Faxi

Volume

Faxi - 01.12.2019, Page 27

Faxi - 01.12.2019, Page 27
FAXI 27 Nú er aðventan hafin, þessi dásemdar-tími þegar allir sem hafa ráð á því njóta lífsins í dimmu skammdegisins og aðdrag- anda jólanna. Fólk leyfir sér aðeins meira í mat og drykk á þessum vikum en öðrum tímum ársins. Jólaljós skreyta hús og híbýli, ljósastaura og götur, allt til að minna okkur á fæðingu frelsarans. Ljósin létta okkur lífið í myrkrinu sem liggur yfir öllu og minna okkur á sama tíma á það að ljósið sigrar alltaf myrkrið að lokum. Í upphafi aðventunnar skreytum við flest híbýli okkar og umhverfi með jólaljósum. Þannig lýsum við upp skammdegið sem hefur ráðið ríkjum að undanförnu en er nú senn á undanhaldi. Jólaljósin lýsa alls- staðar og sólin hefur hafið sigurför sína yfir myrkrinu hér á norðurhjara veraldarinnar. Myrkrið er mörgum þungbært þegar það leitar uppi hvert skúmaskot og þrengir sér í krók og kima. Sumsstaðar á landinu sést ekki til sólar langtímum saman og því er það svo mikið fagnaðarefni þegar dag tekur að lengja á ný. Neyðin í samfélaginu okkar er mikil og alls ekki allir sem búa við þann kær- leika og það öryggi sem við þráum öll. Það fylgir því myrkur þegar við heyrum af útköllum lögreglu tengdum áfengis- og fíkniefnaneyslu, við heyrum af týndum og vanræktum börnum og það berast fréttir af sjálfsvígum og af dauðsföllum af völdum neyslu fíkniefna. En að sama skapi fylgir því gleði og birta, að heyra af góðum huga þeirra sem leggja fólki lið. Það virðist sem flestum sé mikið í mun að sinna þeim sem minna hafa í samfélaginu þegar líður að jólum. Við gefum peningagjafir, kirkjan og önnur hjálparsamtök gera sitt besta til að styrkja fólk sem á þarf að halda, til að allir geti haldið jól. Flestir taka jólaljósin niður í kjölfar jólanna, og margir sinna ekki þeim sem þurfa á aðstoð og kærleika náungans að halda fyrr en á aðventu næsta árs. Sífellt fleiri skilja eftir jólaljós á svölunum eða á trénu í garðinum til að vinna áfram á móti myrkri skammdegisins á sama tíma og það hörfar jafnt og þétt undan hækkandi sólu og birtu. Væri það ekki góð hugmynd að skilja jafnframt eftir jólaljós í hjörtum okkar og leyfa þannig fallega jólaandanum að lifa áfram með okkur alla mánuði ársins, þannig að við gleymum aldrei þeim sem þurfa mest á náungakærleikanum að halda. Jólin hafa fylgt okkur mönnunum frá ómunatíð. Framan af til heiðurs hækk- andi sólar og þar með lífsins sem kviknar með birtunni. Orðið Jól er gildishlaðið og hljómar líkt á mörgum tungumálum. Ár hvert er talað um ólíkindi þess að Kristur hafi fæðst um jól og það má vel vera að slíkar vangaveltur eigi rétt á sért en um jólin höldum við kristnir upp á fæðingahátíð hans engu að síður og það gerir daginn ekki síðri að neinu leyti. Við höldum hátíð þess sem færir okkur ljós í allar kringumstæður samhliða hátíðinni sem haldin hefur verið til fagnaðar yfir sigri sólarinnar sem færir birtu yl og lífsafkomu á sama hátt og Jesús Kristur, jólabarnið okkar kristinna færir okkur fyrirheit um eilíft líf. Frelsari okkar Jesús Kristur kenndi okkur að koma fram við náungann eins og við viljum að náungi okkar komi fram við okkur. Það er ekki dýr jólagjöf til okkar sjálfra að velja það að gefa fólkinu sem við hittum í lífinu kærleika og umhyggju. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól og farsælt komandi ár. Séra Fritz Már Jörgensson Hér og nú Ljósið sigrar alltaf myrkrið að lokum Fritz Már Jörgensson prestur í Keflavíkurprestakalli

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.