Fréttablaðið - 04.09.2018, Side 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
HEYRNARSTÖ‹IN
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
™
SJÁVARÚTVEGUR Hagnaður sjö af
stærstu útgerðarfélögum landsins
nam tæpum 25 milljörðum króna í
fyrra. Munar þar mest um afkomu
Samherja sem greindi í gær frá því
að hagnaður síðasta ár hefði numið
14,4 milljörðum króna. Félagið mun
greiða 1.270 milljónir króna í arð til
hluthafa sinna.
Rúmur helmingur af starfsemi
Samherja er erlendis en í fyrra var
félaginu skipt í tvennt, Samherja hf.
og Samherja Holding ehf. Innlenda
starfsemin heyrir undir fyrrnefnda
félagið en hið síðarnefnda tók við
erlendum eignum samstæðunnar.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja og annar aðaleigenda
ásamt Kristjáni Vilhelmssyni, segir
í tilkynningu að þessi góða niður-
staða í fyrra sé ekki sjálfgefin við
núverandi aðstæður.
„Heldur afrakstur mikillar sam-
vinnu starfsmanna Samherja sem og
samstarfsaðila víðsvegar um heim-
inn. Við gleðjumst að sjálfsögðu yfir
því,“ segir Þorsteinn í tilkynningu.
Söluhagnaður eigna hafði mikið
að segja í afkomu Samherja en hann
nam fimm milljörðum króna.
Hagnaður sjö af tíu stærstu
útgerðum landsins, sem birt hafa
afkomu sína eða skilað ársreikningi
fyrir síðasta ár, nemur samanlagt
24,8 milljörðum króna samkvæmt
lauslegri samantekt Fréttablaðsins.
Arðgreiðslur þessara félaga til eig-
enda sinna nema milljörðum króna
sömuleiðis. – smj
Stóru útgerðarfélögin högnuðust um 25 milljarða í fyrra
Við gleðjumst að
sjálfsögðu yfir því.
Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja. HB Grandi 2.980 milljónir
Samherji 14.400 milljónir
Brim hf. 1.914 milljónir
Síldarvinnslan 2.900 milljónir
Ísfélag Vestm. 440 milljónir
Vinnslustöðin 1.045 milljónir
Fisk-Seafood 1.124 milljónir
Alls 24.803 milljónir
✿ Hagnaður stórra sjávar-
útvegsfyrirtækja 2017
SVÍÞJÓÐ Fulltrúar atvinnulífsins í
Svíþjóð hafa áhyggjur af áformum
Svíþjóðardemókrata um að óska
eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um
útgöngu úr Evrópusambandinu, það
er Swexit, að loknum kosningunum
sem haldnar eru þann 9. septem-
ber. Fulltrúarnir benda á að aðild
sé mikilvæg þar sem Svíar séu háðir
útflutningi framleiðslu sinnar.
Leiðtogi flokksins, Jimmie Åkes-
son, segir Svía undirgangast of
mikla löggjöf erlendis frá. Þeir sendi
stjórnmálamenn á fjölda funda. Það
séu samt sem áður Frakkar og Þjóð-
verjar sem taki allar ákvarðanirnar.
Samkvæmt skoðanakönnunum fá
Svíþjóðardemókratar um fimmtung
atkvæða í komandi kosningum.
Tæp 70 prósent Svía eru fylgjandi
aðild að Evrópusambandinu, ESB,
samkvæmt könnun frá því í maí. – ibs
Vilja atkvæði
um Swexit
Svíþjóðardemókratar vilja úr ESB.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
70 prósent Svía eru
fylgjandi aðild að ESB.
Nokkur helstu þing-
mál vetrarins:
• Ný heildarlög um veiðigjald
• Heildarlög um þjóðarsjóð
• Ný umferðarlög
• Endurskoðun lyfjalaga
• Endurskoðun laga um mat á
umhverfisáhrifum
• Endurskoðun ýmissa laga-
ákvæða vegna afnáms upp-
reistar æru
• Endurskoðun ýmissa laga-
ákvæða um laxeldi
• Frumvarp um Auðlindagjald
í laxeldi
• Frumvarp um rafrænar
þinglýsingar
• Ákvæði um barnaþing sett í lög
um umboðsmann barna
• Ýmsar breytingar á lögum um
Seðlabanka Íslands
• Alþingi og dómstólar felld undir
upplýsingalög
• Endurskoðun barnaverndarlaga
• Endurskoðun laga um LÍN
STJÓRNMÁL Þing kemur saman eftir
sumarfrí á þriðjudaginn eftir viku.
