Fréttablaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 52
GRINDAVÍKURBÆR
GRINDAVÍKURBÆR
Tónlistarskólinn í Grindavík
auglýsir eftirfarandi stöður lausar
Tónlistarskólinn í Grindavík er nýlegur skóli byggður og
hannaður sem tónlistarskóli, skólinn er vel útbúinn og
starfsaðstaða öll til fyrirmyndar. Skólinn er ásamt bókasafni
viðbygging við grunnskóla staðarins og innangengt á milli
sem gerir það að verkum að auðvelt er að hefja skóladag-
inn strax að morgni. Tónlistarskólinn í Grindavík sér um
forskólakennslu í 1. – 3. bekk grunnskólans, hljóðfæra-
kennslu í 4. bekk og býður upp á valgreinar í 7. – 10. bekk
ásamt hefðbundnu hljóðfæranámi og fræðigreinum. Heima-
síða skólans er: http://www.grindavik.is/tonlistarskoli
Aðstoðarskólastjóri í 50% stöðu
Aðstoðarskólastjóri þarf að geta starfað sjálfstætt og verið
staðgengill skólastjóra. Mikilvægt er að viðkomandi sé
opinn fyrir nýjungum í þróun skólans. Nú er þróunarverkefni
í gangi við tónlistarskólann þar sem eftirfylgniaðferð er
nýtt við heimanám nemenda. Aðstoðarskólastjóri er með-
kennsluskyldu.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Menntun tónlistarkennara (tónl.kenn. III skv. kjarasamn.
FT/FÍH) eða meiri er æskileg
• Færni á tölvur og spjaldtölvur nauðsynleg
• Menntun og/eða reynsla af stjórnunarstörfum æskileg
• Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
• Færni og reynsla af píanókennslu og undirleik er kostur
• Mikilvægt er að viðkomandi sé opin fyrir nýjungum í þróun
skólans
Rytmískur tónlistarkennari í 50% stöðu
Starfið fellst í kennslu á slagverk, umsjá með skólahljóm-
sveit nemenda og kennslu í litlum hópum nemenda í 4. bekk.
Nú er þróunarverkefni í gangi við tónlistarskólann þar sem
eftirfylgniaðferð er nýtt við heimanám nemenda.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Menntun tónlistarkennara (tónl.kenn. III skv. kjarasamn.
FT/FÍH) eða meiri er æskileg
• Færni á tölvur og spjaldtölvur nauðsynleg
• Reynsla af tónlistarkennslu æskileg
• Færni á önnur rytmísk hljóðfæri æskileg
• Þekking og reynsla af hljóðupptökum er æskileg
• Mikilvægt er að viðkomandi sé opin fyrir nýjungum í þróun
skólans
Upplýsingar um störfin gefur skólastjóri, Inga Þórðardóttir
og hægt er að ná í hana í síma 420-1133 eða á netfanginu
inga@grindavik.is Umsóknum skal skilað ásamt ferilskrá á
sama netfang.
Umsóknarfrestur er til 25. maí 2019.
Sérfræðingur við verkefnið
Skólar á grænni grein
Grænfánaverkefni Landverndar
Landvernd óskar eftir að ráða sérfræðing við verkefnið Skólar
á grænni grein - Grænfánaverkefnið. Verkefnið er alþjóðlegt
menntaverkefni um umhverfismál og sjálfbærni sem rekið er í hátt í
200 skólum á öllum skólastigum á Íslandi. Um er að ræða 75% stöðu
frá 1. september 2019 með möguleika á aukningu á árinu 2020.
Ítarlegri upplýsingar um starfið má finna á heimasíðu Landverndar,
landvernd.is.
Umsókn og frestur
Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og greinagerð þar sem ástæða
umsóknar eru útlistuð, hæfni viðkomandi til að gegna starfinu er
lýst ásamt upplýsingum um tvo meðmælendur. Umsóknir skulu
sendar á caitlin@landvernd.is merktar „Grænfánaumsókn“.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2019
Nánari upplýsingar veitir
Katrín Magnúsdóttir
verkefnisstjóri
Skóla á grænni grein,
katrin@landvernd.is, s. 552-5242.
Byggðastofnun óskar eftir að ráða sérfræðing
á þróunarsvið stofnunarinnar. Byggðastofnun
rekur gagnagrunn á sviði byggðamála og eitt
af meginmarkmiðum með honum er að gera
byggðatengdar upplýsingar aðgengilegar í
gegnum vef. Notaður er PostgreSQL gagna-
grunnur og Apache vefþjónn sem keyrðir
eru á Linux.
Leitað er að starfsmanni til að viðhalda og þróa
gagnagrunninn, uppfæra og bæta við nýjum
byggðatengdum upplýsingum ásamt áfram-
haldandi þróun á framsetningu í gegnum vef.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af
landupplýsingakerfum, sé vanur að vinna
með gögn og setja fram upplýsingar á mynd-
rænan hátt. Einnig er þekking á vefsíðugerð
eða vefforritun æskileg.
Þá þarf viðkomandi að eiga auðvelt með að
túlka upplýsingar og setja niðurstöður fram
í ræðu og riti. Einnig þarf viðkomandi að vera
tilbúinn til að vinna að öllum þeim þáttum
byggðamála sem þróunarsviðið sinnir.
Hæfniskröfur:
• Háskólanám sem nýtist í starfi.
• Færni í að vinna með gögn.
• Reynsla af landfræðilegum
upplýsingakerfum.
• Reynsla af vefsíðugerð eða vefforritun.
• Reynsla af notkun á gagnagrunnum.
• Sjálfstæð vinnubrögð.
• Frumkvæði og lipurð í mannlegum
samskiptum.
• Hæfileiki til að koma fyrir sig orði
munnlega og skriflega.
Sérfræðingur á þróunarsviði
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF).
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 6. júní n.k. og skulu
umsóknir með upplýsingum um menntun og
starfsreynslu sendar til Byggðastofnunar,
Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki eða á netfangið:
postur@byggdastofnun.is
Nánari upplýsingar veitir Snorri Björn
Sigurðsson, forstöðumaður þróunarsviðs,
sími 455 5400 eða 895 8653.
. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
Byggðastofnun hefur það að markmiði
að vera eftirsóknarverður vinnustaður fyrir
hæfa og metnaðarfulla starfsmenn, konur jafnt
sem karla. 28 manns starfa hjá stofnuninni
sem hefur á að skipa vel menntuðu fólki með
fjölbreytta reynslu.
Byggðastofnun mun á árinu 2020 taka í notkun
nýtt húsnæði fyrir starfsemi sína þar sem
aðbúnaður allur verður eins og best gerist.
Sauðárkrókur er höfuðstaður Skagafjarðar og
einn öflugasti byggðakjarni landsbyggðarinnar.
Þar er fjölbreytt og öflugt atvinnulíf.
Fjölbreytt þjónusta er í boði, góðir skólar
á öllum skólastigum, frá leikskóla til háskóla,
kröftugt menningarlíf og öflugt íþróttalíf.
Íbúar Sauðárkróks eru um 2.600 talsins.
. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
Byggðastofnun | Ártorg 1 | 550 Sauðárkrókur
Þarftu að ráða
starfsmann?
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770
www.radum.is • radum@radum.is
Ráðum sérhæfir
sig í ráðningum og
mannauðs ráðgjöf.
Við komum til móts
við þarfir fyrirtækja
og sérsníðum
lausnir sem henta
hverjum viðskiptavini.
8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 8 . M A Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R