Heimsmynd - 01.03.1991, Side 31

Heimsmynd - 01.03.1991, Side 31
um alla skattsvikapeningana til að lækka virðisaukaskattinn í staðinn lætur nærri að hann mætti lækka úr núverandi 24,5 prósentum í rétt ríflega 20 prósent. í þessu sambandi er að vísu skylt að taka fram að skattkerfisbreytingar síð- ustu ára hafa í einhverjum tilvikum gert fólki erfiðara fyrir að svíkja undan skatti og því má kannski reikna með að eitt- hvað hafi dregið úr skattsvikum. Um þetta er hins vegar næsta lítið vitað og engin rannsókn hefur verið gerð á um- fangi skattsvika síðan nefndin sem getið er um hér að framan skilaði áliti sínu 1986. Pað er útbreidd skoðun, - eða ættum við kannski að segja útbreiddur misskiln- ingur - að skattsvikarana sé einkum að finna í hópi þeirra sem reka stór fyrir- tæki og noti alls kyns bókhaldsfiff til að komast hjá að greiða nema vinnukonu- útsvar af forstjóralaununum. Vissulega eru þekkt dæmi um stórfyrirtæki sem hafa verið dæmd í háar sektir fyrir skattsvik og bókhaldssvindl í sambandi við slíkt. Sannleikurinn mun þó sá að eftir því sem fyrirtækin verða stærri og umsvifameiri, þeim mun erfiðara er að halda hluta teknanna utan við bókhald- ið. Það er einmitt þetta, - að halda hluta teknanna utan við bókhaldið - sem er al- gengasta aðferðin við bein skattsvik. Þetta er auðveldast fyrir lítil fyrirtæki eða einstaklinga í ýmsum þjónustugrein- um. Skattkerfisbreytingar síðustu ára, sem einmitt hefur að hluta til verið beint gegn skattsvikum, virðast í rauninni ekki hafa haft nein veruleg áhrif á möguleika einstaklinga og lítilla þjónustufyrirtækja til að svíkja undan skatti. Þegar iðnaðarmaður tekur að sér við- gerð á húseign eða bíl, svo dæmi sé tek- ið, er algengt að boðið sé upp á tvenns konar verðlagningu. Ef nótunni er sleppt, lækkar kostnaðurinn sem virðis- aukaskattinum (áður söluskattinum) nemur. Þetta fyrirkomulag virðist nánast ekkert hafa breyst með tilkomu virðis- aukaskattsins. Viðskiptavinurinn hagnast auðvitað á þessu og til eru dæmi um fólk sem af hugsjónaástæðum vill ekki eiga nokkurn þátt í því að svíkja peninga af ríkinu, en hefur þurft að hugsa sig tvisvar um, þeg- ar á hólminn var komið. Einn viðmæl- enda HEIMSMYNDAR orðaði þetta efnislega svo: ,,Ég er algerlega á móti þessu svínaríi. Þessir menn vinna verk- efni fyrir milljónir eða tugmilljónir á ári og hafa margfaldar mínar tekjur en borga ekki meiri skatta en þeir kæra sig um. Ég hefði auðvitaö getað pínt þá til að gefa það upp sem ég borgaði þeim með því að heimta nótu, en það hefði bara kostað mig 100 þúsund aukalega. Mér fannst ég ekki hafa efni á því. Auk þess hefðu þessi 100 þúsund aldrei runn- ið til ríkisins vegna þess að mennirnir þurfa hvort eð er að telja fram einhverj- ar tekjur.“ Fæstir hafa þó samviskubit yfir því að spara sér peninga með því að láta vera að krefjast kvittunar sem þeir hafa hvort eð er ekkert með að gera. Þvert á móti báru viðmælendur HEIMSMYNDAR að algengt væri að viðskiptavinir beinlín- is færu fram á að fá að sleppa virðisauka- skattinum. í þessum nótulausu viðskipt- um hagnast viðskiptavinurinn sem virðis- aukaskattinum nemur. Hagnaðinum af hinum nótulausu viðskiptum er þó ekki þar með lokið. Þjónustuaðilinn sparar sér oft mun hærri útgjöld. Virðisauka- skatturinn er nú 24,5 prósent en tekjusk- attur af þeim tekjum sem eru fyrir ofan skattleysismörk er nú kominn upp undir 40 prósent. Þennan skatt sleppur þjón- ustuaðilinn við að greiða og sparar sér því oft mun hærri upphæð en viðskipta- vinurinn, sérstaklega ef þjónustan felst einkum í vinnuframlagi. í þeim tilvikum sem þjónustuaðilinn er einstaklingur, nær þetta auðvitað ekki lengra. Ýmis smærri þjónustufyrirtæki stunda það hins vegar að halda hluta teknanna utan kerfisins. Hagnaður þess- ara fyrirtækja af nótulausum viðskiptum verður aftur til þess að þau geta boðið starfsmönnum sínum að gefa hluta laun- anna ekki upp til skatts. Þetta mun nán- ast vera eina dæmi þess að venjulegir launþegar geti komið einhverjum pen- ingum undan. Nú má spyrja; hvar er þessi góðu fyrir- tæki að finna? Hvar eigum við að fá okk- ur vinnu þar sem við þurfum ekki að telja fram nema hluta launanna? Því er til að svara, að þá skulum við ekki fá okkur vinnu á sjúkrahúsum eða gerast kennarar og við skulum heldur ekki leita fyrir okkur um skrifstofustörf eða aðra vinnu hjá stórfyrirtækjum í einkageiran- um. Við skulum fá okkur vinnu hjá smærri fyrirtækjum í einhvers konar þjónustu. Samkvæmt niðurstöðum þeirrar skýrslu um skattsvik sem vitnað var til hér að framan, voru fyrir fimm árum taldar mestar líkur fyrir dulinni starfsemi og skattsvikum í byggingastarfsemi, ým- issi persónulegri þjónustu, svo sem hár- greiðslu- og snyrtistofum og bílaþjón- ustugreinum, og loks iðnaði, verslun og veitinga- og hótelstarfsemi. í einhverjum þessara greina hefur raunar orðið nokkru erfiðara um vik að ræna virðis- aukaskattinum, en raun var á um sölu- skattinn. Kannski á það fyrst og fremst við um verslunina en trúlega einnig um iðnað og jafnvel að einhverju leyti um byggingastarfsemi. í persónulegri þjón- ustugreinum hefur hins vegar sáralítið breyst og margir þeir sem þar starfa veita sjálfum sér mun meiri skattafaslátt en hið opinbera sér fært að veita öðrum þegnum. Sem vænta má eru þeir sem nótulaus viðskipti stunda, ekki beinlfnis fúsir til að koma í blaðaviðtal með mynd og nafni. Þjónustuaðili í ónefndri atvinnu- grein var þó reiðubúinn að ræða málið eftir að hafa verið fullvissaður um að leyndarhjúpnum yrði alls ekki svipt af honum. Þessi aðili kvað raunar umfang nótulausra viðskipta hjá sínu fyrirtæki hafa minnkað verulega á síðustu árum, en það stafaði einkum af stækkun fyrir- tækisins. Meðan fyrirtækið var lítið og hafði innan sinna vébanda aðeins einn eða tvo starfsmenn, sagðist hann hins vegar hafa leitað eftir nótulausum við- skiptum. Hvað starfsmenn fyrirtækisins varðar, sagði þessi maður að þótt þau laun sem greidd eru í peningum væru gefin upp, væru til ýmsar löglegar aðferðir til að starfsmenn kæmu betur út gagnvart skattinum. Sem dæmi um þetta nefndi hann að fyrirtækið greiddi allan vinnu- fatakostnað starfsmanna og byði þeim út að borða ásamt ýmsu fleiru. A þessum viðmælanda okkar var að skilja að löglegar aðferðir til að halda sköttum innan „skynsamlegra marka“ væru nægilega margar og árangursríkar til að hann þyrfti tiltölulega lítið að nota nótulaus viðskipti, þótt hann viður- kenndi að þau væru enn stunduð í fyrir- tækinu. Hann sagði hins vegar algengt að viðskiptavinir sínir færu fram á að „sleppa Ólafi Ragnari“ eins og hann sagði að það væri gjarna orðað. Hann kvaðst hins vegar nú orðið vera mjög varkár í þessum efnum og fyrir fólk sem hann þekkti engin deili á þýddi ekkert að fara fram á slíkt. Þessi viðmælandi okkar fullyrti á hinn bóginn að þjónustufyrirtæki í sinni grein, sem að stórum hluta byggðu rekstur sinn á þjónustu við opinbera aðila og stórfyr- irtæki, sem að sjálfsögðu þyrftu alltaf að fá nótu, byðu öðrum viðskiptavinum sín- um gjarna upp á nótulaus viðskipti. ,,Þeir þurfa virkilega á nótulausum við- skiptum að halda,“ sagði hann. Asókn hins almenna borgara í nótu- laus viðskipti virðist raunar vera umtals- verð. Maður nokkur í annarri ónefndri þjónustugrein, kveðst undantekningar- laust innheimta virðisaukaskatt og skila honum. Hann segist á hinn bóginn stundum hafa þurft að ganga svo langt til að koma í veg fyrir að viðskiptavinirnir sneru sér annað, að fullyrða að verðið fyrir þjónustuna væri án virðisauka- skatts, þótt raunin væri önnur. En víkjum nú sögunni til þeirra manna sem standa hinum megin víglínunnar. I fjármálaráðuneytinu sitja menn og bolla- leggja hvernig koma skuli í veg fyrir skattsvik. Mörður Arnason, upplýsinga- fulltrúi ráðuneytisins, er þeirrar skoðun- ar að skattkerfisbreytingar og hert inn- heimta á síðustu árum hafi þegar haft töluverð áhrif. Um þrír fjórðu hlutar skattakerfisins hafa þegar verið endur- skoðaðir og einfaldaðir til muna. Hvers kyns undanþágum hefur fækkað veru- lega. Virðisaukaskatturinn leggst á vör- framhald á bls. 84 HEIMSMYND 31

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.