Heimsmynd - 01.11.1988, Side 66
Danskennari og
snyrtidama
Nú er hún þekkt sem kaupkonan Bára
Sigurjónsdóttir. Hún hefur rekið verslun um
fjörutíu ára skeið en á unglingsárunum ætlaði
hún að helga dansinum líf sitt. Margt fer
öðruvísi en ætlað er og Bára Sigurjónsdóttir
fékk ung að kynnast sorginni. Hún varð ekkja í
annað sinn fyrir fimm árum en segist þakklát
fyrir allt sem lífið hefur fært henni
Reyndar hafði hún tekið píanónámið
fram yfir Kvennaskólann, enda var langt
á milli strætisvagnaferða milli Hafnar-
fjarðar og Reykjavíkur, og of mikið að
stunda píanónám samhliða
Kvennaskólanámi. Sótti þess í stað
einkatíma í þýsku og ensku til að tryggja
sér málakunnáttu fyrir síðari tíma.
Hún sigldi til Kaupmannahafnar árið
1938. Þar fór hún til náms hjá Fjeldgaard
og Flatau dansskólanum og lagði fyrir sig
samkvæmisdansa, ballett, akrobatík og
stepp, enda steppdans mjög vinsæll í þá
daga. Eftir nokkurra mánaða nám sigldi
hún aftur heim og byrjaði með dans-
kennslu í bakhúsi að Laugavegi 1 og í
Oddfellowhúsinu. Um vorið 1939 sigldi
Bára aftur út til frekara dansnáms. Eftir
skamman tíma var skólanum lokað, en
danskennararnir bentu henni á að nema
við Ollerup skólann, sem var mikilsvirt-
ur íþróttaskóli á Fjóni. Þar lagði Bára
stund á nám í leikfimi, sundi og íþrótta-
kennslu og lauk prófi þaðan. Hún tók
einnig tíma í danskennslu hjá Carlsens-
hjónunum og stóð til að hún yrði áfram í
Kaupmannahöfn. Þá bárust henni boð
frá föður sínum um að snúa strax heim
til íslands, stríðið væri að skella á. í þá
BÁRA NÚNA:
Með sonardóttur sinni og
alnöfnu, Báru
Sigurjónsdóttur, á síðustu
jólum.
ára Sigurjónsdóttir var að-
eins fimmtán ára þegar hún
tók að sér danskennslu
barna í Hafnarfirði. Hafn-
arfjörður var hennar
heimabær þar sem hún ólst
upp ásamt fjórum systkin-
um á heimili foreldra
þeirra, Rannveigar Vigfús-
dóttur og Sigurjóns Einars-
sonar skipstjóra. Hún segir
foreldra sína hafa verið
mikið dugnaðarfólk, sem allt vildi fyrir
bðm sín gera. Þau voru vel stæð en
gættu þess að börnin yrðu ekki
dekruð og kenndu þeim
snemma að vinna.
Dansbakteríuna fékk
Bára í dansskólanum hjá
Ásu og Rigmor Hansson,
þar sem hún lærði sam-
kvæmisdansa, en hjá Helene
Jónsson og Carlsen lærði hún
klassískan ballett, og ákvað að
afla sér réttinda í danskennslu.
Áður en af ferðalaginu varð lauk
hún námi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík ‘ í píanóleik, sem hún
hafði numið frá sjö ára aldri.