Fréttablaðið - 18.05.2019, Side 80
Með í teyminu eru palestínsku bræðurnir Quays Mitwalli sem sér um
ljósabúnað í tökum og Muhannad
Mitwalli sem er aðstoðartökustjóri
og bílstjóri, og Ísraelsmaðurinn
Gil Shapiro sem aflar heimilda og
hefur sett upp viðtöl við viðmæl
endur myndarinnar.
Þetta er fyrsta mynd í fullri lengd
sem Baldvin vinnur að, en hann
hefur áður leikstýrt auglýsingum
og tónlistarmyndböndum. „Þetta
er mjög flott og stórt tækifæri fyrir
mig. Ingi Kristján Sigurmarsson
sem er grafískur hönnuður og með
limur Hatara, maðurinn á bak við
tjöldin, er gamall og góður vinur
minn. Hann var að fara að leikstýra
myndbandi við lagið Spillingar
dans. Þá fékk hann leiktæki frá
BDSMfélaginu og fékk mig inn í
verkefnið til að taka upp og leik
stýra með honum. Síðan eyddum
við um 14 klukkustundum í að
kveikja í, berja og binda hljóm
sveitarmeðlimi. Þarna hitti ég
meðlimi Hatara í fyrsta sinn og
fannst þeir vera áhugavert efni
til að taka upp. Ég ákvað að halda
áfram að fylgja þeim eftir tökurnar
á myndbandinu. Ég sá eitthvað
þarna, sem er orðið að þessu í dag.
Heimildarmyndin sem við erum að
vinna núna kviknaði upphaflega
út frá áhuga mínum á Hatara og að
fylgjast með gjörningi þeirra.“
Áhersla á myndrænu hliðina
Það kom þó ekki skýr mynd af
heimildarmyndinni sem Tattar
rattat og RÚV eru að framleiða
fyrr en Anna Hildur kom inn í
verkefnið, þegar Hatari sigraði í
Söngvakeppni sjónvarpsins í mars
á þessu ári. „Þá voru alls konar hug
myndir búnar að vera í gangi með
myndefnið sem Baldvin var búinn
að vera að taka upp síðastliðið ár,“
segir Anna. „Hatari hefur alltaf lagt
mikla áherslu á myndræna hlið
tónlistar sinnar, þannig að það er
til mjög mikið af myndefni sem
verður notað í myndinni, og svo
auðvitað myndefnið sem Baldvin
var búinn að taka upp.“
Bretarnir Iain Forsyth og Jane
Pollard eru yfirframleiðendur
myndarinnar og eiga Tattarrattat
með Önnu Hildi, en Forsyth og
Pollard gerðu heimildarmyndina
20.000 Days on Earth sem fjallar
um tónlistarmanninn Nick Cave
og feril hans, og var tilnefnd til
BAFTAverðlauna og fékk meðal
annars Sundanceverðlaunin. „Við
tókum svo samtal okkar á milli
og með Hatara um hvernig væri
hægt að gera heimildarmynd sem
gæti orðið áhugaverð á alþjóða
vísu,“ segir Anna, en Hatari hefur
ekki síður fengið athygli erlendis
vegna boðskapar síns um stefnu
ísraelskra stjórnvalda og um að
knésetja kapítalismann.
Tóku upp förina til Palestínu
Fyrsta skrefið í þróun hugmyndar
innar að myndinni er þátturinn
Fólkið á bak við búningana sem var
sýndur á RÚV og Anna og Baldvin
unnu að saman. Þátturinn fjallaði
um Hatara og væntingar þeirra til
afleiðinga af þátttöku sinni í Euro
vision. „Sá þáttur gefur góða mynd
af því sem við erum að hugsa með
myndina,“ segir Anna.
Tímarammi myndarinnar byrjar
á lokakvöldi undankeppni Euro
vision á Íslandi og endar á loka
kvöldinu í Tel Avív. Tökuliðið hefur
fylgt Hatara meðal annars í ferðum
til Betlehem, Jerúsalem, borgirnar
Hebron og Ramallah í Palestínu, í
viðtöl við fjölmiðla og að sjálfsögðu
baksviðs í undankeppnunum.
„Tökudagarnir eru búnir að vera
mjög langir hér úti, það er auðvitað
margt í gangi. Baldvin var baksviðs
að taka upp viðburði sem voru að
gerast þar í undankeppninni,“ segir
Anna. Svo var meðal annars tekið
upp Eurovisionpartí vinafélags
Íslendinga í Tel Avív sem var haldið
síðastliðinn miðvikudag.
Að sögn Önnu og Baldvins var
glatt á hjalla hjá Íslendingunum í
Ísrael eftir að í ljós kom að Ísland
kæmist áfram í úrslitakeppnina.
„Hér er náttúrulega stór hópur
af fjölskyldu og vinum meðlima
Hatara, það eru allir í skýjunum
yfir þessu. Starfsliði RÚV virðist
vera létt líka, að Ísland hafi loksins
náð að komast upp úr undan
keppnisriðlinum,“ segir Anna.
Myndin fjalli fyrst og fremst
um ferðalag þessa pólitíska bands
í keppninni að sögn Önnu. „Við
erum að fylgjast með því hvort
þeim takist að uppfylla markmið
sín. Hatari lofaði að setja mikilvæg
mál á dagskrá og stuðla að gagn
rýninni umræðu. Þau eru búin
að ná því, það væri bara bónus
að vinna keppnina, aukin athygli
og umræða um það sem Hatari
stendur fyrir er aðalmarkmiðið
með þátttökunni.“
Anna segir að skoðanir Ísraela
á Hatara séu misjafnar. „Sumum
finnst þau vera alveg að misskilja
ástandið, en margir eru ánægðir
með þá. Við höfum hitt töluvert
af listamönnum hér, og margir
þeirra taka undir það sem Hatari
er að gera. Fólk skiptist í tvo hópa
hér í Ísrael yfir þessu og kannski á
mörgum öðrum stöðum líka. En
Hatari hefur samt fengið jákvæða
umfjöllun á forsíðum ísraelskra
fjölmiðla. Við fáum bæði jákvæð og
neikvæð viðbrögð.“
Handviss um sigur í kvöld
Að lokum segist Baldvin vera hand
viss um að Hatari vinni keppnina í
kvöld. „Þau halda ótrauð áfram að
sigri og knésetningu kapítalism
ans.“
Hvernig sem úrslitin fara er ljóst
að framlag Íslands til keppninnar í
ár hefur vakið mikla athygli.
Eins og komið hefur fram er
myndin hugsuð fyrir alþjóðlegan
áhorfendahóp og áhuginn á Hatara
virðist vaxa frá degi til dags, hvort
sem fólk er sammála þeim eða ekki,
og hvort sem mönnum er misboðið
vegna BDSMbúninganna eða
fjárfesti í slíkum galla fyrir Euro
visionpartíið.
Anna og Baldvin eru á vegum
kvikmyndaframleiðslufyrirtækis
ins Tattarrattat og RÚV. Búist er við
að myndin um Eurovisiongjörning
Gera heimildarmynd um Hatara
Hatari stígur aftur á svið í Tel Avív á úrslitakvöldi Eurovision í kvöld. Umræðan og ferlið í
kringum þátttöku Hatara í keppninni í ár hefur verið skrásett í mynd og hljóði af Önnu Hildi
Hildibrandsdóttur, framleiðanda og leikstjóra, og Baldvini Vernharðssyni tökustjóra.
Lengst til vinstri er Quays Mitwalli, í miðjunni eru Anna Hildur og Muhannad Mitwalli, aðstoðartökumaður og bílstjóri, við hlið hans er Baldvin.
Sólrún Freyja
Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Ég ákvað að halda
áfram að fylgja
þeim eftir tökurnar á
myndbandinu. Ég sá eitt-
hvað þarna sem er orðið
að þessu í dag.
Baldvin Vernharðsson
ÚT Á GRANDA
Grandagarði 3, 101 Reykjavík, Sími 552 9940 | Opið mán.–fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 10–16
Einlitar barnavöðlur
st. 20-35
Gott úrval af vönduðum
veiðisettum fyrir
börn á öllum aldri
Verð frá 5.900 kr.Verð frá 7.900 kr.
Camo vöðlur,
veiðivesti
og derhúfa
Verð 10.900 kr.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . M A Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R