Fréttablaðið - 04.09.2018, Síða 10
Fylkir - Aft./Fram 4-1
1-0 Sæunn Ósk Ríkharðsdóttir (9.), 2-0
Margrét Björg Ástvaldsdóttir (13., víti), 3-0
Bryndís Arna Níelsdóttir (45.), 3-1 Samira
Suleman (47.), 4-1 Hulda Sigurðardóttir
(80.).
Nýjast
Inkasso-deild kvenna
FÓTBOLTI Það kemur í ljós síðdegis í
dag hvort Ísland kemst beint í loka-
keppni HM 2019 eða í umspil um
sæti í lokakeppninni. Það er fjar-
lægur möguleiki að íslenska liðið nái
að skjótast upp fyrir Þýskaland og
sleppa við umspilið, en til þess þurfa
frændur okkar frá Færeyjum að gera
kraftaverk og ná í sín fyrstu stig í
undankeppninni og leggja gríðarlega
sterkt lið Þjóðverja að velli í lokaum-
ferðinni.
Öllu raunhæfara er að gera sér
vonir um sæti í umspili um laust sæti í
lokakeppninni, en jafntefli gæti hæg-
lega komið íslenska liðinu þangað og
sigur mun að öllum líkindum halda
draumnum um að taka þátt í HM í
fyrsta skipti í sögunni á lífi. Þau fjögur
lið með bestan árangur í öðru sæti í
riðlunum sjö tryggja sér sæti í umspil-
inu. Stöðuna hjá þeim liðum sem sitja
í öðru sæti fyrir lokaumferðina má sjá
í töflunni hér til hliðar.
Ísland og Tékkland skildu jöfn
þegar liðin mættust ytra í fyrri
umferðinni, en sá leikur var einkar
harður og tékknesku leikmennirnir
létu þá íslensku finna hressilega til
tevatnsins. Fari Tékkland með sigur af
hólmi í leiknum í dag er HM-draum-
urinn úr sögunni hjá íslenska liðinu.
„Mér fannst útileikurinn einkenn-
ast af því að við lögðum gríðarlega
orku í leikinn gegn Þýskalandi sem
var skömmu fyrir þann leik og við
vorum mjög þreyttar. Það sást vel á
spilamennsku okkar að við gátum
ekki sýnt okkar bestu hliðar sökum
þreytu. Það má svo ekki gleyma því
að þetta er hörkulið og við þurfum
að eiga toppleik til þess að vinna. Mér
finnst allt annað uppi á teningnum
hjá okkur núna en síðasta haust. Við
erum orðnar betri í að stýra álaginu í
leikjum hjá okkur og við stjórnuðum
tempóinu betur í leiknum á laugar-
daginn. Þess vegna erum við mun
ferskari núna en daginn fyrir leikinn
í Tékklandi,“ sagði Ingibjörg Sigurðar-
dóttir, varnarmaður íslenska liðsins.
„Leikurinn gegn þeim úti var
harður og bara á köflum grófur. Þær
eru líkamlega sterkar og létu vel finna
fyrir sér. Við þurfum að vera undir
það búin og mæta þeim í þeirri hörku,
en um leið að vera hugrakkar í að
spila okkur úr þeirri pressu sem þær
munu setja á okkur. Það eru klárlega
möguleikar til þess að spila sig út úr
návígjunum og það er sú leið sem við
viljum fara. Mér finnst liðinu hafa tek-
ist vel að setja vonbrigðin frá laugar-
deginum til hliðar og við náðum að
núllstilla okkur hratt og vel. Öll töl-
fræði segir að liðið sé í betra líkam-
legu formi núna en fyrir leikinn gegn
þeim úti síðasta haust og vonandi
skilar það sér í betri spilamennsku,“
sagði Freyr Alexandersson, þjálfari
íslenska liðsins, um komandi verk-
efni. hjorvaro@frettabladid.is
Verðum að mæta hörkunni og
vera hugrakkar með boltann
Leikmenn íslenska liðsins æfa fyrir lokaleik sinn í undankeppni HM 2019 gegn Tékklandi sem fram fer á Laugardalsvellinum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Staðan hjá þeim liðum
sem sitja í öðru sæti
Danmörk 12 + 11
Skotland 12 + 9
Noregur 12 + 8
Wales 11 + 2, búnar með sína leiki.
Ísland 10 + 3
Belgía 10 + 2
Austurríki 7 + 1
Lokaumferð í undankeppni HM 2019 í knatt-
spyrnu kvenna fer fram í dag. Þar mun Ísland
leika við Tékkland, en liðin berjast um að
komast í umspil um laust sæti í lokakeppni
mótsins. Íslenska liðið stendur betur að vígi
fyrir leikinn, en jafntefli eða sigur fleytir
liðinu í annað sætið og mögulega í umspil.
