Hlynur - 15.06.1975, Síða 4
ÍKPAl
VINÁTTU-
VIKA
Á ÍSLANDI
☆
27. Júni-4. Júli
1975
Hér skála þeir Sigurður Pórhallsson
Noregi fyrir velheppnaðri vináttuviku
Hvað er vináttuvika? Er það að
aka fyrir Hvalfjörð hvítfyssandi í
stormhviðunum? er það að aka fyr-
ir Búlandshöfða í roki og slag-
viðri? er það að sjá Strokk senda
hverja vatnsgusuna á fætur annarri
hátt til lofts? er það sumarnótt á
Laugarvatni þegar sólin baðar sig
í kyrrum fleti vatnsins og hlíðar
og fjallatindar roðna í morgunsól-
inni? Petta er allt vináttuvika en
það, sem þó fyrst og fremst er
vináttuvika er samhugur fólksins
og vináttubönd, sem tengjast.
Samvinnustarfsmenn á Norður-
löndum hafa á vegum KPA um
mörg undanfarin ár efnt til vin-
áttuvikna en dagana 27. júní til 4.
gjaldkeri LlS og Reidar Schau frá
i lokahófi á Hótel Esju.
júlí s. 1. var það í fyrsta sinn, sem
slík vika er haldin hér á landi og
höfðu forystumenn LlS og undir-
búningsnefnd staðið í ströngu við
skipulag dagskrár.
Undirbúningsnefnd var skipuð
Reyni Ingibjartssyni, Ann Marí
Hansen, Pálma Gíslasyni, Pétri Öla
Péturssyni og Sigurði Jónssyni.
Pátttakendur voru 10 frá Finn-
landi, 16 frá Svíþjóð, 13 frá Nor-
egi, 12 frá Danmörku og 11 frá
íslandi eða alls 62.
Vináttuvikan hófst um tvöleytið
aðfaranótt föstudags 27. júní, þeg-
ar flugvél þátttakenda lenti á
Keflavíkurflugvelli. Pá nótt gistu
þeir í hinum ýmsu húsakynnum
ivl
i X. i
Allir þátttakendur fengu afhent skírteini með hópmynd og eiginhandar-
áritun allra þátttakenda. Á myndinni er verið að afhenda þau finnsku
þátttakendunum.
4 HLYNUR