Fréttablaðið - 04.09.2018, Page 14
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5407.
Yndislegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Skúli Þórisson
klæðskeri,
áður Suðurbraut 20, Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
föstudaginn 31. ágúst.
Úför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn
6. september kl. 15.
Jóhanna Þórey Jónsdóttir
Ragnheiður Helga Jónsdóttir Arnfinnur Bragason
Berglind Jónsdóttir Rikharð Sigurðsson
Ragnar Gunnar Þórhallsson Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þorsteinn Auðunsson
Kjartansgötu 16, Borgarnesi,
andaðist á sjúkrahúsinu á Akranesi
miðvikudaginn 29. ágúst.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju
fimmtudaginn 6. september kl. 14.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir Arilíus D. Sigurðsson
Stefán Þorsteinsson Guðríður Guðjónsdóttir
Vigdís Þorsteinsdóttir Ólafur E. Sigurðsson
Guðrún Þorsteinsdóttir Jóhann Ó. Jóhannsson
Auður Ásta Þorsteinsdóttir Ólafur Þorgeirsson
afa- og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður,
faðir, tengdafaðir og afi,
Kristján Aðalsteinsson
lést á krabbameinsdeild
Landspítalans þriðjudaginn 28. ágúst.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 7. september kl. 15.00.
Guðrún Pétursdóttir
Georg Pétur Kristjánsson Ósk Sigþórsdóttir
Silla Þóra Kristjánsdóttir Hálfdán Kristjánsson
Anna Kristjánsdóttir Gústaf Steingrímsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, bróðir og mágur,
Guðmundur Bogi Breiðfjörð
blikksmiður,
Laugateigi 27, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju
miðvikudaginn 5. september klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Alzheimersamtökin.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Bertha R. Langedal
Sigríður Kristjánsdóttir
frá Suðureyri við Súgandafjörð
lést á elliheimilinu Grund
miðvikudaginn 29. ágúst síðastliðinn.
Útförin fer fram fimmtudaginn
6. september kl. 13 frá Digraneskirkju.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Grundar fyrir alúð og umhyggju.
Kristján H. Þorleifsson Kristín Kristjánsdóttir
Ingunn Þorleifsdóttir Leó Pálsson
Sigurbjörg Þorleifsdóttir Sölvi Bragason
Sigþór Þorleifsson Aðalheiður Gylfadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir, bróðir, frændi og mágur,
Hermann Hermannsson
Markörgatan 61, Västervik, Svíþjóð,
lést á líknardeild Landspítalans
26. ágúst. Jarðaförin hefur farið fram
í kyrrþey. Þökkum sýnda samúð og
hlýhug.
Róbert Marvin Gíslason
Borghildur Júlíusdóttir
Aron Þór Hermannsson
Svanur Örn Hermannsson
Sigríður Ása Maack
Okkar ástkæra
Sólrún Guðbjörnsdóttir
listamaður og kennari,
lést fimmtudaginn 30. ágúst.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 6. september kl. 15.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Ljósið styrktarsjóð.
Börn, barnabörn, eiginmaður, systkini og nánustu vinir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Ásta Ebenharðsdóttir
Ránargötu 11, Akureyri,
lést 26. ágúst. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir til starfsfólks á Sandgerði,
Lögmannshlíð fyrir hlýja og góða umönnun.
Guðrún Jóhannsdóttir Guðmundur Búason
Jóhann Jóhannsson Steinunn Eggertsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigfús Tómasson
Engjahlíð 3b, Hafnarfirði,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi þann 26. ágúst síðastliðinn.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði 7. september kl. 13.00.
Sigríður Sigursteinsdóttir
Steinunn Jóhanna Sigfúsdóttir Björgvin S. Stefánsson
Sigurður Tómas Sigfússon
Sigfús Ægir Sigfússon Guðbjörg Jóna Sævarsdóttir
Þórir Sigfússon María Unnur Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Fyrst á dagskránni er að fara á fund sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra er með á Hótel Vatnajökli. Hann er að kynna drög að frumvarpi
um nýja þjóðgarðastofnun. Reyndar
byrjaði ég á að fá tölvuaðganginn í
lag. En ég er nú bara búin að vera í
embættinu í kortér!“ segir Matthildur
Ásmundardóttir þegar hún er spurð
hvert hennar fyrsta verk hafi verið sem
bæjarstjóri Hornafjarðar. Hún tók við í
gærmorgun og máttarvöldin buðu upp
á heiðríkju. „Hér er yndislegt veður og
útsýni til allra átta,“ svo notuð séu
hennar orð.
Matthildur er ýmsum hnútum
kunnug í Hornafirði, hún ólst þar upp
og hefur verið þar framkvæmdastjóri
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands síð-
ustu sex ár. Segir þó brýnustu verkefni
sín nú vera að setja sig vel inn í bæjar-
málin. „En ég er aðeins búin að hita upp.
Hitta bæjarráð og nefndarmenn og vera
á einum bæjarstjórnarfundi.“
Eftir náms- og starfsár í Reykja-
vík kveðst Matthildur hafa flutt austur
árið 2003, til að sinna þar sjúkra-
þjálfun, ásamt manni sínum, Hjálmari
Jens Sigurðssyni. „Við ætluðum bara að
vera í tvö ár. Ég átti hér vissulega rætur
en það var dálítið erfitt ástand í bæjar-
félaginu þá og straumurinn lá suður. Það
breyttist fljótt og eftir hrun varð lands-
byggðarsveifla – hún er reyndar núna
líka, kannski vegna húsnæðisverðsins
í Reykjavík. Hér er verð mun lægra og
svo er miklu rólegra í svona umhverfi,
maður er örskotsstund að hjóla í
vinnuna og krakkarnir í skólann.“
Matthildur er móðir þriggja barna,
sjö, tólf og fimmtán ára. „Elsti sonur-
inn kemst á framhaldsskólaaldur eftir
þennan vetur en var nýfæddur þegar við
fluttum,“ segir hún. Að síðustu er hún
spurð hver taki við hennar gamla starfi
hjá heilbrigðisstofnuninni. „Það er ekki
vitað, auglýsingaferlið er að klárast,“
segir hún en upplýsir að nýr hjúkrunar-
stjóri hafi verið ráðinn í stað Ásgerðar
Gylfadóttur. „Það er kona frá Reykjavík.
Bróðir hennar keypti hér gamalt hús
sem hefur verið rekið kaffihús í. Þetta
er fólk sem hefur búið í 101 en vill flytja
út á land og komast í nálægð jökla og
náttúrufegurðar.“ gun@frettabladid.is
Fyrsti dagur bæjarstjóra
Matthildur Ásmundardóttir tók við sem bæjarstjóri í sveitarfélaginu Hornafirði
í gær og var varla sest í stólinn þegar hún fékk viðtalsbeiðni frá Fréttablaðinu.
Matthildur í hinu ægifagra hornfirska umhverfi sem eflaust dró hana heim aftur.
Við ætluðum bara að
vera í tvö ár. Ég átti hér
vissulega rætur en það var
dálítið erfitt ástand í bæjarfélag-
inu þá og straumurinn lá suður.
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT