Fréttablaðið - 04.09.2018, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 04.09.2018, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 0 8 . T Ö L U B L A Ð 1 8 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 m við gerum á Dale Carnegie námskeiðinu:Það se ka þægindahringinn og auka sjálfstraust• Stæk samskiptafærni og rækta varanleg sambönd• Auka leiðtogafærni og veita öðrum innblástur• Sýna na álagi, stjórna og viðhorfi• Stjór að tala fyrir framan hóp og líða vel • Þora keið hefjast:Náms tember – Kvöldnámskeið (uppselt)17. sep tember – Kvöldnámskeið 27. sep óber – Kvöldnámskeið 10. okt ber – Morgunnámskeið2. októ Næst á dagskrá er mannlegi þátturinn Copyright © 2018 Dale Carnegie & Associates, Inc. All rights reserved. 5x5_Ad_083118_ice Ókeypis kynningartími mánudaginn 12. september – Skráning á dale.is/einstaklingar Nánari upplýsingar á dale.is eða 555 7080 Sif Atladóttir og aðrar landsliðskonur voru á fullu við undirbúning fyrir síðasta leik riðilsins í undankeppninni fyrir HM þegar ljósmyndara bar að garði í gær. Ísland leikur gegn Tékklandi klukkan 15 í dag og getur með sigri eða jafntefli tékkað sig inn í umspilið. Ísland tekur toppsætið ef vinkonur okkar í Færeyjum leggja Þjóðverja. Sjá síðu 10. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI VOPNAFJÖRÐUR Vopnafjarðar- hreppur gleymdi árið 2004 að upp- færa iðgjaldaprósentu sem vinnu- veitandi til Stapa lífeyrissjóðs. Allt til ársins 2016 greiddi hreppurinn því of lágt iðgjald til sjóðsins fyrir þá starfs- menn sína sem eru í lífeyrissjóðnum. Oddviti Samfylkingarinnar segir að um mannleg mistök sé að ræða og að viðræður séu í gangi við sjóðinn um uppgjör á því sem upp á vantar. Málið var tekið fyrir á síðasta fundi hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps þar sem Þóri Steinarssyni sveitar- stjóra var falið að vinna að málinu ásamt lögmanni hreppsins. „Skuldin nemur um 66 milljónum króna. Unnið er að því að ganga frá málinu í samráði við sjóðinn,“ segir Þór í samtali við Fréttablaðið. Í upphafi árs voru íbúar sveitar- félagsins um 650 og hefur þeim fækkað nokkuð á síðustu árum og áratugum. Til samanburðar voru á sama tíma um 126 þúsund íbúar í Reykjavík. Skuld Vopnafjarðarhrepps er í samanburði eins og að Reykjavík skuldaði lífeyrissjóði um 12,5 millj- arða króna. „Það var auðvitað smá sjokk þegar þetta kom í ljós. Þetta eru fyrst og fremst mannleg mistök sem við þurfum að vinna úr og leysa,“ segir Bjartur Aðalbjörnsson, oddviti Sam- fylkingarinnar í meirihluta Vopna- fjarðarhrepps Fjölmargir íbúar hreppsins eru í lífeyrissjóðnum og því er um stórar upphæðir að ræða fyrir lítið sveitar- félag. Bjartur segir að samtalið við Stapa gangi út á að endurgreiðsla hreppsins til lífeyrissjóðsins verði ekki íþyngjandi fyrir sveitarsjóð. „Hér er um nokkuð langt tímabil að ræða. Á þeim forsendum snúast sam- skipti okkar við Stapa um að greiða þetta niður með einhverjum hætti sem er hagfelldur fyrir báða aðila,“ segir Bjartur. – sa Hreppur skuldar tugi milljóna fyrir mistök Vopnafjarðarhreppur greiddi Stapa lífeyrissjóði of lágt iðgjald vegna starfs- manna sinna í rúman áratug. Skuld hreppsins nemur 66 milljónum króna. Gríðarstór reikningur fyrir svo lítið sveitarfélag. Mannleg mistök segir oddviti. Bjartur Aðalbjörnsson. SKOÐUN Afstaða Lífar Magneu- dóttur borgarfulltrúa Vinstri grænna gegn því að gera bólusetn- ingar að skilyrði fyrir inngöngu barna á leikskóla í Reykja- vík, líkt og Hildur Björns- dóttir borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins  hefur lagt til, stangast á við grundvallarprins- ipp sósíalismans og ruglar Kára Stefánsson í ríminu. Sjá síðu 9 Líf ruglar Kára LÍFIÐ Fréttablaðið fjallar um ýmis boð og bönn sem Alþingi hefur sam- þykkt í ljósi nýrrar reglugerðar heil- brigðisráðherra um tilkynningar til Neytendastofu um markaðssetn- ingu rafrettna og áfyllinga fyrir raf- rettur sem innihalda nikótín. Meðal annars er farið yfir frum- varp Jónasar frá Hriflu um varnir gegn  kynsjúkdómum, hræðsluna við Kanasjónvarpið og ýmis reyk- ingabönn. Sjá síðu 20 Boð og bönn fortíðarinnar Fréttablaðið í dag SKOÐUN Þórólfur Matthíasson skrifar um mjólkurhækkanir. 9 SPORT Kvennalandsliðið þarf hörku og hugrekki í dag. 10 TÍMAMÓT Fyrsta verk nýs bæjar- stjóra Hornafjarðar að hitta Guðmund umhverfisráðherra. 12 PLÚS 2 SÉRBLÖÐ ● FÓLK ● BÍLAR *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Kári Stefánsson. STJÓRNMÁL Alþingi kemur saman eftir viku og má búast við átökum um fjárlög, kjaramál og veiðigjöld. Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar verður kynnt strax eftir helgi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar spáir því að þar að auki verði umræður um heil- brigðismál áberandi í vetur. – aá / sjá síðu 4 Stóru málin á komandi þingi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.