Heimsmynd - 01.02.1992, Blaðsíða 21
s
Ólöf Kolbrún Harðardóttir söngkona hefði ekki fæðst í Reykjavík þann 20. febrúar 1949,
hvar og hvenær hefði hún þá viljað fæðast?
Helst vildi ég vera ófædd.
fefc i ■ Hvers vegna?
pa5 eru meiri möguleikar í framtíðinni.
Hvaða tímabil í sögunni heillar þig mest?
Miðaldirnar, ég hef kynnst þeim talsvert í gegnum óperuna og finnst þær ákaflega heill-
andi og rómantískur tími.
Hvaða persóna í sögunni hefðir þú helst kosið að vera?
Ég er ágætlega sátt við sjálfa mig.
Hverjum vildir þú helst líkjast í útliti?
Helst vildi ég líkjast sjálfri mér. Ég er ágætlega sátt við útlit mitt, ekki vegna þess að ég viti ekki að ég
gæti verið miklu fallegri, heldur vegna þess að ég veit að það gæti verið svo miklu verra. Eg er þakklát
fyrir það sem ég hef.
En innræti?
Ég held ég svari þessu á svipaðan hátt. Ég vildi að ég væri ég sjálf en ætíð í stöðugum þroska. Petta þýðir
þó ekki að ég geri mér ekki grein fyrir því að það er fólk sem stendur
mér svo miklu framar að þessu leyti.
Hvaða kona í sögunni hcillar þig mest?
Forsetinn okkar, Vigdís Finnbogadóttir. Ég er heilluð af henni sem
persónu og allri hennar framgöngu.
Hvernig húsgögn viltu hafa í kringum þig?
Ég held að mér sé tamast að velja þung og efnismikil húsgögn sem
þó eru hlýleg. Sumum finnst það gamaldags, en ég vil hafa þau
rúm og í mjúkum litum.
Hvernig slappar þú af?
Mér finnst afskaplega gott að vera ein með sjálfri mér
þegar ég vil slappa af, þó ég sé að öðru jöfnu mjög
gefin fyrir að hafa fólk í kringum mig. Pað að aka, þó
ekki sé nema spottakorn út fyrir bæinn til að komast
út í íslenska náttúru, finnst mér sérlega afslappandi.
Hvert er besta leikrit sem þú hefur séð?
Þau leikrit eftir Ibsen sem ég hef séð í uppfærslu Þjóð-
leikhússins sitja mjög í mér, til dæmis Gjaldið. Mér þótti
líka afskaplega gaman að leikritinu Dampskipið sem
Nemendaleikhúsið sýndi í fyrra í Borgarleikhúsinu.
Hver er eftirminnilegasta kvikmynd sem þú hefur séð?
Þar kemur þú að tómum kofanum. Ég fer nánast aldrei
núorðið í kvikmyndahús. Ætli Walt Disney-teikni-
myndin Fantasía sé mér ekki einna minnisstæðust.
Hvaða matur finnst þér bestur?
Mér finnst allur matur svo góður. Ég er mjög gefin fyrir
að reyna eitthvað nýtt en soðna ýsu með kartöflum er alltaf gott að fá
Hverju sérðu mest eftir?
Ég sé mest eftir því ef ég brýt gegn þeim sem mér þykir vænst um.
Hvaða hlut vildir þú helst eignast?
Ég held ég eigi allt sem ég þarfnast og sjálfsagt allt of mikið.
Hverjir eru helstu kostir þínir?
Þetta ættu aðrir að fjalla um.
En veikleikar?
Spurðu þá sömu.
Hver er ánægjulegasta stundin í lífi þínu?
Ég get ekki gert upp á milli, þær eru svo margar.
Hvað er það sem helst veldur þér áhyggjum?
Ætli það sé ekki neikvæðni og svartsýni sem mér finnst ótrúlega
algeng.
Við hvað ertu hrædd?
Hræddust er ég um að ég og aðrir vinni ekki nógu vel úr þeim
möguleikum og tækifærum sem okkur eru veitt.
Hvað heldurðu að þú hafir verið í fyrra lífi?
Ég hef aldrei hugsað út í það enda finnst mér mikilvægast að lifa
þessu lífi án tillits til annars lífs.
Hverjar eru rómantískustu aðstæður sem þú getur hugsað þér?
Pær eru svo ótrúlega margar rómantísku aðstæðurnar sem
heilla mann og flytja inn í draumaheima. Ætli ég seei samt
ekki: það þegar þeir einstaklingar sem elskast fá áð eld-
ast fallega saman.
Ef þú ættir eina ósk, hvers myndir þú óska þér?
Að líf mitt hér eftir megi verða eins auðugt og hingað
til.D
t
HEIMSMYND 21