Faxi - 01.12.2019, Blaðsíða 10
10 FAXI
Þannig að þú hefur verið að tengjast
nemendum miklum vinaböndum?
„Já, eins og með Kristján Möller. Hann kemur
hingað 12 ára gamall og við tengjumst strax
mjög sterkum böndum. Hann fer að sækja
mikið til mín og allar götur síðan höfum við
verið rosalega góðir vinir. Hann tengist mér
bara eins og sonur. Og ég tengist allri hans
fjölskyldu, Hófí konunni hans [Hólmfríði
Karlsdóttur] og börnin þeirra eru ömmubörn-
in mín. Þetta er strákur sem ég bara eignaðist
stálpaðan, eins og segir í laginu, það væri gott
að eignast börnin um fermingu. Síðan hefur
hann verið mín stoð og stytta í lífinu, eftir að
ég kynntist honum hér. Ég hef auðvitað tengst
sumum krökkum meira en öðrum, en hann er
sá eini sem ég hef eignast.“
Við rifjum upp gamla tímann, félagslífið
í skólanum, sem var mjög öflugt á níunda
áratugnum og hvað tengslin hafi orðið mikil
við nemendur eins og Hreiðar Hreiðarsson,
Böðvar Jónsson, Kristján Jóhannsson og fleiri
nemendur þess tíma. Hún hafi líka verið nær
þeim í aldri. Nú segist hún kynnast krökk-
unum vel þegar þau eru að fóta sig fyrstu árin
í skólanum Síðan komi ár þar sem krakkarnir
eru í öðrum pælingum, en svo komi tengingin
aftur í 9. og 10. bekk. Gauja talar fallega um
unga fólkið. „Maður tengist krökkunum mest
í 9. bekk og enn betur í 10. bekk og svo er
maður gráti næst þegar þau eru að yfirgefa
skólann. Þau eru orðin svo þroskuð og flott
í 10. bekk að mér finnst alltaf svo erfitt að
kveðja þau. Síðasti dagurinn þeirra í skól-
anum er t.d. rosalega erfiður og maður er að
berjast við tárin. Sum vilja ekki kveðja mig,
segjast bara fara að gráta. Þau þroskast svo
hratt eftir að þau eru komin í 9. bekk. Maður
finnst þau vera orðin geggjuð í 10. bekk og þá
missir maður þau. Mér finnst ég svo oft vera
að byrja upp á nýtt.“
Skilar sínu verki sátt
Þú talar um tregafull augnablik þegar krakk-
arnir eru að útskrifast. Er í þér tregi Gauja nú
þegar starfslokin eru að nálgast eða er bara
tilhlökkun hjá þér?
„Ég hlakka rosalega til að hætta af því að
ég er búin að finna það að þetta er komið
gott. Síðustu fjögur til fimm árin hefur
mér fundist þetta erfitt. Ég hef bæði lent
í veikindum svo finn ég bara að þetta er
orðið gott. Ég segi alltaf, að ef ég hefði
ekki haft hann Zoran minn hérna þá hefði
verið mjög erfitt fyrir mig að klára fram að
þessum tíma. Hann hefur verið mín stoð og
stytta og hjálpað mér við verkin sem ég hef
þurft að inna af hendi. Ég segi að hann hafi
verið mín hægri hönd sl. fjögur ár. Ég ætlaði
að reyna að klára þennan vetur en þegar ég
byrjaði sl. haust þá fann ég að ég var ekki að
höndla þetta og þetta væri orðið gott.
Þannig að þú ert bara að skila þínu sátt?
„Já, ég er rosalega sátt. Ég fann að vinnan
var farin að reynast mér erfiðari og erfiðari.
En auðvitað var erfitt að þurfa að taka þetta
skref. En svo þegar ákvörðunin var tekin
og ég var búin að setjast inn til Ásgerðar og
tilkynna henni að ég óskaði eftir að fá að
hætta um áramótin, þá var eins og það hefði
sprungið blaðra þegar ég kom heim. Þetta var
bara svakalegur léttir. Núna tel ég bara niður.
En það eru alls kyns uppákomur í skól-
anum núna. Krakkarnir eru að gráta af því
að maður er að hætta og ég þarf að búa mig
undir það. Einn drengur sagði við mig um
daginn, Gauja af hverju ertu að hætta? Ég
sagði, ég er bara að verða gömul og þarf
bara að fara að gera eitthvað annað. Gömul,
þú ert ekki gömul Gauja. Litaðu bara hárið
á þér brúnt þá ertu ekkert gömul, sagði
hann. Ég horfði á hann, tók utan um hann
og sagði, takk elskan mín. Þetta er drengur í
5. eða 6. bekk.
Hvað er það í þínu fari Gauja, sem gerir
það að verkum að krakkarnir tengjast þér
svona og finnst þú vera legend, eins og ég hef
heyrt suma kalla þig?
„Ég veit það ekki. Ég held að það sé bara
af því að ég er ákveðin við þau. Þau vita
nákvæmlega hvar mörkin liggja og þau fara
ekkert lengra en það. Það er sama hvort það
er ég eða einhver annar, við þurfum öll aga
og viljum hafa aga. Ég held að það sé með
krakkana líka, þau finna þarna eru mörkin
og bera virðingu fyrir því. Þá ber maður
virðingu fyrir þeim, þannig virkar þetta á
báða bóga.“
Óskum
Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.
Óskum öllum
Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs,
með þökk fyrir það liðna.
VERKALÝÐS- OG SJÓMANNAFÉLAG
KEFLAVÍKUR OG NÁGRENNIS
SI raflagnir ehf. Garði