Búast má við að efnahagsmálin
verði allsráðandi í þinginu í vetur og
auk fjárlagavinnunnar verði kjara-
viðræður og veiðigjöld efst á baugi.
Logi Einarsson formaður Samfylk-
ingarinnar segir að stjórnin hefði
þurft að kynna eitthvað „konkret“
inn í kjaraviðræðurnar mun fyrr.
„Fjármálaáætlun gefur ekki tilefni
til bjartsýni um að það verði hægt
að mæta kröfum um lífskjarajöfnuð
sem verður forsenda þess að það
verði hægt að leysa kjaramálin á
farsælan hátt,“ segir Logi Einarsson
og telur ekki nægilegt svigrúm í áætl-
uninni til að stjórnvöld geti komið
nægilega kröftuglega inn til að mæta
áskorunum sem fylgja þessum kjara-
samningum.
Sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra boðar frumvarp til nýrra
heildarlaga um veiðigjald og frum-
vörp sem lúta að laxeldi, þar á
meðal um auðlindagjald. Veiði-
gjaldafrumvarp hefur ekki verið
kynnt í ríkisstjórn.
„Það er búið að boða lækkun
veiðigjalda. Það verða væntanlega
gerðar einhverjar smávægilegar
skrautbreytingar til að friða Vinstri
græn en tilgangurinn verður áfram
sá sami, bara að lækka gjaldið. Það
sem við viljum er að þessi þjóðar-
hlutur sé alveg skýr, að það náist
sátt um hver eigi að vera hlutur
þjóðarinnar út úr auðlindinni,“
segir Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir formaður Viðreisnar.
Auk umræðu um kjaramál og
veiðigjöld spáir Þorgerður því að
heilbrigðismálin verði áberandi í
pólitíkinni í vetur. „Það er greini-
lega mikill ágreiningur milli Sjálf-
stæðismanna og Vinstri grænna
um þetta tvöfalda heilbrigðiskerfi
sem er að byggjast upp á þeirra
vakt,“ segir Þorgerður.
Forsætisráðherra verður einnig
með mál á dagskrá vetrarins sem
búast má við mikilli umræðu um.
Má þar nefna endurskoðun laga
um Seðlabankann þar sem verður
meðal annars byggt á hugmyndum
nefndar sem Ásgeir Jónsson fór
fyrir og skilaði af sér í vor. Meðal
þess sem er til skoðunar er fjölgun
aðstoðarseðlabankastjóra úr
einum í tvo. Frumvarp þetta verður
lagt fram á vorþingi.
„Svo á ég von á frumvörpum frá
starfshópi um tjáningarfrelsi sem
er samstarfsverkefni nokkurra
ráðuneyta,“ segir Katrín. Hún hefur
óskað eftir því að starfshópurinn
taki ákveðna þætti upplýsingalaga
til endurskoðunar. „Eitt af því sem
ég er búin að biðja þau um er að
Alþingi og dómstólar verði felld
undir upplýsingalög eins og hefur
verið gagnrýnt. Þetta var ekki gert
þegar ný upplýsingalög voru sett
2012.“
Þá eru einnig nokkur mál sem lifa
áfram frá síðasta þingvetri. Þórhild-
ur Sunna Ævarsdóttir þingflokks-
formaður Pírata nefnir frumvarp
dómsmálaráðherra vegna afnáms
uppreistar æru sem eitt þeirra mála
sem deilur gætu skapast um.
Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar
er enn í vinnslu en verður dreift til
þingmanna strax eftir helgi.
adalheidur@frettabladid.is
Búast við átökum um kjaramál
og veiðigjöld á komandi vetri
Alþingi kemur saman á þriðjudag eftir viku. Auk fjárlaga má búast við átökum um kjaramál og veiðigjöld.
Breytingar á upplýsingalögum eru í farvatninu og lögum um Seðlabanka verður breytt eftir áramót. Þing-
málaskrá ríkisstjórnarinnar verður kynnt strax eftir helgi. Stjórnarandstaðan býr sig undir átök í vetur.
Bjarni Benediktsson og Kristján Þór Júlíusson verða í eldlínunni í vetur. Kjara-
málin bíða Bjarna. Kristján verður í veiðigjöldum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Það er greinilega
mikill ágreiningur
milli Sjálfstæðismanna og
Vinstri grænna um þetta
tvöfalda heilbrigðiskerfi sem
er að byggjast upp á þeirra
vakt.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir,
Viðreisn
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð