Heimsmynd - 01.02.1992, Blaðsíða 77

Heimsmynd - 01.02.1992, Blaðsíða 77
i ' » „ é feoranS'580"SteÍnhÖ9s,,ari elnd'n fegrar uppakomu a Tjörninni í janúar 1870 . t- ik Nlvndin er tekin skbmmu ,shisil í Msnirslr* «• trorUn a segja sverma ég aldrei fyrir franskmönnum og svo veit ég ekki nema að bæjarfólk tali um, ef hann kemur oft hingað, því eins og þú veist þá eru sumar tungur hér í bænum eitraðar.“ GAMLA MÚTTER SKÆLIR HÁSTÖFUM Og mæðurnar voru engu betri. í Reykjavík voru dönsk apótekarahjón, Randrup að nafni, og hann var jafnframt franskur konsúll á Islandi. Þau voru í Danmörku haustið 1870. Elínborg skrifaði: „Mikil ósköp gengur á fyrir Randrups í Höfn. Mútter skælir hástöfum annað augnablikið yfir óförum Frakka [í stríði þeirra við Prússa], en hitt stikar hún um allar trissur og brúkar sína kúnstugu tungu á allan máta. Kannski henni lukkist nú að gifta dæturnar, þá væri ferðin til nokkurs.“ Og það hefur greinilega tekist. í lok mars skrifaði Þóra Pét- ursdóttir um Dóru, dóttur Randruphjónanna: „Ekki var ég svo hissa að frétta um trúlofun Dóru því það var nokkuð sem búið var að þvaðra um hér lengi að gamla mútter væri að brugga það saman. . . Grönlund kvað vera efnaður, langur og ljótur, uppþurrkaður piparsveinn, en vænn. Þú sérð að ég þekki kost og lesti á manninum. Hann ferðaðist hér á íslandi fyrir nokkru síðan. . . Bara Dóra verði nú lukkuleg. Grönlund ku vera mikið forlyftur, hún er nógu falleg hún Dóra!“ NETIN LÖGÐ FYRIR STEPHENSEN Eftirsóttasti piparsveinninn í Reykjavík annó 1870 var Magnús Stephensen, þá nýskipaður dómari við Landsyfirrétt- inn, en seinna átti hann eftir að ná til æðstu metorða, verða landshöfðingi. Greinilegt er að hjörtu biskupsdætra slá hraðar þegar Magnús er annars vegar og þeim líkar ekki hversu dátt hann gerir sér í öðrum húsum. Ætlaði hann kannski að ná sér í konu af ættinni Jónassen? Þóra skrifaði: „Sést hann ekki heldur en rauðagull og ef hann sést þá um- gefinn eða innfatlaður í eintóma ekta Jónassena. . . Einu gild- ir mig því ég er ekki ein af herra Stephensens „beundrere“ eða beundrerinder“ þótt mér geðjist að honum sem öðrum gáfuðum manni. Velbe konum þeim öllum, bara það gæti skipt honum milli sín, ég skildi ekki mæla þar eitt orð í móti.“ Vorið eftir var Magnús assesor ekki enn genginn út og enn skrifaði Þóra: „Þú mátt nú nærri geta að nokkur hafa netin verið riðin í vetur til að veiða hann í. Þau voru sjálfsagt öll úr silki. Samt veit ég það ekki með vissu því ég hef ekkert búið til. En af netunum er það að segja að öll sviku, ekkert hélt, því hann er svo digur og feitur að ég held að einungis þrefalt Lobb-bands- net gæti haldið honum. Ég held auk þess að maðurinn sé eða hafi verið í hlekkjum eða ástarfjötrum útlendrar meyjar og því var von að hann sliti öll bönd og sigraði öll blikk sem bæjarins jómfrúr hafa hugsað honum.“ Jónas Jónassen, ungi læknirinn, trúlofaðist hins vegar og var gaumgæfilega fylgst með öllu atferli hans og þeirrar heppnu. Þóra skrifaði: „Jónas Jónassen og Þórunn Havsteen eru náttúrlega þær lukkulegustu skepnur undir sólunni, en þau passa samt vel að láta ekki náungann sjá of mikið af lukku sinni. Þau skýla vel öllu því er slíku viðvíkur, betur en áður en þau trúlofuðust op- inberlega því að þá var hægt að sjá hvað í brjóstum þeirra bjó. En nú láta þau enga lesa í hjörtun. Þau leiðast ekki einu sinni á götu þótt versta veður sé heldur ganga þau lausbeisluð hvort í sínu lagi og passa að hafa mátulega mörg skref á milli sín. Þegar þau líta hvort til annars - í náungans viðurvist - þá eru þeirra „blikke“ svo köld og róleg að sá sem ekki vissi að þau væru trúlofuð gæti ómögulega ímyndað sér að svo væri. En þetta er víst allt upp á dönsku eða „af den fornemme Verd- en“, hvað heldur þú, ég heyri marga tala um þetta, en láttu samt ekki vita að ég hafi skrifað þér neitt um það.“ „GRANDE DAME“ FLYTUR TIL HAFNAR Já, svona var Reykjavík fyrir 120 árum. Björn Th. Björns- son listfræðingur telur að dætur og eiginkonur embættismanna hafi framan af einar myndað þá borgarastétt sem um var að ræða í Reykjavík: „Þær höfðu sæmilega rúmt um tíma, viljann - eða hégómagirndina - til þess að mennta sig að útlenskum móð. . . Að hugsunarhætti voru eiginmenn þeirra enn hálf- bændur, niðursokknir í búskaparvafstur og þjóðmál." Það er af þeim biskupsdætrum að segja að þær áttu báðar eftir að næla sér í eiginmenn og þá ekki af lakara taginu. Þegar árið Framhald á bls. 78 HEIMSMYND 77
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.