Fréttablaðið - 04.09.2018, Page 6
FLUGMÁL Airbus segist ekki hafa
veitt Landhelgisgæslu Íslands nein-
ar trúnaðarupplýsingar um orsakir
þyrluslyss í Suður-Kóreu í júlí.
„Þvert á það sem Airbus sagði
upphaflega virðist fyrirtækið ekki
telja að um trúnaðarupplýsingar sé
að ræða ef marka má svar fyrirtæk-
isins við fyrirspurn Fréttablaðsins,“
segir Ásgeir Erlendsson, upplýsinga-
fulltrúi Landhelgisgæslunnar.
MUH-1 herþyrla sem fórst í
Suður-Kóreu 17. júlí í sumar er
búin sams konar gírkassa og eru í
tveimur Airbus Super Puma þyrlum
sem Landhelgisgæslan hefur samið
um leigu á. Galli í slíkum gírkassa
olli tveimur mannskæðum slysum;
í Skotlandi 2009 og í Noregi 2016.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Noregi
sagði nú í júlí að endurhanna þyrfti
umræddan gírkassa. Í öllum þessum
þremur tilfellum losnuðu spaðarnir
ofan af þyrlunni.
Fram kom í Fréttablaðinu í júlí
að flugmenn Landhelgisgæslunnar
væru hugsi yfir væntanlegri komu
þessara þyrla til stofnunarinnar.
„Samkvæmt upplýsingum sem
Landhelgisgæslan hefur frá Airbus
og fleirum virðist ekki vera um
eins atvik að ræða og fyrri slys sem
tengst hafa bilunum í gírkassa,“
sagði Ásgeir Erlendsson, upplýs-
ingafulltrúi Gæslunnar, í svari til
Fréttablaðsins í kjölfarið.
Vegna þessa svars frá Landhelgis-
gæslunni óskaði Fréttablaðið eftir
afritum af samskiptum stofnunar-
innar við Airbus um málið. Því var
hafnað:
„Í ljósi þess að um er að ræða upp-
lýsingar sem varða rannsókn sem
enn stendur yfir, er Landhelgis-
gæslunni ekki heimilt að afhenda
umrædd gögn á grundvelli upplýs-
ingalaga,“ sagði í synjuninni.
„Varðandi spurningu þína, þá vin-
samlegast athugaðu að við erum
skuldbundin til að veita viðskipta-
vinum okkar allar þær upplýsingar
sem þeir óska til að tryggja öruggan
rekstur á þeirra þyrlum,“ segir í
svari frá Guillaume Steuer, yfir-
manni frétta- og fjölmiðlatengla-
deildar Airbus. „Að því sögðu get
ég staðfest að við höfum ekki deilt
neinum trúnaðarupplýsingum með
Landhelgisgæslu Íslands varðandi
mögulegar orsakir MUH-1 slyssins
þar sem rannsóknin er enn í gangi
undir forystu kóreskra yfirvalda.“
Airbus gerði Landhelgisgæslunni
viðvart um fyrirspurn Fréttablaðs-
ins og svar fyrirtækisins við henni.
„Á sama tíma og Airbus segist ekki
hafa veitt Landhelgisgæslunni nein-
ar trúnaðarupplýsingar um rann-
sókn slyssins í Suður-Kóreu biður
fyrirtækið Landhelgisgæsluna um
að gæta trúnaðar vegna upplýsinga
sem veittar voru símleiðis um rann-
sókn sama slyss. Landhelgisgæslan
mun því afhenda afrit af umræddum
samskiptum,“ segir Ásgeir upplýs-
ingafulltrúi í tölvuskeyti til blaðsins.
Fréttablaðið fékk því í gær afrit
af svarpósti frá starfsmanni Airbus
við fyrirspurn tæknistjóra Land-
helgisgæslunnar sem vildi fá að
vita hvort vegna slyssins í Suður-
Kóreu væri eitthvað að óttast í sam-
bandi við þyrlurnar sem hingað eru
væntanlegar. Í þeim pósti eru taldar
upp nokkrar skemmdir á þyrlunni
en þar er hins vegar ekki að finna
neinar ályktanir um orsakir slyssins.
„Samkvæmt upplýsingum sem
Landhelgisgæslan hefur frá Sylvain
Paquereau, starfsmanni Airbus,
virðist ekki vera um eins atvik að
ræða og fyrri slys sem tengst hafa
bilunum í gírkassa,“ er þó ítrekað í
póstinum frá Gæslunni í gær.
Þetta rímar við frásagnir fjöl-
miðla í Suður-Kóreu. Þeir hafa haft
eftir embættismönnum að ekki sé
um sams konar slys að ræða og í
Noregi 2016 þar sem galli í gírkassa
varð til þess að spaðar þyrlunnar
losnuðu af. Í nýlegum fréttum er þó
undirstrikað að enn séu öll atriði til
skoðunar í rannsókninni. Von sé á
bráðabirgðaskýrslu um atvikið nú í
september. gar@frettabladid.is
Engin ályktun í pósti frá Airbus
Fréttir í Suður-Kóreu herma að þyrluslys þar í júlí virðist ekki hafa orðið vegna galla í gírkassa eins og þeim
sem eru í þyrlum sem Landhelgisgæslan leigir. Tölvupóstur frá Airbus sem áður var bundinn trúnaði birtur.
