Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 80

Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 80
Með í teyminu eru palest­ínsku bræðurnir Quays Mitwalli sem sér um ljósabúnað í tökum og Muhannad Mitwalli sem er aðstoðartökustjóri og bílstjóri, og Ísraelsmaðurinn Gil Shapiro sem aflar heimilda og hefur sett upp viðtöl við viðmæl­ endur myndarinnar.  Þetta er fyrsta mynd í fullri lengd sem Baldvin vinnur að, en hann hefur áður leikstýrt auglýsingum og tónlistarmyndböndum. „Þetta er mjög flott og stórt tækifæri fyrir mig. Ingi Kristján Sigurmarsson sem er grafískur hönnuður og með­ limur Hatara, maðurinn á bak við tjöldin, er gamall og góður vinur minn. Hann var að fara að leikstýra myndbandi við lagið Spillingar­ dans. Þá fékk hann leiktæki frá BDSM­félaginu og fékk mig inn í verkefnið til að taka upp og leik­ stýra með honum. Síðan eyddum við um 14 klukkustundum í að kveikja í, berja og binda hljóm­ sveitarmeðlimi. Þarna hitti ég meðlimi Hatara í fyrsta sinn og fannst þeir vera áhugavert efni til að taka upp. Ég ákvað að halda áfram að fylgja þeim eftir tökurnar á myndbandinu. Ég sá eitthvað þarna, sem er orðið að þessu í dag. Heimildarmyndin sem við erum að vinna núna kviknaði upphaflega út frá áhuga mínum á Hatara og að fylgjast með gjörningi þeirra.“ Áhersla á myndrænu hliðina Það kom þó ekki skýr mynd af heimildarmyndinni sem Tattar­ rattat og RÚV eru að framleiða fyrr en Anna Hildur kom inn í verkefnið, þegar Hatari sigraði í Söngvakeppni sjónvarpsins í mars á þessu ári. „Þá voru alls konar hug­ myndir búnar að vera í gangi með myndefnið sem Baldvin var búinn að vera að taka upp síðastliðið ár,“ segir Anna. „Hatari hefur alltaf lagt mikla áherslu á myndræna hlið tónlistar sinnar, þannig að það er til mjög mikið af myndefni sem verður notað í myndinni, og svo auðvitað myndefnið sem Baldvin var búinn að taka upp.“ Bretarnir Iain Forsyth og Jane Pollard eru yfirframleiðendur myndarinnar og eiga Tattarrattat með Önnu Hildi, en Forsyth og Pollard gerðu heimildarmyndina 20.000 Days on Earth sem fjallar um tónlistarmanninn Nick Cave og feril hans, og var tilnefnd til BAFTA­verðlauna og fékk meðal annars Sundance­verðlaunin. „Við tókum svo samtal okkar á milli og með Hatara um hvernig væri hægt að gera heimildarmynd sem gæti orðið áhugaverð á alþjóða­ vísu,“ segir Anna, en Hatari hefur ekki síður fengið athygli erlendis vegna boðskapar síns um stefnu ísraelskra stjórnvalda og um að knésetja kapítalismann. Tóku upp förina til Palestínu Fyrsta skrefið í þróun hugmyndar­ innar að myndinni er þátturinn Fólkið á bak við búningana sem var sýndur á RÚV og Anna og Baldvin unnu að saman. Þátturinn fjallaði um Hatara og væntingar þeirra til afleiðinga af þátttöku sinni í Euro­ vision. „Sá þáttur gefur góða mynd af því sem við erum að hugsa með myndina,“ segir Anna. Tímarammi myndarinnar byrjar á lokakvöldi undankeppni Euro­ vision á Íslandi og endar á loka­ kvöldinu í Tel Avív. Tökuliðið hefur fylgt Hatara meðal annars í ferðum til Betlehem, Jerúsalem, borgirnar Hebron og Ramallah í Palestínu, í viðtöl við fjölmiðla og að sjálfsögðu baksviðs í undankeppnunum. „Tökudagarnir eru búnir að vera mjög langir hér úti, það er auðvitað margt í gangi. Baldvin var baksviðs að taka upp viðburði sem voru að gerast þar í undankeppninni,“ segir Anna. Svo var meðal annars tekið upp Eurovision­partí vinafélags Íslendinga í Tel Avív sem var haldið síðastliðinn miðvikudag. Að sögn Önnu og Baldvins var glatt á hjalla hjá Íslendingunum í Ísrael eftir að í ljós kom að Ísland kæmist áfram í úrslitakeppnina. „Hér er náttúrulega stór hópur af fjölskyldu og vinum meðlima Hatara, það eru allir í skýjunum yfir þessu. Starfsliði RÚV virðist vera létt líka, að Ísland hafi loksins náð að komast upp úr undan­ keppnisriðlinum,“ segir Anna. Myndin fjalli fyrst og fremst um ferðalag þessa pólitíska bands í keppninni að sögn Önnu. „Við erum að fylgjast með því hvort þeim takist að uppfylla markmið sín. Hatari lofaði að setja mikilvæg mál á dagskrá og stuðla að gagn­ rýninni umræðu. Þau eru búin að ná því, það væri bara bónus að vinna keppnina, aukin athygli og umræða um það sem Hatari stendur fyrir er aðalmarkmiðið með þátttökunni.“ Anna segir að skoðanir Ísraela á Hatara séu misjafnar. „Sumum finnst þau vera alveg að misskilja ástandið, en margir eru ánægðir með þá. Við höfum hitt töluvert af listamönnum hér, og margir þeirra taka undir það sem Hatari er að gera. Fólk skiptist í tvo hópa hér í Ísrael yfir þessu og kannski á mörgum öðrum stöðum líka. En Hatari hefur samt fengið jákvæða umfjöllun á forsíðum ísraelskra fjölmiðla. Við fáum bæði jákvæð og neikvæð viðbrögð.“ Handviss um sigur í kvöld Að lokum segist Baldvin vera hand­ viss um að Hatari vinni keppnina í kvöld. „Þau halda ótrauð áfram að sigri og knésetningu kapítalism­ ans.“ Hvernig sem úrslitin fara er ljóst að framlag Íslands til keppninnar í ár hefur vakið mikla athygli. Eins og komið hefur fram er myndin hugsuð fyrir alþjóðlegan áhorfendahóp og áhuginn á Hatara virðist vaxa frá degi til dags, hvort sem fólk er sammála þeim eða ekki, og hvort sem mönnum er misboðið vegna BDSM­búninganna eða fjárfesti í slíkum galla fyrir Euro­ visionpartíið. Anna og Baldvin eru á vegum kvikmyndaframleiðslufyrirtækis­ ins Tattarrattat og RÚV. Búist er við að myndin um Eurovision­gjörning Gera heimildarmynd um Hatara Hatari stígur aftur á svið í Tel Avív á úrslitakvöldi Eurovision í kvöld. Umræðan og ferlið í kringum þátttöku Hatara í keppninni í ár hefur verið skrásett í mynd og hljóði af Önnu Hildi Hildibrandsdóttur, framleiðanda og leikstjóra, og Baldvini Vernharðssyni tökustjóra. Lengst til vinstri er Quays Mitwalli, í miðjunni eru Anna Hildur og Muhannad Mitwalli, aðstoðartökumaður og bílstjóri, við hlið hans er Baldvin. Sólrún Freyja Sen solrunfreyja@frettabladid.is Ég ákvað að halda áfram að fylgja þeim eftir tökurnar á myndbandinu. Ég sá eitt- hvað þarna sem er orðið að þessu í dag. Baldvin Vernharðsson ÚT Á GRANDA Grandagarði 3, 101 Reykjavík, Sími 552 9940 | Opið mán.–fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 10–16 Einlitar barnavöðlur st. 20-35 Gott úrval af vönduðum veiðisettum fyrir börn á öllum aldri Verð frá 5.900 kr.Verð frá 7.900 kr. Camo vöðlur, veiðivesti og derhúfa Verð 10.900 kr. 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . M A Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.