Fréttablaðið - 16.11.2019, Side 35

Fréttablaðið - 16.11.2019, Side 35
D-vítamín, eða sólarvítamín-ið eins og það er oft kallað, gegnir gríðarlega víðtæku hlutverki í líkamsstarfsemi okkar og hafa fjölmargar rannsóknir gefið okkur vísbendingar um hversu alvarlegar af leiðingar D-vítamínskortur hefur í för með sér. Skortur D-vítamíns þegar kemur á fullorðinsár getur valdið beinþynningu, beinmeyru, vöðvarýrnun og tannskemmdum. D-vítamínskortur á norðlægum slóðum Sérfræðingar við Friedman School of Nutrition Science and Policy hafa birt rannsóknir sem gerðar voru á skólabörnum í Boston og sýndu að allt að 90% þeirra skorti D-vítamín. Einnig kom þar fram að þeir sem eru í of þyngd, með dökka húð og/eða lifa á norðlægum slóðum skorti það oftar en aðrir. Þessar niður- stöður ættum við á Íslandi ekki að hundsa þar sem hér vantar veru- lega upp á að sólin skíni nægilega mikið á okkur og einnig eru allt of mörg börn í of þyngd. Við þetta má svo bæta að landskönnun á mataræði 6 ára barna á Íslandi frá 2011-2012 sýndi að einungis um 25% barnanna fengu ráðlagðan dagskammt eða meira af D-víta- míni og var neysla fjórðungs barna undir lágmarksþörf (2,5 µg/dag). Vonandi eru þessar tölur orðnar betri í dag en það er full þörf á stöðugri umfjöllun þar sem þetta vítamín er okkur svo lífs- nauðsynlegt. Byggjum upp og viðhöldum sterkum beinum Fyrstu 30 ár ævinnar byggj- um við upp beinin og því afar mikilvægt að við fáum allt- af þau næringar- og bætiefni sem þarf til að gera beinin sterk. D-vítamín þurfum við alltaf að taka inn í bætiefnaformi, alla ævi, en það sér um að líkaminn taki upp kalkið úr næringunni. K2-vítamín er ekki síður mikilvægt þar sem það sér um að binda kalkið í beinunum. Hrönn Hjálm- arsdóttir, heilsumark- þjálfi hjá Artasan Nýtt munn- sprey er komið á markað frá Better You, sérstak- lega hann- að í þeim tilgangi að styðja við beinheilsu. Allt að þrefaldur dagskammtur Í september voru svo birtar niður- stöður klínískra rannsókna (við sama skóla) þar sem skoðað var hvað það þyrfti að taka inn mikið magn daglega af D-vítamíni til að hækka gildin hjá þeim börnum sem mældust með skort. Í ljós kom að stærstur hluti barnanna þurfti að taka 2000 a.e. (alþjóðlegar einingar) af D-vítamíni í 6 mánuði til að ná ásættanlegum gildum en hámarksskammtur fyrir 9 ára og eldri er 4000 a.e. á dag. Þetta segir okkur að ef um D-vítamínskort er að ræða, dugir ekki að taka bara ráðlagðan dag- skammt, enda er hann hugsaður til að viðhalda þeim gildum sem fyrir eru, ekki til að hækka þau. Þessar niðurstöður eiga ekki síður við um fullorðna einstaklinga og þá í stærri skömmtum en hjá börnum. Hvar fáum við D-vítamín? Þetta vítamín er ekki eins og önnur vítamín sem við getum fengið úr fjölbreyttri fæðu en aðeins um 10% af D-vítamíni koma úr matnum. Sólin er helsta og besta uppspretta D-vítamíns en það verður til í líkama okkar vegna áhrifa UVB-geisla sólarinnar á húðina. Þetta gerist eingöngu þegar hún er mjög hátt á lofti og ef hún skín á stóran hluta líkamans. Því er erfitt fyrir fólk á norðlægum slóðum að tryggja sér nægilegt magn nema kannski rétt yfir hásumarið. Landlæknisembættið hvetur fólk til að taka D-vítamín sérstaklega í formi bætiefna því eins og áður kom fram er það okkur lífsins ómögulegt að fá það úr fæðunni eða frá sólinni nema í takmörkuðum mæli. K-vítamín gegn beinþynningu Beinþynning er sjúkdómur sem ber að taka alvarlega en til 30 ára aldurs erum við að byggja upp beinin og það skiptir miklu máli að beinþéttni sé góð þegar komið er á þennan aldur. Það eru nokkur efni sem við þurfum nauðsynlega að fá nóg af til að fyrirbyggja beinþynningu en þar eru einna mikilvægust kalk, magnesíum og D- og K-vítamín. D- vítamín þurfum við alltaf að taka inn í bætiefnaformi, alla ævi en það sér um að líkaminn taki upp kalkið úr næringunni. K2-vítamín er ekki síður mikil- vægt þar sem það sér um að binda kalkið í beinunum. Nú er talið að í mataræði okkar Vesturlandabúa sé sjaldnast nægilega mikið magn af þessu vítamíni til að það nái að sinna sínu hlutverki og því þeim mun mikilvægara fyrir marga að fá það í bætiefnaformi. D og K2 fyrir beinin Better You Dlux D+K2 munn- spreyið inniheldur 3000 a.e. af D-vítamíni ásamt K2 og er það sér- staklega hannað í þeim tilgangi að styðja við beinheilsu. Munn sprey er góður kostur þar sem melt- ingin getur verið undir álagi vegna ýmiss konar veikinda og með því að úða munnspreyjum frá Better You út í kinn förum við fram hjá meltingarkerfinu og tryggjum hraða og mikla upptöku. D+ K2 fæst í apótekum, heilsu- húsum og heilsuhillum verslana. Það hentar grænmetisætum og sykursjúkum, sem og þeim sem eru á glútenlausu fæði. Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. 2mánaða skammtur PRÓGASTRÓ GULL innheldur gall- og sýruþolna mjólkursýrugerla með asídófílus sem margfaldar sig í þörmunum. Öflugir gerlar bæta þarmaflóruna og eru góðir gegn: • Meltingarvandamálum • Magaónotum • Uppþembu • Erfiðum hægðum • Sveppasýkingum • Húðvandamálum • Andlegri vanlíðan 1 hylki á dag – 2 mánaða skammtur Án: mjólkurafurða, glúteins, gers, soya og rotvarnarefna Öflugur asídófílus Progastro Gull 5x10 NEW copy.pdf 1 18/12/2017 12:48 FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 6 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 1 6 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :3 9 F B 0 9 6 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 4 0 -2 4 6 4 2 4 4 0 -2 3 2 8 2 4 4 0 -2 1 E C 2 4 4 0 -2 0 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 9 6 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.