Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 86

Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 86
Helena Jónsdóttir f ö r ð u n a r f r æ ð -ingur leggur mikið upp úr náttúru-legri förðun og er sjálf hrifin af húð- vörum úr lífrænum og náttúru- legum efnum. Hún sá um förðun í nýrri herferð 66°N, Swimslow, og nokkur verkefni í tímaritinu Blæti. Síðan er margt spennandi fram undan í sumar. Ég verð í nokkra daga aðstoðarsminka í bíómynd og fer í ferð til Hong Kong og Víetnam með Vesturporti. Helena farðaði yngri systur sína, Lindu, og hafði í huga að útlitið gæti hentað í Eurovision-partí. „Þar sem Hatari er okkar framlag til Eurovison í ár er allt leyfilegt. Ég er svo heppin að eiga yndislega systur sem var módel fyrir mig og ég hannaði útlit sem væri geggjað fyrir kvöldið og punkturinn yfir i-ið er að nota fallega skartið frá Hildi Yeoman,“ segir Helena. Hvaða tískustraumar eru mest áberandi núna hjá tískuhúsunum? „Það sem er helst í gangi núna eru skærir litir á augum eða vörum þó ekki á sama tíma og mjög nátt- úruleg húð á móti. Svo er mikið um milda jarðliti og ljóma í húðinni. Það var mjög fallegt að sjá nýjustu Valentino-sýn- inguna þar sem unnið var mikið með þessa strauma og var það meistarinn hún Pat MacGrath sem sá um förðunina.“ Hvað finnst þér fallegt? „Glóandi húð er undir- staðan í fallegri förðun og ég gef mér alltaf auka tíma í hana ef þörf er á. Mér finnst náttúruleg förðun með kremuðum highlighter, bronser og kinnalit koma ótrúlega vel út. Annað sem ég elska eru dökk augu með kattar- eyeliner, bleikar kinnar og nude varir.“ Hver er uppáhaldsfarðinn þinn á sumrin? „Ég nota steinefnafarðann frá Jane Iridale og hef gert það í nokkur ár. Fullkominn farði fyrir viðkvæma húð og gefur góðan raka og fallegan ljóma. Þetta er eins konar farði í hyaluronic serumi sem vinnur á fínum línum og róar húðina. Síðan Náttúruleg húð og skærir litir Þær vörur sem Helena notar mest sjálf. Steinefna­ púður og krem frá Jane Iredale, Chanel kola­ blýantur og augnskuggi frá MAC. Og náttúru­ legar vörur Marie Veronique. Helena farðar systur sína, Lindu, í anda Hatara. Hún er hrifin af skærum litum á augu eða varir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Helena Jónsdóttir förðunarfræðingur gefur hugmynd að skemmtilegri förðun fyrir Eurovision­ partíið. nota ég Glow time sem er frá sama merki sem hyljara. Þessar vörur eru cruelty free og án allra aukaefna.“ Hvaða húðvörum mælir þú með? „Daglega nota ég andlitsnæringu sem ég blanda sjálf, hún inniheldur lífræna rósaberjaolíu, hreinan aloe vera safa og haf þyrnisolíu. Marie Veronique er nýja uppá- haldsmerkið mitt og var það vin- kona mín sem er algjör heilsu- gúru sem benti mér á þær vörur. Ég elska retinol næturkremið, raka- maskann, probiotics andlitsspreyið og pure + E.O. hreinsinn frá þeim. Þótt það sé mikilvægt að nota góðar húðvörur skiptir jafn miklu máli að taka góðar olíur inn, t.d. kvöldvorrósarolíu eða omega 3-7-9, og drekka vel af vatni. Andlitsnudd og köld sturta er líka eitthvað sem ég hef mikla trú á.“ Hvaða sólarvörn mælir þú með til að nota dagsdaglega? „Sólarvörnin frá Marieveronique er algjört „must have“ í sumar. Hún inniheldur brokkólífræolíu og astaxanthin sem ver húðina nátt- úrulega fyrir sólargeislum. Einn- ig er grænt te, þörungar og ferulic sýra í henni sem vinna gegn öldrun húðar.“ Hvaða fimm hlutir eru bráðnauð- synlegir í snyrtibuddunni þinni? „Rakakrem, farði, augnhára- brettari, dökkbrúnn Chanel kola- blýantur, quite natural paint pot augnskugginn frá Mac og síðan eru RMS beauty vörurnar í miklu uppá- haldi. Ég nota þær mikið bæði per- sónulega og í f lest verkefni. Þær vörur eru cruelty free, non-gmo, gluten free og soy free sem er geggjað, ég legg mikla áherslu á að nota hreinar vörur.“ – kbg Helen a not aði meða l ann ars O mbre Satin Gree n mil e og Blue Lago on sp arkle pow der frá Cl arins á aug un. 1 8 . M A Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.