Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 92

Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 92
Elsku mamma, tengdamamma og amma, Soffía Ólafsdóttir frá Syðra-Velli, Gaulverjabæjarhreppi, áður til heimilis að Engjavegi 12, Selfossi, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Fossheimum, Selfossi, þriðjudaginn 14. maí. Útförin fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 21. maí klukkan 14. Elínborg Jónsdóttir Rannveig Jónsdóttir Bjarni Guðmundsson Kjartan Jónsson Hieke Bakker Margrét Jónsdóttir Jón Ágúst Jónsson Jarþrúður Jónsdóttir Guðmundur Gils Einarsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Björn Þ. Guðmundsson fyrrum lagaprófessor, lést á Landakoti 16. maí. Þórunn Bragadóttir Guðmundur Björnsson Hekla Valsdóttir Bragi Björnsson Ragna Björk Ragnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, Sigrúnar Óskarsdóttur Ágúst Óskar Sigurðsson Anna María Úlfarsdóttir Anna Þórdís Sigurðardóttir Rainer Lischetzki Edda Björk Sigurðardóttir Jón Ármann Guðjónsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Brynja Unnur Magnúsdóttir frá Súgandafirði, lést á heimili sínu í Kópavogi laugardaginn 11. maí. Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 21. maí kl. 13. Magnús B. Erlingsson Kristín Guðmundsdóttir Þorsteinn Erlingsson Elin Anita Nilsen Hjálmar Erlingsson Scarlet Cunillera Unnur Sig. Erlingsdóttir Einar Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg systir okkar og frænka, Guðný Höskuldsdóttir Kistuholti 5c, Bláskógabyggð, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands fimmtudaginn 9. maí. Útför fer fram frá Skálholtsdómkirkju fimmtudaginn 23. maí kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Elín Höskuldsdóttir Tinna Dögg Tryggvadóttir Hildur Ýr Tryggvadóttir Inga Hanna Gunnarsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigurbjörg Sæmundsdóttir frá Stóru-Mörk, lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð 12. maí sl. Útför hennar fer fram frá Seljakirkju 23. maí nk. kl. 15.00. Anna María Bjarnadóttir Ingvar Þorvaldsson Ásmundur Bjarnason Hafþór Bjarnason Brynja Dadda Sverrisdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, Vigdísar Guðfinnsdóttur sem lést 26. apríl. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu í Reykjavík fyrir einstaka umönnun og hlýju. Marta Loftsdóttir Gunnar Jóhannsson Svava Loftsdóttir Ásmundur Kristinsson Pétur Guðfinnsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Guðjónsdóttir lést 12. apríl síðastliðinn. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Guðjón H. Bernharðsson Helga Jónsdóttir Guðmundur Bernharðsson Þórunn Jarla Valdimarsdóttir börn og barnabörn. Stuðningsfélagið Kraftur er tvítugt á þessu ári og heldur upp á þau tímamót í heilt ár. „Afmælið er ekki fyrr en 20. október en við byrjuðum strax í janúar að fagna því og erum með viðburð í hverjum einasta mánuði,“ segir nýkjörinn formaður Krafts, Elín Skúladóttir sem búin er að vera í stjórn félagsins í eitt ár. Hlaupið Lífið er núna sem verður á morgun, sunnudag, er maíviðburður­ inn. Það er ætlað almenningi og fer fram við Háskólann í Reykjavík, sunnan í Öskjuhlíðinni. „Þá hvetjum við alla til að koma og njóta líðandi stundar með okkur,“ segir Elín. Hún bendir á að skemmtidagskrá hefjist klukkan 15 þar sem Jón Jónsson og Sirkus Íslands komi fram og hoppkastalar verði á staðnum auk þess sem boðið verði upp á upp­ hitun með Elísabetu Margeirsdóttur hlaupakonu. „Fólk ræður svo hvort það labbar eða hleypur en það borgar fyrir að taka þátt og allur ágóði rennur að sjálfsögðu til Krafts,“ tekur Elín fram. „Með þátt­ tökunni fær það boli með áletruninni Lífið er núna sem er okkar slagorð. Einnig velur það hvort það ákveður að fara einn og hálfan kílómetra eða fimm kílómetra. Þetta er spurning um að vera með okkur, koma saman og hafa gaman.“ Hlaupið verður frá HR, út með Naut­ hólsvíkinni, fyrir f lugvöllinn og vestur á Ægisíðu, að sögn Elínar. Þar verður snúið við. „Það eru verðlaun fyrir 1. sæti karla og kvenna en aðalatriðið er að vera með og við erum með fullt af frábærum útdráttarverðlaunum.“ Elín áréttar það að afmælisdagskráin standi allt árið og lýsir því sem þegar hefur farið fram. „Í janúar vorum við með „festival“ fyrir alla félagsmenn þar sem fólk gat valið úr fimmtán vinnu­ stofum og svo var skemmtun um kvöld­ ið. Í febrúar sendum við í loftið fyrsta hlaðvarpsþáttinn okkar í samstarfi við Herbert Geirsson. Hann tekur viðtal við einhvern félagsmann Krafts sem segir frá sinni reynslu og aðra hvora viku kemur nýr þáttur í loftið. Við endurút­ gáfum líka bókina Lífskraftur, í henni er fjölmargt sem fólk vill vita þegar krabbamein er annars vegar. Bókin kom fyrst út 2003 en við ákváðum að gefa hana út aftur og nú í annarri mynd, gerðum hana að handbók sem er auð­ veldari aflestrar. Út frá henni settum við líka efni á vefinn okkar, kraftur.org þar sem fólk getur fengið svör við alls konar spurningum á fræðsluvefnum.“ Í lokin bætir hún við lýsingu á mars­ viðburðinum. „Við vorum með örráð­ stefnu í Stúdentakjallaranum sem bar það skemmtilega heiti Fokk, ég er með krabbamein – það er stundum það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar það greinist.“ gun@frettabladid.is Það er kraftur í Krafti Lífið er núna, er slagorð Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og líka yfirskrift hlaups á vegum félagsins á morgun. Elín Skúladóttir er nýkjörinn formaður Krafts, hún er búin að vera í stjórn í eitt ár. „Þetta er spurning um að vera með okkur, koma saman og hafa gaman,“ segir Elín. 1 8 . M A Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R42 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.