Hlynur - 15.06.1975, Page 13
Þorvaldssyni bónda og fyrrum al-
bingismanni á Brúnastöðum og nú
varaformanni M.B.F. og Sveinbirni
Högnasyni frá Breiðabólstað, sem
iengi var formaður Mjólkurbús
Flóamanna og fyrrum aiþingismað-
ur.
Ljósm: Kristján Fétur.
á ferð í
Róamanna
Allt er skolað í bak og fyrir hjá
þeim Axel Þórðarsyni til vinstri
og Gunnari Friðrikssyni. Bílaflota
á M.B.F. stórann eða um 30 bíla.
M.B.F. rekur bifreiðaverkstæði og
smurstöð og hér er Garðar Gests-
son bifvélavirki að viðgerðum. Ef
myndin hefði verið tekin fyrir
fimm árum hefði ekkert verið lík-
legra, en bilnum þeim arna hafi
verið bakkað á brúsapall, en nú
heyra þeir sögunni til og mjólkur-
tankar komnir í þeirra stað á hvern
^ bæ.
Á miðri mynd er stjórnstöð fyrir
gerilsneyðingartæki vegna fram-
leiðslu G-vara eða geymsluþolna
vara. Til hægri fer svo gerilsneyð-
ing fram og til vinstri er jöfnunar-
tankur og pökkunarvél. Þessar vél-
ar eru nýkomnar í notkun vegna
framleiðslu hinna vinsælu vara,
kókómjólkur og kaffirjóma, sem
slegið hafa í gegn á fyrsta ári ef
svo má segja. Kannski verður stutt
í að blessuð mjólkin fái sömu með-
höndlun. Aðferðin byggist annars
á snögg hitun í hátt hitastig.