Fréttablaðið - 04.09.2018, Qupperneq 9
Líf, það er í algjöru ósam-
ræmi við grundvallarprinsip
sósíalismans að leggjast gegn
tillögu Hildar sem miðast
við að einstaklingarnir færi
lágmarksfórn til þess að hlúa
að hagsmunum samfélags-
ins. Hvernig stendur á því
að þú lagðir ekki sjálf fram
þessa tillögu heldur kona úr
röðum íhaldsins svarta?
Ágæta Líf, pólitísk átök í okkar heimi hafa gjarnan staðið um rétt einstaklingsins í sam-
félaginu annars vegar og skyldur
hans hins vegar; til dæmis, hversu
mikið á hann að greiða í opinber
gjöld og hvað á hann að fá í stað-
inn? Önnur deilumál sem skjóta
upp kollinum reglulega eru hvernig
eigi að taka á því þegar réttur ein-
staklingsins stangast á við þarfir
samfélagsins eða þegar réttur ein-
staklings stangast á við rétt annarra
einstaklinga.
Félagshyggjufólkið, þeir sem eru
til vinstri í pólitík, sósíalistarnir
hafa til þessa haldið því fram að
réttur einstaklingsins eigi oft að
víkja fyrir þörfum samfélagsins og
frjálshyggjufólkið, íhaldspakkið
verið á þeirri skoðun að réttur ein-
staklingsins sé sá sem oftast eigi
að vinna. Þetta er dálítið flókið í
dag vegna þess að það er svo erfitt
að draga fólk í dilka. Þetta var allt
miklu einfaldara á kaldastríðs-
árunum, biti framan vinstra og
maðurinn var kommi, sneitt aftan
hægra og maðurinn var íhald og
maður vissi upp á hár hvaða afstöðu
þeir tóku til alls konar mála. Ekkert
er svona einfalt í dag og það örlar á
söknuði.
Eitt nýlegt deilumál í borgar-
stjórn Reykjavíkur sýnir ljóslega
fram á að það sé búið að moka að
hluta til ofan í gjána sem skildi að
pólitísku blokkirnar stóru eða í það
minnsta leggja yfir hana göngubrú.
Málið er svona: Mislingar eru alvar-
legur veirusjúkdómur barna sem
getur meðal annars leitt til ban-
vænnar bakteríusýkingar í lungum
eða bólgumyndunar í hvítaefni
heilans og varanlegs heilaskaða.
Mislingum var haldið í skefjum í
vestrænum heimi um áratugi með
bólusetningum þótt það hafi ekki
gengið eins vel alls staðar í þriðja
heiminum. Upp á síðkastið hefur
gengið verr en áður að fá foreldra
til þess að láta bólusetja börn sín
við mislingum og sjúkdómurinn
hefur sprottið upp víða um lönd og
valdið dauða barna. Eina leiðin til
þess að stemma stigu við þessu er
að brýna foreldra til bólusetningar
barna sinna.
Hildur Björnsdóttir, sem situr
í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir
hönd Sjálfstæðisflokksins og á sjálf
ung börn, lagði til um daginn að það
yrði gert að skilyrði fyrir því að börn
yrðu tekin inn í leikskóla borgarinn-
ar að það væri búið að bólusetja þau
fyrir mislingum. Þetta er aðferð sem
ég þekki frá tuttugu ára dvöl minni í
Bandaríkjunum þar sem við urðum
að framvísa bólusetningavottorði á
hverju hausti þegar börnin byrjuðu
í skóla. En þú, Líf Magneudóttir,
sósíalistinn sjálfur gast ekki tekið
undir tillöguna, fannst hún harka-
leg og vega að rétti foreldra til þess
ákvarða um örlög barna sinna. Þessi
réttur foreldra til þess að láta ekki
bólusetja börn sín fyrir mislingum
er í raun rétturinn til þess að meiða
börn annarra ef svo óheppilega vill
til að sjúkdómurinn blossi upp en
ef ekki þá rétturinn til þess að setja
börn annarra í hættu.
Það ber öllum saman um að við
þurfum að verja börnin okkar gegn
mislingum með bólusetningum
en það er ekki ljóst hversu stóran
hundraðshluta þarf að bólusetja til
þess að halda sjúkdómnum niðri. Í
því samhengi er rétturinn til þess
að láta ekki bólusetja barnið þitt
fyrir mislingum rétturinn til þess að
krefjast þess að önnur börn en þín
sjái um að verja hópinn og þar með
þín börn gegn sjúkdómnum. Einn
af sérfæðingum mínum í blessun
sósíalismans benti mér á að þótt
foreldrar sem vilja ekki láta bólu-
setja börn sín séu að taka rangar
ákvarðanir megi ekki láta það bitna
á börnum þeirra. Mitt svar við því er
að það er enn verra að láta það bitna
á börnum annarra.
Líf, það er í algjöru ósamræmi við
grundvallarprinsip sósíalismans
að leggjast gegn tillögu Hildar sem
miðast við að einstaklingarnir færi
lágmarksfórn til þess að hlúa að
hagsmunum samfélagsins. Hvernig
stendur á því að þú lagðir ekki sjálf
fram þessa tillögu heldur kona
úr röðum íhaldsins svarta? Þetta
ruglar mig í ríminu og veldur mér
áhyggjum og mér er ekki ljóst hvort
ég ætti að taka bílveikitöflu eða
það ætti að senda þig upp í sveit til
endurmenntunar í stíl Maós. En hitt
veit ég fyrir víst að ég held áfram að
hrífast af því hvernig Hildur reynir
að hlúa fallega að þeim minnstu í
því samfélagi sem hún býr í.
