Faxi - 01.12.2019, Blaðsíða 44
44 FAXI
Skólamatur ehf. | Iðavellir 1 | 230 Reykjanesbær
Óskum
Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs.
Þökkum árið
sem er að líða.
Sími 420 2500 www.skolamatur.is
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Við óskum öllum
Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
SAMBAND SVEITARFÉLAGA
Á SUÐURNESJUM
þetta vor í lífi mínu var viðburðarríka en
flest önnur tímabil.
Þegar það lá fyrir að af sameiningunni
yrði var mesta fjörið í tengslum við nafnið.
Fyrst var boðið uppá fimm nöfn í kosningu
- flestir skrifuðu nafn sem ekki var á listan-
um, en flest atkvæði af þeim sem voru í
boði fékk nafnið Suðurnesjabær. Í kjölfarið
var það notað sem nafn á nýja sveitafélagið.
Þá kom kæra frá tveimur Keflvíkingum þar
sem þeir kærðu framkvæmd kosninganna
og síðar felldi Félagsmálaráðuneytið þær
úr gildi. Andmæli komu líka frá nágranna-
sveitafélögum. Aftur var kosið og þá um tvö
nöfn Suðurnesbær og Reykjanesbær. Enn
völdu langflestir nafn sem ekki var á listan-
um og voru þeir seðlar því ógildir. Reykja-
nesbær fékk meira fylgi en Suðurnesbær og
niðurstaðan varð því að lokum að bærinn
heitir Reykjanesbær.
Það má því segja að á þessum tíma
buðum við okkur fram til bæjarstjórnar í
Suðurnesjabæ. Við fengum kjörbréf sem
bæjarfulltrúar í „sameinuðu sveitafélagi
Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna“ en störf-
uðum síðan sem bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar – þetta verður varla betra.
Eitt enn vil ég nefna sem kemur alltaf
upp í hugann þegar ég hugsa til þess tíma
þegar Reykjanesbær varð til. Fimmtudag-
kvöldið 9. júní, tveimur dögum áður, var
þing Alþýðuflokksins sett í Íþróttahúsinu
í Keflavík. Þá átti m.a. að tilkynna úrslit
í formannskjöri en kosið var milli Jóns
Baldvins og Jóhönnu Sigurðardóttur.
Bæjarmálahópur Alþýðubandalagsins
fundaði um kvöldið og þegar ég kom heim
um hálf ellefu leitið ákvað ég að bíða eftir
11 fréttunum til að heyra úrslitin. Já, þá
voru kvöldfréttirnar kl. 11. Þegar klukkan
var að verða 11 hafði kötturinn skriðið
undir sófann og ég teygði mig eftir honum
en þegar ég leit upp og sá sjónvarpsskjáinn,
blasti Jóhanna Sigurðardóttir við mér í
ræðustól - illileg á svip veifandi krepptum
hnefa og sagði „minn tími mun koma“, eins
og frægt varð.
Það var eins og við manninn mælt, það
slökknaði á sjónvarpinu, rafmagnið fór af
blokkinni og það kviknaði í henni. Bruninn
í Stóru blokkinni var hafinn og er hann enn
í dag stærsti bruni í íbúðarhúsi á Íslandi.
Svo máttug voru þau orð. Sem betur fer
urðu engin slys á fólki.
Já það var margt í gangi á þessum tíma.
Jónína Sanders:
Margar skemmtilegar
sögur eru til um hvað
myndi gerast við sam-
eininguna, t.d. hvort fólk
mætti áfram kalla sig
Keflvíking eða Njarð-
víking, hvort einstök
Kvenfélög yrðu lögð niður
eða jafnvel sameinuð. Heitar umræður urðu
um það hvernig þetta yrði með íþrótta-
félögin, og maður lifandi ef þau þyrftu
mögulega að sameinast, því það hlyti að
verða það hræðilegasta af öllu. Síðan er það
sagan um það hvort áfram yrði tendruð
jólatré í hverju sveitarfélagi fyrir sig og fræg
er setningin „nú kveikjum við á síðasta jóla-
trénu í Njarðvík.“ Rifist var um, hvort væri
hjáleigan Keflavík eða Njarðvík og var farið
langt aftur í gamlar bækur til að sýna fram á
að Njarðvíkurbændur áttu allt land að Apo-
teki Keflavíkur.
Eitt af því sem vert er að nefna er að
þegar almenningssamgöngum var komið
á byggðu þær á grunni skólaaksturs sem
Steindór heitinn Sigurðsson fv. bæjarfulltrúi
hafði séð um til margra ára af miklum
metnaði. Gaman er líka að segja frá í því
samhengi, að þegar við settum konu inn
sem formann verkefnahóps um almenn-
ingssamgöngurnar, Þórunni Benedikts-
dóttur, þá var hún einnig kjörin formaður
stjórnar SBK. Þarna höfðu góðir karlar
ráðið ríkjum öll árin og spurt var „getur
stelpan eitthvað gert þetta?“ En skemmst er
frá því að segja að „stelpunni“ fórst verk-
efnið vel úr hendi ásamt góðu starfsfólki
SBK og samnefndarmönnum.
Annað sem segja má að við séum stolt
af, er að árið 1996 samþykkti bæjarstjórn
Reykjanesbæjar einróma, að veita körlum
í þjónustu bæjarins rétt til tveggja vikna
launaðs feðraorlofs við fæðingu barns.
Frá hátíðarfundi bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar 11. júní 2019 þar
sem haldið var upp á 25 ára afmælið.
Guðný Birna Guðmundsdóttir
1. varaforseti bæjarstjórnar í pontu.
Ljósm. Reykjanesbær