Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.2019, Side 21

Faxi - 01.12.2019, Side 21
FAXI 21 Veturinn hefur aldrei verið minn tími og sú tilfinning ágerist með aldrinum. En óumdeilanlegur kostur við þessa dimmu tíma er að þá er gott að gleyma sér yfir orðum, myndum og minningum – það styttir biðina eftir birtunni. Þetta er tíminn þegar ég nýt þess að loka að mér, vinna úr ljósmyndaverkum, skrifa og hanna bækur og sýningar, hugsa aftur. Og nú á myrkum sunnudagsmorgni á aðventunni sit ég og horfi hálfa öld aftur, heim til Keflavíkur. Ég hef skannað inn kámugar og rispaðar skyggnur úr myndasjóð fjölskyldunnar, skyggnur frá síðustu árum sjöunda ára- tugarins sem eru þaktar litlum fingraförum eftir að við systkinin höfum borið þær upp að ljósi og rýnt í þær í æsku. Nú horfi ég aftur á myndirnar og minningar sópast að. Þetta eru myndir teknar á og við æsku- heimilið við Heiðarveg. Og ég tók þær fram á dögunum þegar styttist í að áttatíu ár væru liðin frá fæðingu pabba, Ingólfs Þ. Falssonar, sem lengi var í Málfundafé- laginu Faxa. En hann er ekki hér að rifja þessa tíma upp með okkur, er löngu horfinn í þetta rót minninganna – krabbinn tók hann 58 ára gamlan og ekki nema fimm ár í að ég nái sjálfur þeim aldri. En hérna erum við saman á einni myndinni, tveir strákar, og hann að klippa á mér hárið heima í eldhúsi. Man ég eftir þessari stund, þegar ég sat þarna svona grafkyrr uppi á borði og mamma lyfti myndavélinni? Ljós- myndafræðingar halda því fram að myndir taki yfir minningar, að við nútímamenn gleymum því sem ekki hefur verið fryst með slíkum myndum, að myndirnar jafnvel búi minningarnar til. En við að horfa á þessa ljósmynd er ég óneitanlega kominn heim í eldhúsið – ég er líklega á þriðja ári og er þetta jólaklippingin? Og hérna er önnur mynd, hversdagsleg mynd eins og ég hrífst svo gjarnan af úr söfnum annarra, en það gefur þessari aukið persónulegt gildi að ég er sjálfur í for- grunni. Með húfuna sem ég skildi víst ekki við mig og kallaði „barnið“, svo mjúk sem hún var. Tölti í átt að skugga annars barns sem stingst inn í myndflötinn úr vinstra horninu – er það skuggi bróðurins sem lést áður en ég fæddist og var alltaf til staðar, allan minn uppvöxt? Og fyrir aftan í inn- keyrslunni við heimilið, eitthvað að bauka í nýprjónaðri peysu, er Margeir stóri bróðir sem mér finnst nú að hafi alltaf passað samviskusamlega upp á þennan veiklulega litla bróður, sem var sem pakkað inn í bómull öll æskuárin, og lifði. Þannig horfi ég á fimmtíu ára gamlar ljósmyndir hverja á fætur annarri og þessar minn- ingar þyrlast að; þarna á horninu fyrir aftan bjó Einar í Merki og kom stundum á hjólastólnum í kaffi og var svo erfitt að skilja hann, Gústi á Vatnsnesi kom í hádegismat og það var ævintýri að sjá hann stinga fiskbitum upp í sig og tína beinin síðan út, timburport Kaupfélagsins á móti var ögrandi ævintýraheimur. Svo fór vörubíll hlaðinn loðnu framhjá en pallurinn illa lokaður svo einhverjar loðnur láku niður á malarvegin fyrir framan, þar sem ég lék mér með þær í drullupolli. Og einhverjum árum seinna lék hljóm- sveitin Júdas inn í nóttina í húsinu við hliðina svo ég náði ekki að sofna. Það mætti skrifa um þetta allt. Og stundum er gott að gleyma sér yfiir orðum, myndum og minn- ingum… Einar Falur Ingólfsson Jólaklipping Þá og þar...

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.