Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 77

Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 77
Ljósmyndasafn Reykjavíkur er miðstöð ljósmynda þar sem fortíð og nútími mætast. Markmið safnsins er að varðveita, safna og sýna bæði sögulega og samtímaljósmyndun í listrænu, félags- og menningarlegu sam- hengi. Í Ljósmyndasafninu eru nú um 6 milljónir ljósmynda af ýmsum stærðum og gerðum. Safneignin samanstendur að stærstum hluta af myndasöfnum sem færð eru Ljósmyndasafninu til varðveislu. Ljósmyndasafnið varðveitir bæði myndir frá atvinnumönnum og áhugamönnum í faginu, þær elstu eru frá því um 1860 og þær yngstu frá 2014. Myndefnið er æði fjölskrúðugt og má þar m.a. nefna mannamyndir teknar á ljós- myndastofum, ýmiskonar blaða-, iðnaðar-, landslags- og auglýsinga- ljósmyndir auk fjölbreyttrar f lóru mannlífs- og fjölskyldumynda. Mikilvægur þáttur í starfsemi safnsins er að auka aðgengi að safneigninni. Í gegnum myndavef safnsins (borgarsogusafn.is) er hægt að leita eftir myndefni og ljósmyndurum auk þess að kaupa myndir í gegnum vefinn. Hluti af starfi Ljósmyndasafns Reykjavíkur er að auka við myndavefinn og fer myndum fjölgandi með hverju ári. Safnið setur upp fjölda sýninga ár hvert þar sem markmiðið er að kynna íslenska ljósmyndara, sýna verk úr safneign sem og að sýna verk erlendra ljósmyndara. Á Alþjóðlega safnadaginn þann 18. maí, verður opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur ný sýning úr safnkosti sem ber heitið Íslensk kjötsúpa. Myndirnar á sýningunni eru eftir Krist- jón Haraldsson (1945-2011) en Kristjón starfaði sem iðnaðar- og auglýsingaljósmyndari í Reykja- vík. Hann lærði ljósmyndun hjá Leifi Þorsteinssyni í Myndiðn og í Iðnskólanum í Reykjavík. Kristjón rak ljósmyndastofuna Stúdíó 28, fyrstu árin með Kristjáni Pétri Guðnasyni ljósmyndara. Flestar myndirnar á sýningunni eru teknar á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Á sýningunni verða bæði myndir sem Kristjón tók fyrir auglýsingar, t.d. fyrir ullariðnaðinn og plötuumslög fyrir íslenska tónlistarmenn, og einnig myndir sem hann tók af fjölskyldu sinni og nærumhverfi í gömlu Reykjavík. Varpa allar þessar ljósmyndir skemmtilegu ljósi á tíðarandann og draga fram hversdaginn sem margir muna. Kristín Hauksdóttir Sýningin opnar kl. 15 á Alþjóðlega safnadaginn laugardaginn 18. maí. Allir eru velkomnir og ókeypis er inn á safnið í tilefni dagsins. Þar sem fortíð og nútíð mætast ÍMinjasafnsgarðinum stendur stór ljósmynd af garðveislu hjá Oddi C. Thorarensen apótekara í byrjun 20. aldar. Fyrir framan Nonnahús stendur par, líklega í öskudagsbúningi um aldamótin 1900. Það er ekki að ástæðulausu að ljósmyndirnar bjóða gestum í safnið. Minjasafnið á Akureyri býr yfir stórum fjársjóði mynda. Við safnið hefur verið starfrækt ljósmyndadeild síðan 1987 og hefur Hörður Geirsson safnvörður starfað við hana frá upphafi. Ljósmyndir hafa verið ríkur þáttur í bæjarlífi Akureyrar frá 1858 fram til dagsins í dag eins og ljósmyndakostur safnsins sýnir. Hann telur nú 3.000.000 eintök, allt frá glerplötum til stafrænna frummynda. Glerplötur eru elsta form ljósmyndasafnsins og eru 29% safnkostarins, filmur 38%, kópíur 7% og stafrænar myndir 26% og fer sá hluti safnkostarins sífellt stækkandi eins og gefur að skilja. Stærstur hluti mynda kemur frá atvinnu- og áhugaljós- myndurum en einnig úr fórum einstaklinga. Myndefnið er fjölbreytt og það er einnig notkun safnsins á ljós- myndunum. Þær eru notaðar í öllu starfi safnsins við sýningargerð, safnfræðslu, viðburði og markaðs- starf. Grunnurinn að því að nota þær eru rannsóknir og skráning ljósmyndanna og ekki síst að gera þær stafrænar. Rannsóknir á ljós- myndum eru fjölbreyttar, bæði er verið að skoða myndefnið en jafn- framt sögu ljósmyndaranna og ljósmyndatækni. Myndefnið getur gefið mikilvægar upplýsingar um þróun byggðar og umhverfis en ekki síður um daglegt líf fólks, t.d. fatnað þess og híbýli. Rannsóknir á ljósmyndarfinum leiddu Hörð, safnvörð ljósmynda- deildar, á nýjar en þó gamlar slóð- ir þegar hann hóf rannsóknir og tilraunir með votplötutækni, sem ekki hafði verið notuð á Íslandi í 125 ár. Áhugi Harðar kviknaði við rannsóknir á ljósmyndum Önnu Schiöth. Í safni hennar fann Hörður tvær glerplötur sem teknar voru með votplötutækni. Áhuginn