Fréttablaðið - 16.11.2019, Side 61

Fréttablaðið - 16.11.2019, Side 61
Einn af hverjum þremur Íslend-ingum þjáist af svefnleysi og einn af hverjum sjö þjáist af langvarandi svefnleysi. Margar ástæður geta legið þar að baki eins og til dæmis álag, áhyggjur, verkir, barnauppeldi, vaktavinna eða sjúkdómar. Skammdegið getur einnig haft áhrif. „Margir eiga erfitt með svefn í skammdeginu, bæði vegna mikils álags í atvinnu- lífi og skólum á þessum árstíma og vegna breytinga á birtustigi sem geta ruglað svefninn,“ segir Sandra Mjöll Jónsdóttir, doktor í líf- og læknavísindum og vöru- stjóri hjá Florealis, en samkvæmt nýlegri rannsókn eru svefntrufl- anir algengar meðal þeirra sem upplifa skammdegisþunglyndi*. „Svefntruflanir hafa strax áhrif á líðan okkar og frammistöðu. Fólk finnur fyrir þreytu yfir daginn, verri einbeitingu, eirðarleysi og er ekki eins vel í stakk búið til að takast á við dagleg verkefni. Langvarandi svefnskortur hefur sérstaklega slæm áhrif á heilsuna og eykur líkur á depurð, þung- lyndi og kvíða. Það kemur alltaf að skuldadögum fyrr eða síðar og því mikilvægt að huga vel að svefn- inum og grípa fljótt inn í ef hann fer úr skorðum,“ segir Sandra. Eina lyfið án lyfseðils við svefntruflunum og kvíða Sefitude frá Florealis er eina lyfið á Íslandi við svefntruflunum og vægum kvíða sem fæst án lyfseðils í apótekum. Sefitude er notað til að draga úr vægum kvíða, auðvelda svefn og bæta svefn- gæði. Lyfið inniheldur útdrátt úr garðabrúðurót (Valeriana) en róandi áhrif jurtarinnar hafa lengi verið viðurkennd og staðfest í klínískum samanburðarrann- sóknum. „Sefitude er tekið inn að kvöldi til að hjálpa viðkomandi að róast og sofna. Það getur dregið úr því að fólk vakni oft á nóttunni og stuðlað að samfelldum svefni. Áhrif Sefitude aukast með notkun í nokkrar vikur og það er hvorki sljóvgandi né ávanabindandi. Sefitude er mikilvægur valmögu- leiki, má nota allt frá 12 ára aldri og er mjög aðgengilegt í apótekum landsins,“ bætir Sandra við. Gagnlegar upplýsingar Sefitude fæst án lyfseðils í öllum apótekum. Notkun við svefn- truflunum: 1 tafla ½-1 klst. fyrir svefn fyrir fullorðna og ungmenni eldri en 12 ára. Notkun við vægum kvíða: 1 tafla 1-3 sinnum á dag fyrir fullorðna og 1 tafla 1-2 á dag fyrir ungmenni 12-18 ára. Ekki ráðlagt börnum yngri en 12 ára, þunguðum konum eða konum með barn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgi- seðli fyrir notkun. Leitið læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkun. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is *Sandman, N. (2016). J. Sleep. Res.,25, 612-619. DOI: 10.1111/ jsr.12416 Sandra Mjöll Jónsdóttir, doktor í líf- og læknavísindum og vörustjóri hjá Florealis. Mikilvægt að meðhöndla kvíða og svefntruflanir Sefitude frá Florealis er eina viðurkennda lyfið við svefn- truflunum og vægum kvíða sem fæst án lyfseðils á Íslandi. Notkun við svefntruflunum: 1 tafla ½-1 klst fyrir svefn fyrir fullorðna og ungmenni eldri en 12 ára. Notkun við vægum kvíða: 1 tafla 1-3 sinnum á dag fyrir fullorðna og 1 tafla 1-2 á dag fyrir ungmenni 12-18 ára. Ekki ráðlagt börnum yngri en 12 ára, þunguðum konum eða konum með barn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkun. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Er erfitt að sofna? Sefitude er notað til að draga úr kvíða, bæta svefngæði og auðvelda svefn Fæst án lyfseðils í öllum apótekum www.florealis.is FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 1 6 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 1 6 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :3 9 F B 0 9 6 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 0 -2 9 5 4 2 4 4 0 -2 8 1 8 2 4 4 0 -2 6 D C 2 4 4 0 -2 5 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 9 6 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.