Mér fannst leikur-
inn gegn þeim úti
einkennast af því að við
lögðum gríðarlega orku í
leikinn gegn Þýskalandi
skömmu fyrir þann leik og
við vorum mjög þreyttar.
Ingibjörg Sigurðardóttir
HANDBOLTI Valur verður Íslands-
meistari bæði í karla- og kvenna-
flokki ef spá fyrirliða, þjálfara og
forráðamanna Olísdeildanna í
handbolta gengur upp.
Haukar verða í öðru sæti í karla-
flokki samkvæmt spánni, ÍBV sem
varð þrefaldur meistari á síðustu
leiktíð í þriðja sæti og Selfoss,
spútniklið síðasta keppnistímabils
í fjórða sæti.
Grótta mun hins vegar fylgja KA,
hinum nýliðanum í deildinni, niður
úr efstu deild ef spáin rætist en Akur-
eyri sem er einnig nýliði, mun bjarga
sæti sínu..
Valur, sem háði baráttu við Fram
um Íslandsmeistaratitilinn í kvenna-
flokki í fyrra, verður Íslandsmeistari
að þessu sinni hafi spámennirnir
rétt fyrir sér. Fram, sem varð tvö-
faldur meistari síðasta vetur, verður
í öðru sæti og ÍBV endar í þriðja sæti.
Haukar komast í úrslitakeppnina
með því að hafna í fjórða sæti, en
Stjarnan situr eftir með sárt ennið í
fimmta sæti.
Selfoss sleppur við fall með því
að verða í sjötta sæti, KA/Þór, sem
er nýliði í deildinni, fer í umspil um
öruggt sæti í efstu deild og HK fellur
í vor ef spáin rætist. – hó
Valsliðunum
spáð titlunum
Allsherjarpóstatkvæðagreiðsla meðal allra félagsmanna
Flugfreyjufélags Íslands, um boðun ótímabundinnar vinnu-
stöðvunar flugfreyja um borð í flugvélum Primera Air Nordic
SIA, sem fljúga farþegum frá og til Íslands á vegum Heims-
ferða, Terra Nova Sol og ef til vill fleiri fyrirtækja hér á landi.
Kjörgögn hafa verið póstlögð og þurfa atkvæði félagsmanna
að hafa borist kjörstjórn félagsins að Hlíðarsmára 15,
201 Kópavogi fyrir kl. 12:00 föstudaginn 28. september 2018.
Stjórn og trúnaðarráð Flugfreyjufélags Íslands hvetur alla
félagsmenn sína til þess að taka þátt í atkvæðagreiðslunni
en tekist er á um kröfu Flugfreyjufélags Íslands þess efnis að
Primera Air Nordic SIA geri kjarasamning um störf flugfreyja
en þeirri kröfu hefur verið hafnað og viðræðutilraunir ekki borið
árangur þrátt fyrir milligöngu Ríkissáttasemjara.
Reykjavík 3. september 2018
Kjörstjórn Flugfreyjufélags Íslands
Allsherjarpóst-
atkvæðagreiðsla
um boðun vinnustöðvunar
hjá Primera Air Nordic
Umfjöllun um landsleikinn gegn
Tékklandi er hægt að nálgast á
+Plús síðu Fréttablaðsins.
Fréttablaðið +Plús er eingöngu
í Fréttablaðs-appinu eða í
PDF-útgáfu blaðsins sem er
aðgengileg á frettabladid.is.
+PLÚS
Noregur - Ísland 58-89
Stig Íslands: Emil Barja 15/7 stoðsend-
ingar/6 fráköst, Ólafur Ólafsson 14, Gunnar
Ólafsson 13, Ragnar Nathanaelsson 12/5
fráköst, Collin Pryor 10/6 fráköst, Kristinn
Pálsson 9, Tómas Hilmarsson 6, Kristján
Leifur Sverrisson 6, Danero Thomas 2,
Haukur Óskarsson 2.
Vináttulandsleikur
FÓTBOLTI Fylkiskonur komust í gær
upp í Pepsi-deild kvenna á ný eftir
eins árs dvöl í Inkasso-deildinni
með 4-1 sigri á Aftureldingu/Fram
á heimavelli sínum.
Árbæingar féllu úr efstu deild síð-
asta haust en líkt og sumarið 2013
stoppuðu þær stutt í næst efstu
deild, aðeins eitt ár.
Þurftu þær tvö stig úr síðustu
þremur umferðunum til að gull-
tryggja sætið í efstu deild á næsta ári
og afgreiddu þær verkefnið strax á
heimavelli í gær.
Deildarmeistaratitillinn er þó
ekki í höfn enda getur Keflavík
ennþá náð Árbæingum. – kpt
Árbæingar upp
í efstu deild á ný
Árbæingar fagna sætinu í efstu deild
eftir leikinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT