Faxi - 01.12.2019, Blaðsíða 25
FAXI 25
greinilegir voru mældir upp. Grunnurinn
var steinsteyptur og bragginn hefur verið 21
x 8 m að flatarmáli Enn má sjá ummerki um
sennilega þrjá bragga en þessar minjar voru
mjög ógreinilegar sem og steinsteyptan
vegg.
Þá má greina ummerki um hlaðna gröf úr
torfi og grjóti utan í og uppi hól vestan við
Langholtið. Gröfin virðist hafa vísað inn að
heiðinni. Líklegt má telja að þetta sé skot-
byrgi frá hernum en þó er ekki óhugsandi
að þetta hafi verið hlaðið fyrir veiðimenn.
Fremur ógreiðfær vegarslóði liggur að
Langholtinu að fiskþurrkunartrönum sem
þarna eru og upp í grjótnámuna. Með dá-
litlum ofaníburði mætti gera hann færan
flestum bílum og setja upp upplýsingaskilti
við vegarslóðann.
Tóft við Berghóla í Leiru
Á Berghólum var strandvarnarfallbyssu
komið fyrir um stundarsakir í september
og október 1944 og mun hún hafa staðið
þar í um það bil eitt ár. Í Berghólum er all-
stór tóft 22 m á lengd og vel sýnileg, um 8
metrar í þvermál og grasi gróin. Enn mátti
sjá leifar af gaddavír og stálstaurum um-
hverfis hana vorið 2019. Í tóftinni miðri er
n.k. „púði“ eða sökkull sem byssan hefur
líklega staðið á. Skotlínan er til norðurs og
austurs í átt að Stóra-Hólmi. Tóftin er merkt
með látlausu skilti sem á stendur „Berghóll“.
Það er hugsanlegt að þetta hafi upphaflega
gömul fjárborg sem hafi verið endurnýtt
af hernum. Það er frekar gróið í kringum
tóftina sem bendir til þess að þarna hafi
verið skepnur.
Skotbyrgi við Bergvík
Nálægt bjargbrúninni ofan við Bergvík má
finna óljós ummerki um lítið hlaðið skýli.
Ekki er unnt að slá því föstu að um leifar af
skotbyrgi sé að ræða en má þó telja líklegt
út frá staðsetningu. Svæðið er ekki vel
aðgengilegt og ekki augljóst frá Garðveg-
inum.
Önnur markverð svæði
Í Suðurnesjabæ er að finna mun fleiri hverfi
og minjar frá stríðsárunum. Þau sem eru
best varðveitt eru á Fitjum, Snelling, Go-
odrich og Harrisson.
Snelling hverfið stóð norðan við Garðsveg
og Rósaselstjarnir og þar voru um 30
braggar reistir. Hverfið hýsti fótgöngu-
liða- og stórskotaliðsflokka til ársins 1944.
Þarna er ennþá að finna fjöldann allan af
grunnum undan bröggum og að minnsta
kosti eitt hús sem hefur verið steypt. Svæðið
hefur ekki verið skráð að fullu en búið er að
mæla upp fimmtán hús og braggagrunna.
Minjarnar eru nokkuð heillegar og sýni-
legar. Þarna væri tilvalið að setja upp skilti
með upplýsingum, svæðið er aðgengilegt.
Víða um Suðurnes má sjá áhugaverðar
minjar um stríðsárin og hersetuna, sem
verðskulda það að þeim séu gerð skil og því
er talsvert verk óunnið fyrir okkur sem hér
búum.
Innan bæjarmarka Reykjanesbæjar er t.d.
að finna Hopkins, Rising og Turnerhverfin
og að sjálfsögðu Patterson flugvöllinn, sem
var forveri þess alþjóðaflugvallar sem við
nú þekkjum. Mörg hverfi hafa nánast alveg
horfið. Hopkins og Rising eru nokkuð vel
varðveitt og hafa verið skráð að hluta. Búið
er að setja upp upplýsingaskilti um þessi
hverfi sem er ágæt fyrirmynd fyrir frekari
merkingar.
Arinn frá Harrison hverfinu sem stendur
stakur eftir sem vitnisburður um hernámsárin.
Þórshöfn
Við Þórshöfn og uppi í heiðinni þar, má
finna skotbyrgi og hleðslur sem eru leifar
af æfingasvæði sem þar var. Auk þess eru
leifar af mannvirkjum niður við sjó og
steinn með áletrun frá hermanni sem hefur
verið við vakt í Þórshöfn. Minjarnar við
Þórshöfn hafa ekki verið mældar upp að
fullu.
Leifar af steyptum húsgrunnum og masturssökklum á Langholtinu.
Tóftin á Berghólum.
Hverfið Snelling, hús, braggar og götur. Það hefur ekki verið fullskráð.