Fréttablaðið - 04.09.2018, Page 2
Veður
Fremur hæg suðlæg átt í dag og
víða dálítil rigning eða skúrir, síst þó
norðaustanlands. SJÁ SÍÐU 14
Instagram eða dauði
Það er ýmislegt lagt á sig fyrir hina fullkomnu Instagram-mynd. Þessir ferðamenn við Gullfoss í gær voru aðeins hluti þeirra fjölmörgu sem
streymdu inn fyrir afgirt svæði og hunsuðu augljósar bannmerkingar. Ljósmyndari Fréttablaðsins fangaði glæfraskap þessara þriggja þar sem þau
skiptust á að klifra út á brúnina til að stilla sér upp fyrir mynd. Fyrir neðan beið þeirra dauði og lítið hefði þurft til að illa færi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Akstur undir áhrifum vímuefna er
aldrei réttlætanlegur. Ökum allsgáð.
Minningarsjóður Lovísu Hrundar | lovisahrund.is
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið leikur í dag á Laugardalsvelli
afar mikilvægan leik við Tékkland
í undankeppni HM. Með sigri á
Ísland góða von um sæti í umspili
um laust sæti á HM á næsta ári.
Jafntefli gæti dugað en þá þyrftu
önnur úrslit að vera hagstæð.
Leiktíminn í dag er óvenjulegur
fyrir leik í miðri viku en hann hefst
kl. 15. Ástæðan er sú að spila þarf þá
leiki á sama tíma sem geta haft áhrif
á það hvaða lið komast beint á HM
eða í umspilið. Einn þeirra fer fram
í Kasakstan en tímamunur á Íslandi
og Kasakstan er sex klukkustundir.
Klara Bjartmarz framkvæmda-
stjóri KSÍ segir að þessum leiktíma
hafi verið mótmælt en sambandið
skilji rökin á bak við þetta. „Vonandi
verður þetta lagað og verður ekki
vandamál í framtíðinni.“
Hún segist ekki búast við miklu
fjölmenni og þá verði ekki sett upp
sérstakt stuðningsmannasvæði fyrir
leikinn eins og undanfarið. Sam-
kvæmt upplýsingum frá KSÍ höfðu
síðdegis í gær selst um tvö þúsund
miðar á leikinn.
„Við finnum það að fólk vill koma
en getur það ekki til dæmis vegna
vinnu. Markmið okkar er skýrt. Við
ætlum að spila leikinn og fá þrjú
stig. Annað skiptir minna máli.“
Þorkell Máni Pétursson spark-
spekingur viðurkennir að leiktím-
inn sé mjög sérstakur. „Tímasetn-
ingin er samt frábær að því leyti að
fólk getur hætt snemma í vinnunni
á þriðjudegi. Ég held að þetta verði
ekki vandamál. Allir sem munu vilja
fá frí munu fá það. Annað kæmi mér
verulega á óvart í jafn réttsýnu sam-
félagi og okkar.“
Hann bendir á að margir vinnu-
staðir hafi gefið frí þegar karlalands-
liðið var að spila á HM í sumar.
Varðandi sjálfan leikinn segir Þor-
kell Máni að það sé alltaf hætta á að
leikurinn við Þjóðverja sitji í liðinu.
„Ég hef samt trú á því að við siglum
þessu heim. Við erum með það gott
lið að við eigum að vinna leikinn en
þetta verður erfitt.“
Eins og fram hefur komið var
uppselt á leikinn við Þýskaland á
laugardaginn. „Þótt það væri frá-
bært að komast á HM held ég að
stærsti sigurinn hafi klárlega verið
fullur völlur á laugardaginn. Að hafa
fengið um tíu þúsund manns á völl-
inn. Við munum alltaf eiga það.“
Leikurinn verður sýndur í beinni
útsendingu á Stöð 2 Sport í opinni
dagskrá. sighvatur@frettabladid.is
Trúir því að fólk fái frí
til að fara á leikinn
Framkvæmdastjóri KSÍ segir tímasetningu leiks Íslands og Tékklands í undan-
keppni HM kvenna óheppilega en aðalatriðið sé að spila leikinn og fá þrjú stig.
Þorkell Máni Pétursson segir frábært að fólk geti hætt fyrr í vinnu á þriðjudegi.
Laugardalsvöllur verður ekki jafn þéttsetinn í dag og á laugardaginn þegar tæp-
lega tíu þúsund manns mættu á leik Íslands og Þýskalands. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þótt það væri
frábært að komast á
HM held ég að stærsti
sigurinn hafi klárlega verið
fullur völlur á
laugardaginn.
Þorkell Máni
Pétursson
sparkspekingur
DÓMSMÁL Saksóknari fer fram á
sextán ára fangelsi yfir Val Lýðssyni
fyrir að bana bróður sínum, Ragnari
Lýðssyni, á bænum Gýgjarhóli II um
páskana. Þetta kom fram í munnleg-
um málflutningi fyrir Héraðsdómi
Suðurlands í gær.
Þýskur réttarmeinafræðingur bar
vitni um það að þung högg á höf-
uðið og í síðu hefðu orðið til þess
að Ragnar lést.
Kolbrún Benediktsdóttir vara-
héraðssaksóknari sagði að Val hefði
ekki getað dulist að árásin hefði
getað leitt til dauða bróður hans,
en Valur ber við minnisleysi sökum
áfengisneyslu.
Fyrir hönd barna Ragnars er farið
fram á 40 milljónir króna í bætur.
Ragnar fannst látinn á heimili
Vals að Gýgjarhóli II eftir að hafa
heimsótt bróður sinn í félagi við
þriðja bróðurinn á föstudaginn
langa. – smj
Fer fram á 16 ára
dóm yfir Val
DÓMSMÁL Sjömenningarnir Sindri
Þór Stefánsson, Matthías Jón Karls-
son, Pétur Stanislav, Hafþór Logi
Hlynsson, Ívar Gylfason, Kjartan
Sveinarsson og Viktor Ingi Jónasson
hafa verið ákærðir fyrir stórfelldan
þjófnað á tölvubúnaði úr gagna-
verum í Reykjanesbæ og Borgarnesi
síðastliðinn vetur. Búnaðurinn var
notaður til bitcoin-vinnslu.
Þeim er gefið að sök að hafa lagt
á ráðin, skipulagt, framkvæmt eða
átt aðild að innbrotum og þjófn-
uðum í gagnaver í Reykjanesbæ og
í Borgarnesi í desember í fyrra og
ársbyrjun á þessu ári. Í innbrot-
unum var tölvubúnaði fyrir 42,5
milljónir króna stolið en tjónið af
völdum innbrotanna er metið á 78
milljónir króna. Þetta kemur fram í
ákæruskjali gegn mönnunum sjö en
aðkoma þeirra að málunum er ólík.
Í ákærunni kemur meðal annars
fram að einn mannanna, Ívar, hafi
látið Sindra Þór, Matthíasi Jóni og
Pétri í té fatnað merktan öryggis-
fyrirtæki til að klæðast við inn-
brotið og þjófnaðinn.
Við rannsókn málsins fundust
14,34 grömm af kókaíni auk raf-
stuðbyssu. Farið er fram á að fíkni-
efnin og vopnið verði gert upptækt.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
gefur út ákæruna. Líkt og Frétta-
blaðið hefur greint frá verður málið
þingfest í Héraðsdómi Reykjaness
11. september næstkomandi. – bg
Dulbjuggu
sig sem
öryggisverði
Sindri Þór og sex aðrir eru ákærðir í
stóra gagnaversmálinu.
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð