Hlynur - 15.06.1975, Qupperneq 10
Meginhluti þátttakenda á tröppum Bifrastar.
Sverre Sundt,
Noregi.
K.P.A. í Noregi
Norska KPA var stofnað sam-
tímis því sem KPA var stofnað í
Samvinnuskólanum í Osló árið
1947.
I Noregi hafa starfsmenn jafn-
an annast rekstur KPA deildanna
í frítímum sínum, en með fjárhags-
legum stuðningi landssamtakanna.
Fyrstu árin voru aðeins starfsmenn
NKL félagsmenn, en starfsmenn
kaupfélaganna hafa í stöðugt rík-
ari mæli tekið þátt í starfi KPA.
f dag hefur KPA í Noregi 50 fé-
lög innan vébanda sinna með sam-
tals 6000 félagsmenn. Mörg stærstu
félögin starfa í deildum, sem skipu-
leggja margskonar tómstundastarf
og má þar til nefna: knattspyrnu,
handbolta, skotæfingar, skíðadeild-
ir og listkynningar (einkum leik-
húsferðir og upplestrarkvöld). Ár-
lega eru haldin íþróttamót og ný-
lega var ákveðið, að þessi mót lytu
reglum, íþróttasambands stofnan-
ana, en það hefur í för með sér,
að engir sem stunda íþróttir með
keppni fyrir augum fá að vera
með. KPA í Noregi stefnir kapp-
samlega að því marki að geta boð-
ið félögum sínum sem fjölbreytt-
asta starfsemi, sem allir geta tekið
þátt í.
KPA í Noregi hefur ætíð borið
mjög fyrir brjósti norrænt sam-
starf og á hverjum vetri síðan 1949
höfum við skipulagt vináttuviku
á hóteli einhvers staðar á hálend-
inu. Vetrarvikurnar hafa jafnan
verið mjög vinsælar og í þeim hafa
tekið þátt samvinnustarfsmenn frá
hinum norðurlöndunum. Á sama
hátt hafa norskir samvinnustarfs-
menn tekið þátt í vináttuvikum,
helgarmótum og íþróttum í ná-
grannalöndunum.
Norska KPA mun hér eftir sem
hingað til vinna að því að styrkja
norrænt samstarf innan KPA.
Einhverja bestu sönnun fyrir
þýðingu þessa samstarfs höfum við
fengið með vináttuvikunni, sem
LÍS hefur skipulagt á íslandi fyrir
þátttakendur frá hinum norður-
löndunum. Pessi vika hefur ekki
aðeins gefið þátttakendunum inn-
sýn í starfsemi LlS og samvinnu-
hreyfingarinnar á íslandi, heldur
einnig innsýn í lífshætti og menn-
ingu íslendinga.
Fyrir hönd KPA í Noregi þakka
ég fyrir ógleymanlega viku.
Vennlig hilsen.
Sverre Sundt.
10 HLYNUR