Fréttablaðið - 04.09.2018, Qupperneq 18
Maukaðar rauðrófur má nota út í pítsudeig. Rófurnar eru ekki bara hollar heldur gefa pítsunni skemmtilegan lit.
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@frettabladid.is
Rauðrófur má matreiða á ýmsan máta, baka í ofni ásamt öðru rótargrænmeti
eða frysta og nota í morgunþeyt-
inginn. Þær má einnig nota út í
pítsudeig en útkoman er stórkost-
lega bleik og bráðholl pítsa.
Rauðrófupítsa
1 bolli volgt vatn
2 tsk. þurrger
480 g hveiti (mætti deila upp í
heilhveiti – rúgmjöl – hveitiklíð á
móti hveitinu)
1 ½ tsk. salt
2 tsk. hunang
¾ bolli maukaðar rauðrófur
(u.þ.b. 2 stórar rauðrófur, bak-
aðar við 170 gráður í ca. 40
mínútur og flysjaðar)
Setjið pítsustein í ofninn og hitið
ofninn í 260 gráður.
Hrærið vatn og ger saman í skál.
Bætið þá mjölinu, salti, hunangi
og rauðrófumaukinu út í skálina
og blandið saman í deig. Hvolfið
deiginu á hveitistráð borð og
hnoðið í um það bil 5 mínútur
eða þar til deigið er orðið mjúkt
og teygjanlegt. Ef deigið er klístrað
þarf að bæta matskeið af hveiti í
einu á borðið og hnoða þar til það
festist ekki lengur við borðið.
Mótið deigið í kúlu. Smyrjið skál
að innan með örlítilli olíu, setjið
deigið í botninn og veltið því í
skálinni svo olían þeki deigið.
Leggið plastfilmu yfir skálina og
látið deigið hefast á hlýjum stað
í 2 tíma eða þar til það hefur tvö-
faldast að stærð. Það mætti skipta
deiginu í tvennt og geyma annan
helminginn í kæli þar til síðar.
Leggið bökunarpappír á borð
og penslið með ólífuolíu. Setjið
deigið á pappírinn og teygið það
til og fletjið út með höndunum.
Penslið olíu á aðra örk af bökunar-
pappír og leggið yfir deigið og
rúllið það út með kefli þar til það
er um 5 mm að þykkt. Færið yfir á
bökunarplötu.
Álegg
Ýmiss konar álegg kemur til
greina. Til dæmis er gott að smyrja
botninn með pestói eða kotasælu,
mylja geitaost yfir og skera niður
spergilkál (mætti snöggsjóða
spergilkálið í 1 til 2 mínútur og
kæla í ísvatni strax á eftir, áður
en það fer á pítsuna). Dembið
pítsunni yfir á pítsusteininn í ofn-
inum með bökunarpappírinn enn
undir. Bakið í 3 mínútur, takið
þá pappírinn undan pítsunni og
snúið henni í leiðinni til á stein-
inum og bakið áfram í 3 mínútur.
Takið pítsuna út úr ofninum og
bætið til dæmis spínati, kletta-
salati og granateplafræjum á hana.
www.bakersroyale.com
Bleikt og bráðhollt
Rauðrófur eru stútfullar af hollustu. Þær innihalda meðal
annars A- og C-vítamín, fólasín, kalk, kalíum og járn.
LÍFIÐ ER Á
FRETTABLADID.IS
Lífið á frettabladid.is fjallar um
fólk, menningu, tísku, heilsu
og margt fleira.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
Þriðjudaginn 11. september mun Fréttablaðið gefa út sérblaðið
NÁMSKEIÐ
Nú þegar haustið fer að ganga í garð þá er vert að skoða hvaða námskeið eru í boði.
Við ætlum að taka viðtöl við aðila sem sækja skemmtileg námskeið og fara yfir
heilsueflandi kosti þess að sækja námskeið reglulega.
Boðið er upp á hefðbundin auglýsingahólf sem og umfjallanir sem eru settar upp af
blaðamanni okkar í góðu samráði við auglýsanda.
Stór dreifing og mikill lestur Fréttablaðsins tryggir að blaðið nær afar vel til
ákjósanlegra markhópa.
Nánari upplýsingar um auglýsingar og umfjallanir fyrir blaðið veitir;
Arnar Magnússon, markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Netfang, arnarm@frettabladid.is Sími: 512-5442
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R