Fréttablaðið - 04.09.2018, Qupperneq 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveg@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349
Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512
5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@
frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@
frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429,
Amino Marine Collagen frá Feel Iceland heldur húðinni ungri og heilbrigðri og mýkir upp liði.
Laufey hefur verið búsett í Kali-forníu í Bandaríkjunum frá árinu 1999. Hún fór til Banda-
ríkjanna til þess að klára löggilta
næringarráðgjöf sem gaf henni
réttindi til að vinna bæði á sjúkra-
húsum og í einstaklingsráðgjöf.
„Allt frá útskrift hef ég unnið á
Kaiser sjúkrahúsinu og hjá DaVita
sem er nýrnahreinsistöð. Þar hef
ég oft fengið mjög sorgleg tilfelli
sem við í teyminu erum sannfærð
um að hefði verið hægt að komast
hjá ef viðkomandi hefði borðað
hollan og góðan mat og hreyft sig
daglega,“ segir Laufey sem segir
algengt að næringarfræðingar
vinni með læknum á sjúkrahúsum
í Bandaríkjunum.
„Samkvæmt lögum í Banda-
ríkjunum verða löggiltir nær-
ingarfræðingar að vinna á þessum
stofnunum. Við vinnum mjög
náið með læknum og sjáum alveg
um allt sem viðkemur næringu.
Læknar treysta alfarið á okkur
þegar kemur að fæðuvali meðan á
spítalavist stendur, við stjórnum
fæðubótarefnum og eins sjáum
við um alla næringarfræðslu þar
sem komið er inn á hvernig fólk
getur best hagað matarvenjum
þegar heim er komið. Eins sjáum
við um næringu í æð, og næringu
í gegnum rör. Meirihluti sjúklinga
sem eru lagðir inn á spítala fer á
svokallað „therapeutic diet“ eða
lækningamataræði, þetta sjáum
við alveg um og læknar leita mikið
til okkar um ráðgjöf fyrir sjúklinga
sem við þurfum að ganga frá innan
sólarhrings. Við fáum einnig oft
símtöl frá læknum varðandi ráð
um næringu.
Mælið þið oft með fæðubótar-
efnum fyrir sjúklingana?
„Já, mjög oft! Það er mikið um
sjúklinga sem þurfa á fæðubótar-
efnum að halda vegna vannær-
ingar eða annarra vandamála. Við
notum fæðubótarefni daglega
hvort sem um er að ræða prótein-
og/eða orkudrykki eða í einhvers-
konar öðru formi.“
Hvernig er að starfa sem nær-
ingarfræðingur í Kaliforníu?
„Það er alveg frábært að vera
næringarfræðingur hérna því það
þurfa margir á okkur að halda
og margir sem vilja vinna með
okkur. Í Kaliforníu vilja flestir vera
flottir og fáir tilbúnir að bjóða Elli
kerlingu heim. Eg hef tekið eftir
gríðarlega mikilli ásókn í kollagen
og önnur próteinduft. Kollagen-
neysla hefur aukist til muna, ekki
bara hjá þeim sem vilja viðhalda
styrkleika húðarinnar heldur líka
hjá fólki sem finnur til í liðum og
eins hjá fólki á keto- og lágkol-
vetnamataræði því það er auðveld
leið til að bæta próteinneysluna.
Við erum farin að notast við
kollagen í auknum mæli á sjúkra-
húsinu og ég hef sérstaklega notað
það fyrir einstaklinga með liðagigt
eða fólk með verki í liðum út frá
íþróttameiðslum.“
Af hverju er kollagenið svona
vinsælt?
„Kollagenið er mjög vinsælt
fæðubótarefni því það er eitt helsta
uppbyggingarprótein líkamans
og því mikilvægt að viðhalda því.
Kollagenið er að finna til dæmis í
húð, liðum, vöðvum, hári, band-
vefjum og beinum. Eftir því sem
við verðum eldri þá fer framleiðsl-
an minnkandi og við verðum til
dæmis vör við slappleika í húðinni
og verki í liðum. Húðin þynnist
einnig með aldrinum og þá koma
í ljós hrukkur og appelsínuhúð,
sem er að sjálfsögðu bara glæsilegt
og mikilvægt að gleyma því ekki í
allri þessari umræðu, en sumir eru
því ósammála og gott að virða það
líka. Neysla kollagens hefur aukist
til muna í dag hjá fólki sem vill
viðhalda styrkleika húðarinnar og
Framhald af forsíðu ➛
Ég tek daglega inn
Amino Marine
Collagen frá Feel Iceland
og fann fljótlega mun á
húð og liðum.
eins hjá fólki sem finnur til í liðum,
sem hefur að sjálfsögðu ekkert
með útlitsdýrkun að gera heldur
til að geta liðið vel almennt og til
að geta sinnt daglegu amstri án
verkja. Kollagenduft er líka vinsælt
því það er auðvelt að blanda því út
í heita og kalda drykki og er lyktar-
og bragðlaust.“
Tekur þú inn fæðubótarefni?
„Ég tek alltaf lýsi þótt ég hafi
ekki vanist bragðinu. Ég hef tekið
lýsi frá því ég var ómálga barn og
komst aldrei upp með annað. Í dag
er þetta góð venja sem er for-
eldrum mínum að þakka og ég get
ekki verið án þess.
Ég tek daglega inn Amino
Marine Collagen frá Feel Iceland
og fann fljótlega mun á húð og
liðum. Ég vel þessa vöru því ég set
allt mitt traust á íslenska fiskinn
og fiskafurðir okkar, sérstaklega
þegar ég sé hvað er oft notað í
aðrar vörur. Það er mjög handhægt
að blanda duftinu í drykki og það
er alveg hreint kollagen. Ég tek
líka inn alhliða vítamín daglega til
að hressa upp á vítamínprófílinn
minn. Þrátt fyrir að borða daglega
ávexti og grænmeti þá á ég til að
borða minna af þeim suma daga
og tel því þörf á að taka alhliða
vítamín.“
Nánari upplýsingar um Amino
Marine Collagen má finna á vef-
síðunni feeliceland.com.
Laufey hefur
verið búsett í
Kaliforníu frá
árinu 1999. Hún
starfar sem nær-
ingarfræðingur
á sjúkrahúsi en
næringarfræð-
ingar starfa náið
með læknum
og veita ráðgjöf
um næringu
sjúklinga.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R