Heimsmynd - 01.11.1988, Blaðsíða 102
Að þessu sinni voru það bjartir litir
Van Goghs, Matisses og kúbistanna
sem hrifu hönnuði, svo sem Saint-
Laurent, Lacroix og Bill Blass. Hjá
Ungaro og Chanel minntu rósóttu
fötin, í daufum bleikum og bláum
tónum, óneitanlega á franska mál-
aralist átjándu aldar þar sem þessa
sömu liti er að finna. ítalski hönnuð-
urinn Franco Moschino sótti hug-
myndir sínar í allt aðra tegund listar -
popplist sjöunda áratugarins. „Ég álít
mig ekki vera tískuhönnuð,'1 segir
hann. „Ég ætlaði alltaf að verða mál-
ari en síðan uppgötvaði ég að ég
gæti tjáð listamannshæfileika mína
betur með því að sníða og hagræða
efni. “
Það er ekki óviðeigandi að tísku-
húsin skuli leggja svo ríka áherslu á
meistaraverk málaralistar einmitt nú
þegar þessi verk eru svo mikið í
fréttum. í fyrra var hið fræga málverk
Van Goghs af sverðliljum selt á upp-
boði fyrir tæpar fimmtíu og fjórar
milljónir dollara og „Sólblómin
eftir sama listamann á þrjátíu og níu
milljónir dollara. (Pallíettujakkarnir
sem Yves Saint-Laurent lét gera eftir
þessum myndum eru heldur ekki
gefins, þeir eru seldir á um tvær
milljónir íslenskra króna stykkið!)
Skömmu síðar lést popplistamaður-
inn Andy Warhol og eigur hans voru
seldar á uppboði hjá Sotheby’s og
vakti það mikla athygli. Þar að auki
hafa stórfenglegar listsýningar í
París, Washington og New York leitt
verk Matisses svo og átjándu aldar
málarans Fragonards fyrir augu al-
mennings og aukið vinsældir málara-
listar yfirleitt.
Fatatískan í vor vísaði til fagurlista
á ýmsan hátt. Það heyrði þó til und-
antekninga að nákvæmar eftirlíkingar
væru gerðar eftir einstaka listaverk-
um. Þess í stað voru sameiginleg
tákn úr verkum Braques og Picas-
sos, svo sem gítar, nótur og dúfur,
notuð hér og þar á samkvæmis-
klæðnað sem Yves Saint-Laurent
hannaði. Christian Lacroix notaði lit-
rík mynstruð efni sem líktust grófum
pensildráttum hins unga Matisses.
Engan skyldi undra að Lacroix
skuli skírskota til fagurlista í svo rík-
um mæli, því hann nam listasögu áð-
102 HEIMSMYND