Að bjarga Líf(um) – Opið bréf til borgarfulltrúa VG
Kári Stefánsson
forstjóri
Íslenskrar erfða-
greiningar
Í 8. gr. búvörulaga (l.nr. 99/1993) er sagt fyrir um hvernig staðið skuli að því að ákvarða verð á
mjólk og mjólkurvörum. Þar segir:
„Ákvörðun um lágmarksverð mjólk-
ur skal byggjast á gerð verðlags-
grundvallar fyrir bú af hagkvæmri
stærð, með framleiðslu aðstöðu þar
sem tekið er mið af opinberum heil-
brigðis- og aðbúnaðarkröfum og
hagkvæmum framleiðsluháttum.“
Nefndarmenn sem sátu í verð-
lagsnefnd búvara undir forsæti
Kristrúnar Frostadóttur (seinni-
hluta árs 2017 til miðs árs 2018)
veittu því eftirtekt að fyrri verð-
lagsnefndir höfðu virt þessi ákvæði
laganna að vettugi. Þrátt fyrir skýr
ákvæði um að verðlagsgrundvöllur
endurspegli „hagkvæma fram-
leiðsluhætti“ á hverjum tíma hafði
verðlagsgrundvöllur kúabús verið
óbreyttur frá því um árið 2000 og
jafnvel fyrr. Á sama tíma hefur nyt
kúa stóraukist, vinnufyrirkomulag
í fjósum gjörbreyst, mjaltaþjarkar
komið til sögunnar o.s.frv.
Undirritaður sem sat í nefnd-
inni á formannstíma Kristrúnar
lýsti þeirri skoðun sinni á nefndar-
fundum að framkvæmd fyrri
nefnda stríddi bæði gegn anda
og bókstaf búvörulaganna. For-
maður verðlagsnefndarinnar setti
í gang vinnu við að reikna nýjan
verðlagsgrundvöll. Þrátt fyrir eftir-
rekstur formanns gekk sú vinna
afar hægt. Þó bárust þau boð til
nefndarmanna undir lok mars
2018 að farið væri að hilla undir að
nýr verðlagsgrundvöllur liti dags-
ins ljós. Undirritaður benti enn og
aftur á að nefndin gæti ekki tekið
ákvarðanir um verðbreytingar
með löglegum hætti fyrr en nýr
verðlagsgrundvöllur væri tilbúinn.
Jafnframt benti undirritaður á að
nefndin hefði allsendis ónægar
upplýsingar til að ákvarða heild-
söluverð mjólkur, skyrs og smjörs.
Fulltrúar afurðastöðva tók mjög
illa tillögum um að upplýsinga yrði
aflað erlendis frá um framleiðslu-
kostnað einstakra afurða. Í lok júní
2018 var ný verðlagsnefnd með
nýjum formanni og nýjum full-
trúum landbúnaðar- og neytenda-
málaráðherra skipuð.
Seint í ágúst 2018 samþykkti
hin nýja verðlagsnefnd búvara að
hækka verð á hrámjólk til bænda
um 3,52% og heildsöluverð frá
Mjólkursamsölunni um 5,3%. Þar af
skyldi smjör hækka um 15%. Verð-
lagsnefndin birtir ekki neinn rök-
stuðning samhliða ákvörðun sinni.
En ráða má að nefndin hafi metið
„hækkunarþörf“ með hliðsjón af
hinum löngu úrelta verðlagsgrund-
velli kúabús en endurnýjuðu verð-
lagslíkani mjólkurvinnslunnar!
Hvernig sú ákvörðun er tilkomin að
hækka smjör um 15% er algjörlega
órökstutt, en líklega hefur Mjólkur-
samsalan haft frumkvæði að þeirri
gjörð. Kannski kom hið nýja kostn-
aðarlíkan mjólkurvinnslunnar
þaðan í pósti til ráðuneytisins, hver
veit.
Miðað við þær upplýsingar sem
ég hafði í lok mars 2018 tel ég líklegt
að uppfærður verðlagsgrundvöllur
kúabús liggi þegar fyrir í ráðuneyt-
inu. Ágiskanir mínar um það hvers
vegna hann er ekki notaður við
síðustu ákvörðun eru jafn góðar og
ágiskanir þínar, lesandi góður. En
hver svo sem ástæðan er tel ég að
síðasta ákvörðun verðlagsnefndar
búvara sé á skjön við búvörulögin,
anda þeirra og bókstaf. Ég vil hér
með hvetja Umboðsmann Alþingis
til að taka málið til skoðunar því
lögleysa í skjóli ráðuneytisvalds er
verri en önnur lögleysa.
Löglausar mjólkurhækkanir?
Þórólfur
Matthíasson
hagfræði-
prófessor
Ford Transit Custom er þekktur fyrir
einstakan búnað, endingu og hagkvæmni.
Með nýrri kynslóð bætir Ford enn í og gerir
Transit Custom enn betri. Hinn nýi Ford
Transit Custom er ríkulega búinn m.a.
olíumiðstöð með tímastilli, upphitanlegri
framrúðu, aksturstölvu, Easy fuel
eldsneytisáfyllingu, upphitanlegu
ökumannssæti, spólvörn, ESP
stöðuleikakerfi, brekkuaðstoð og
14 geymsluhólfum í innréttingu.
NÝR FORD TRANSIT CUSTOM
– Betri en nokkru sinni
3.590.000 KR. MEÐ VSK.
FÁANLEGUR SJÁLFSKIPTUR
2.895.000 KR.ÁN VSK.
FORD TRANSIT CUSTOM KOSTAR FRÁ:
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16 ford.is
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9Þ R I Ð J U D A G U R 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8