Fimm létust er herþyrla fórst sekúndum eftir flugtak í Suður-Kóreu 17. júlí. Rannsókn á orsökunum stendur enn yfir.
Á sama tíma og
Airbus segist ekki
hafa veitt Landhelgisgæsl-
unni neinar trúnaðarupp-
lýsingar um rannsókn
slyssins í Suður-Kóreu biður
fyrirtækið Landhelgisgæsl-
una um að gæta trúnaðar.
Ásgeir Erlendsson,
upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæsl-
unnar
Sefitude — ný meðferð við
kvíða og svefntruflunum
Notkun Við vægum kvíða: fullorðnir, 1 tafla á dag allt að 3 á dag. 12–18 ára: 1 tafla á dag allt að 2 á dag.
Við svefntruflunum: fullorðnir og eldri en 12 ára: 1 tafla ½–1 klukkustund fyrir svefn. Ekki ráðlagt börnum yngri en
12 ára, þunguðum konum eða konum með börn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli
fyrir notkun. Leitið læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Fæst í öllum helstu apótekum án lyfseðils
Ert þú að fást við svefntruflanir eða kvíða?
Sefitude er viðurkennt jurtalyf unnið úr rót garðabrúðu.
Styttir tímann til að sofna og bætir gæði svefns.
florealis.is/sefitude
SÚGANDAFJÖRÐUR Lilja Rafney
Magnúsdóttir, formaður atvinnu-
vegandefndar Alþingis, hefur sent
Ísafjarðarbæ bréf þar sem hún fer
fram á að fjármagni verði varið til
endurbóta á félagsheimili Súgfirð-
inga á Suðureyri.
„Salernisaðstaðan er löngu orðin
léleg og barn síns tíma og ekkert
aðgengi fyrir fatlaða, við erum því
að skoða möguleika á að færa hana
í ónýtt pláss í húsinu sem var bún-
ingsaðstaða þegar leikfimikennsla
var í húsinu,“ skrifar Lilja í bréfi til
bæjarins.
Lilja er formaður stjórnar holl-
vinasamtaka félagsheimilisins. „Við
í stjórn Hofsú óskum eftir því að vel
verði tekið í þessa málaleitan okkar
um að Ísafjarðarbær láti fara fram
úttekt á þeim hluta hússins sem um
ræðir og geri ráð fyrir fjármunum til
verksins við gerð næstu fjárhagsá-
ætlunar,“ bætir Lilja Rafney við. – sa
Krefur Ísafjörð
um fjármagn
Lilja Rafney Magnúsdóttir.
MJANMAR Sjö ára fangelsisdómur
sem tveir blaðamenn Reuters hlutu
í Mjanmar í gær er stórt skref aftur
á bak fyrir lýðræðisþróun Asíuríkis-
ins. Þetta sagði Stephen J. Adler rit-
stjóri Reuters í gær. Blaðamennirnir
tveir, Wa Lone og Kyaw Soe Oo, voru
dæmdir fyrir brot á lögum um með-
ferð ríkisleyndarmála. Þeir voru að
rannsaka meint þjóðarmorð mjan-
marska hersins á Róhingjum þegar
þeir voru handteknir í desember.
„Án nokkurra haldbærra sönn-
unargagna um meintan glæp og í
ljósi sannfærandi sönnunargagna
um að lögregla hafi komið á þá sök
voru þeir í dag dæmdir til fang-
elsisvistar í dómi sem lætur ótaldar
misgjörðir öryggisyfirvalda,“ sagði
Adler og bætti því við að ríkisstjórn
Mjanmars ætti að grípa inn í.
Lone og Oo höfðu verið að rann-
saka fjöldamorð á tíu Róhingjum
í bænum Inn Din. Tveir lögreglu-
menn boðuðu þá til fundar við sig á
veitingastað þar sem þeir ætluðu að
afhenda gögn um málið. Í staðinn
voru Oo og Lone handteknir.
„Ég er óhræddur. Ég hef ekkert
gert af mér. Ég trúi enn á réttlætið,
lýðræði og frelsi,“ sagði Wa Lone
eftir að dómurinn féll í gær.
Nokkrir æðstu yfirmenn voru í
síðustu viku nefndir á nafn í skýrslu
rannsóknarnefndar mannréttinda-
ráðs SÞ og sakaðir um þjóðarmorð,
stríðsglæpi og glæpi gegn mann-
kyninu vegna ofsóknanna í garð
Róhingja. – þea
Dómurinn stórt skref aftur á bak
ÍÞRÓTTIR Mistök urðu við lagningu
brautar í maraþoni og hálfmaraþoni
Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka
í síðasta mánuði. Tilfærsla grinda á
Sæbraut varð til þess að brautin
varð 213 metrum of stutt.
Ákveðið hefur verið að öll úrslit
í flokkunum skuli standa. Tímarnir
eru hins vegar ógildir og verða ekki
færðir í afrekaskrá FRÍ. Óvíst er
hvort tímarnir munu gilda sem inn-
tökuskilyrði í erlendar keppnir. – smj
Maraþonið ógilt
Blaðamaðurinn Wa Lone eftir dómsuppkvaðningu. NORDICPHOTOS/AFP
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð