Heimsmynd - 01.11.1988, Page 70
VINSÆLUSTU OG
KONUR A ÍSLAND
Af 62 konum í sviðsljósinu, í listum, stjórnmálum,
fjölmiðlum og öðru, eru 18 konur sem Islendingar
hafa afgerandi skoðun á. Þetta eru niðurstöður
skoðanakönnunar HEIMSMYNDAR á því hvaða
eiginleikar kvenna í opinberu lífi falla þessari þjóð vel
í geð og hverjir ekki. Þekktar konur, sem ekki eru í
þessum hópi, þurfa ekki að örvænta þótt fólk hafi
ekki eins eindregnar skoðanir á þeim og sumum
öðrum. Úrslitin virðast ráðast af því hversu
kunnuglegt andlitið er úr fjölmiðlum . . .
í skoðanakönnun sem HEIMSMYND
lagði fyrir lesendur sína nýverið kom í
Ijós að Valgerður Matthíasdóttir, á Stöð
2, er umtalaðasta kona á landinu eða sú
sem flestir höfðu skoðun á. Skoðana-
könnun þessi var framkvæmd þannig að
listar með nöfnum sextíu og, tveggja
kvenna úr heimi fjölmiðla, lista, stjórn-
mála og viðskipta voru sendir tíl rúmlega
eitt hundrað lesenda. Þessi hópur sam-
anstóð af báðum kynjum, fólki á öllum
aldri, héðan og þaðan úr þjóðfélaginu.
Niðurstöðurnar urðu þær að 98 pró-
sent höfðu skoðun á Valgerði Matthías-
dóttur en fast á hæla henni komu Bryn-
dís Schram, forseti (slands frú Vigdís
Finnbogadóttir, Björk í Sykurmolunum,
Guðrún Helgadóttir alþingismaður og rit-
höfundur, Sigrún Hjálmtýsdóttir söng-
kona og Guðrún Agnarsdóttir þingkona
Kvennalista.
Skoðanakönnun þessi leiddi I Ijós að
nokkrar þeirra kvenna sem flestir höfðu
skoðun á voru mjög umdeildar og á jaðri
þess að vera óvinsælar. Niðurstöður
þessarar skoðanakönnunar urðu þær að
vinsælustu konur landsins eru frú Vigdís
Finnbogadóttir, forseti íslands og Björk
Guðmundsdóttir, söngkona Sykurmol-
anna.
Af átján konum ( stjórnmálum komast
sjö á blað hér, bæði vinsælar og mjög
umdeildar. Skoðanakönnunin leiddí í Ijós
að fólk hafði annaðhvort lltið sem ekkert
um hinar ellefu að segja eða fremur nei-
kvætt. I hópi stjórnmálakvenna kom í Ijós
að Guðrún Helgadóttir nýtur mikilla vin-
sælda sem og Guðrún Agnarsdóttir,
þingkona Kvennalista. Fleiri tóku afstöðu
til Guðrúnar Helgadóttur (83 prósent) og
voru 80 prósent þeirra jákvæð. Af þeim
75 prósentum sem höfðu skoðun á Guð-
rúnu Agnarsdóttur voru 83 prósent mjög
jákvæð. Því er erfitt að dæma um hvor
þessara kvenna er vinsælli en ummæli
fólks gefa einnig sterka vísbendingu um
hvað það er sem fólki líkar I fari þeirra og
hvað ekki. Jóhanna Sigurðardóttir ráð-
herra fékk 70 prósent jákvæð svör af
þeim 77 prósentum sem höfðu skoðun á
henni. Sami fjöldi tók afstöðu til Þórhildar
Þorleifsdóttur en hún er mun umdeildari,
58 prósent þeirra sem svöruðu voru já-
kvæð ( hennar garð. Um 57 prósent að-
spurðra höfðu skoðun á Guðrúnu Þét-
ursdóttur (ráðhúsandstæðingi sem var
mikið í sviðsljósinu fyrr á árinu), Sigriði
Dúnu Kristmundsdóttur og Ingibjörgu
Sólrúnu Glsladóttur. ( Ijós kom að 85
prósent voru mjög hrifin af Guðrúnu Þét-
ursdóttur, 65 prósent af Ingibjörgu Sól-
rúnu en aðeins 37 prósent jákvæð I garð
Sigríðar Dúnu, sem flokkast því undir að
vera I umdeilda hópnum fremur en þeim
vinsæla.
Af fjölmiðlakonum vekja konur I sjón-
varpi mesta athygli, andlit sem fólk um
allt land þekkir af skjánum. Af fjórtán
konum I fjölmiðlum, tólf þeirra úr sjón-
varpi, kom I Ijós að fólk tók afgerandi af-
stöðu til fimm þeirra og sló Valgerður
Matthíasdóttir, úr 19.19 á Stöð 2, þar öll
Ljósmyndir • FRIÐÞJÓFUR HELGASON og fleiri
70 HEIMSMYND