var kviknaður og Hörður fór að grafast fyrir um aðferðirnar og efnafræðina á bak við hana. Hörður lét ekki þar við sitja heldur smíðaði eigin myndavél. Hvað eru votplötur? Votplata er blaut plata með Collodion upplausn. Collodion er bómull sem er leyst upp í eter og alkóhóli. Það límir silfur á plötuna og gerir hana ljósnæma. Þegar búið er að taka myndina er hún framkölluð í framköllunarvökva sem er vatnsupplausn með járni, sykri, örlitlu af ediksýru og alkó- hóli. Þetta þarf að gerast áður en myndin þornar. Skola þarf efnin vel af plötunni með eimuðu vatni áður en hún er böðuð í fixer og breytist við það úr negatívri mynd í pósitíva. Þrjár milljónir ljósmynda allt frá glerplötum til stafrænna Heildaráhrif sýningar-innar Börn í 100 ár, sem er í Safnahúsi Borgarfjarð- ar, er myndræn sem gerir hana einstaklega aðgengilega. Mikið er um að skólahópar sæki sýninguna heim enda eru söguefnin næg og rýmið sjálft höfðar mjög til barna. Á bak við ljósmyndirnar eru hólf þar sem sjá má muni frá Byggða- safni Borgarfjarðar sem er eitt safnanna í Safnahúsinu. Í miðju rýminu er upprunaleg baðstofa sem verðugur fulltrúi gamla tímans. Sýningin er hönnuð af Snorra Frey Hilmarssyni leikmyndahönn- uði sem leggur áherslu á læsileika og hughrif. Í sama húsnæði má einnig sjá aðra grunnsýningu Safnahúss, fuglasýninguna Ævintýri fuglanna sem einnig er hönnuð af Snorra. Stóri kosturinn við báðar sýningarnar er að það þarf ekki tungumál til að „lesa“ sig gegnum myndrænar frásagnirnar, heldur tala þær jafnt til allra. Í Safnahúsi eru alls fimm söfn, bókasafn og skjalasafn þar með talið. Þar eru haldnar lista- sýningar, fyrirlestrar og tónleikar auk grunnsýninganna tveggja sem eru opnar allt árið og draga að sér fjölda gesta. Á safnadaginn 18. maí verður opnuð þar sýning úr safn- kosti Listasafns Borgarness sem er eitt safnanna í húsinu. Sýningar- stjóri er Helena Guttormsdóttir. Safnahúsið í Borgarnesi hefur á liðnum árum öðlast mikilvægan sess sem menningarmiðstöð fyrir Borgarfjörð og nærsveitir. Starf- semin er mikilvæg samfélagslega þar sem þekkingu er miðlað á skapandi hátt. Guðrún Jónsdóttir Íslensk börn í 100 ár Kópía 1873, Fyrsta myndin af Akureyri sem vitað er um, tekin 1873 af Fredik Löve. Skuggi ljósmyndarans og mynda- vélarinnar sést hægra megin á myndinni. Garðveisla á Akureyri: Hallgrímur Einarsson. Sýningin Börn í 100 ár í Safnahúsi Borgarfjarðar er áhugaverð og fjölbreytt. Minjasafnið á Akureyri býr yfir stórum fjársjóði mynda. Við safnið hefur verið starfrækt ljósmyndadeild síðan 1987 og hefur Hörður Geirsson safnvörður starfað við hana frá upphafi. Fixerinn er skolaður af og platan sett í þurrkgrind. Að lokum er hún lökkuð með alkóhóllakki sem er búið til úr alkóhóli, lav- ender olíu og trjákvoðu frá Mar- okkó. Þar með er silfrið lokað inni og súrefnið kemst ekki að því. Það er ástæða þess hversu lengi slíkar plötur varðveitast, jafnvel 500 ár að talið er. Það þarf því að hafa hraðar hendur þegar teknar eru votplötu- myndir. Apríl 1974, fermingarveisla Ásgeirs Ásgeirssonar í fjölskyldu ljósmynd- ara. Tvær konur og strákur í eldhúsi. Önnur konan klæðist upphlut. LJÓSMYND/KRISTJÓN HARALDSSON Júlí 1982, myndataka fyrir Örtölvu- tækni sf. Stjórnsalur í Svartsengi, Svartsengisvirkjun. LJÓSMYND/KRISTJÓN HARALDSSON Ljósmyndir nýtast einnig öðrum en safninu t.d. við endur- gerð gamalla húsa ef finna þarf gluggasetningu eða gerð þeirra svo nýlegt dæmi sé tekið. Útgef- endur, fjölmiðlar og fræðimenn notast einnig við ljósmyndir safnsins. Grunnurinn að því að nota þær eru rannsóknir og skráning þeirra. Ljósmyndirnar eru sá hluti safn- kostar Minjasafnsins sem mest er leitað í, ekki síst eftir að hann er kominn heim í stofu til fólks á Sarpur.is, sem er gagnagrunnur sem flest íslensk söfn notast við. Almennir notendur hafa verið mikill liðsauki í rannsóknum á myndefninu gegnum Sarp þar sem hann býður fólki að senda upplýsingar um myndefnið. Ljós- myndir eru stór hluti daglegs lífs. Þær eru og verða mikilvæg heimild um fólk og mannlíf. Hvað tekur þú margar myndir á dag? Ætli allar matarmyndir, myndir af skóm og varningi endi á safni í framtíðinni? Haraldur Þ. Egilsson KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 8 . M A Í 2 0 1 9 SAFNABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.