldur gall- og sýruþolna mjólkursýrugerla
með asídófílus sem margfaldar sig í þörmunum.
Öflugir gerlar bæta þarmaflóruna og eru góðir gegn:
• Meltingarvandamálum
• Magaónotum
• Uppþembu
• Erfiðum hægðum
• Sveppasýkingum
• Húðvandamálum
• Andlegri vanlíðan
1 hylki á dag – 2 mánaða skammtur
Án: mjólkurafurða, glúteins, gers, soya og rotvarnarefna
Öflugur asídófílus
Progastro Gull 5x10 NEW copy.pdf 1 18/12/2017 12:48
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 6 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9
1
6
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:3
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
4
0
-2
4
6
4
2
4
4
0
-2
3
2
8
2
4
4
0
-2
1
E
C
2
4
4
0
-2
0
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
9
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K