Fréttablaðið - 04.09.2018, Side 20
Ekki er langt síðan að Vlad-ímír Pútín forseti Rússlands fékk nýja forsetabílinn, en
nú gefst almenningi kostur á að
eignast örlítið minni útfærslu hans
frá sama framleiðanda. Þessi bíll,
Aurus Senat, er nú sýndur á bíla-
sýningu í Moskvu. Bíllinn fer í sölu í
janúar á næsta ári og býst rúss-
neski framleiðandinn við að selja
150 eintök af honum fyrsta árið. Í
fyrstu verður hann aðeins í boði í
heimalandinu Rússlandi en fljót-
lega miklu víðar og markmiðið er
þá að selja um 10.000 eintök á ári.
Ekki er því að neita að þessi Aurus
Senat bíll er nokkuð líkur Rolls
Royce Ghost bílnum og svo sem
ekki leiðum að líkjast, en hliðar-
svipurinn, stórt grillið og ferköntuð
aðalljósin skapa þessi líkindi.
Ekki skortir afl né munað
Það er sko engin aumingjavél
undir húddinu á Aurus Senat,
eða 4,4 lítra V8 vél með tveimur
forþjöppum sem skila 598
hestöflum og tengd við 9 gíra
sjálfskiptingu. Þessi vél var þróuð
með hjálp Porsche. Bíllinn er að
auki fjórhjóladrifinn. Viður, leður
og pússað stál er allsráðandi í
innanrými bílsins og bíllinn því
ríkulegur mjög. Hann er mjög vel
tæknilega búinn og með allra-
handa aksturs- og öryggisbúnaði
sem líklega er fenginn frá bíla-
framleiðendum vestar í álfunni.
Framleiðandi Aurus Senat, sem
ber nafnið Nami, hefur ekki enn
látið uppi verð þessa bíls, en það er
örugglega stór haugur af rúblum.
Aurus Senat eins og forsetabíll Pútíns en bara aðeins minni útgáfa hans
Hinn rússneski Aurus Senat er hlaðinn munaði og ekki skortir hann heldur afl.
Nú á tímum gegndarlausrar eftirspurnar eftir jepplingum hafa margir bílaframleið-
endur gripið til þess ráðs að útfæra
þekktar bílgerðir sínar í hækkaðri
mynd og dugar þar að nefna VW
Golf Alltrak, Audi A6/A4 Allroad
og Volvo V90 Cross Country. Með
þessum útfærslum geta bílafram-
leiðendur rukkað kaupendur um
aðeins hærra verð, þrátt fyrir lítinn
þróunarkostnað og sloppið við
að hanna nýja bíla frá grunni. Svo
virðist sem Toyota ætli að vera með
í þessum leik því til stendur að setja
á markað hinn vinsæla Corolla
bíl á stultum og fær hann nafnið
Toyota Corolla Cross, en Toyota er
að minnsta kosti búið að sækja um
einkaleyfi á því nafni.
Mjög litlum sögum fer af því
hvernig þessi bíll verður útbúinn
en víst má telja að auk hækkunar á
undirvagni verði hann með ýmsum
hlífðarplötum svo hann líti nú út
fyrir að vera fær í flestan sjó.
Háfætt Toyota
Corolla á leiðinni
Venjuleg Toyota Corolla bifreið.
Nú stendur yfir bílasýning í Moskvu og þar sýna m.a. innlendir framleiðendur
sína dýrð og auðvitað vantar ekki
Lada-bíla þar. Það er bílaframleið-
andinn AvtoVAZ sem framleiðir
Lada-bíla og þar á bæ hafa menn
sett á sig töffaraskóna og smíðað
tilraunabíl sem leysa á af hinn
klassíska Lada Sport, eða Niva eins
og stór hluti heimsbyggðarinnar
þekkir hann. Þessi bíll er svo mikil
breyting frá forveranum að leitun
er að öðru eins. Þarna fer glettilega
flottur jeppi sem virðist geta tekist
vel á við torfærur. Líkindin með
gamla bílnum eru eiginlega aðeins
fundnar á húddinu og afturstuðar-
anum, restin er gerbreytt. Bíllinn
stendur á ruddalega flottum 21
tommu felgum, en ekki er nú víst
að framleiðslubíllinn verði þannig
útbúinn.
Stórtækar breytingar
Yfirmaður hönnunardeildar Avto-
VAZ segir að fyrirtækið sé að búa
sig undir framtíðina með hönnun
þessa bíls og þeim virðist bara hafa
Lada Sport töffari í Moskvu
Það er bílaframleiðandinn AvtoVAZ sem framleiðir Lada-bíla og smíðaði til-
raunabíl sem leysa á af hinn klassíska Lada Sport sem Íslendingar þekkja vel.
Hér er sko
aldeilis komið
gerbreytt útlit á
Lada Sport sem
ekki þótti fríð
áður.
Í nýrri skýrslu stjórnvalda um skatta á ökutæki kemur fram að frá og með 1. september og
til næstu áramóta verði notast við
gamla útblástursgildið NEDC, en
fyrir bíla sem einungis munu hafa
nýja gildið, WLTP, verði það lækkað
um 17,36% í mótvægis aðgerðum.
Frá byrjun árs 2019 ætla stjórnvöld
svo að falla frá 10 flokka vöru-
gjaldstöflunni og taka upp línulega
álagningu en áfram verður notast
við NEDC-gildið á þeim bílum sem
hafa það áfram á COC-vottorðum
sínum. Árið 2020 mun svo gamla
gildið, NEDC, falla niður alfarið,
við innflutning á nýjum bílum, en
áfram verður stuðst við línulega
vörugjaldaálagningu.
Stjórnvöld stóðu við sitt
Miðað við fyrstu skoðun Bílgreina-
sambandsins þá eru stjórnvöld að
koma til móts við þær áhyggju-
raddir sem hafa verið uppi vegna
hærri útblástursgilda samkvæmt
nýju mælingaraðferðinni WLTP.
Því ættu bílaumboð landsins að
geta andað aðeins rólegar, en
stjórnvöld hafa hingað til lýst því
yfir að þessar nýju mælingar í
mengunargildum muni almennt
ekki hækka verð á nýjum bílum.
Það má þó búast við því að sumir
bílar muni hækka í verði með nýju
WLTP-gildunum og aðrir lækka.
Þetta gæti því breytt því aðeins
hvaða bílar verða freistandi til
kaupa og hverjir missa vinsældir
sökum hærra verðs.
Línuleg álagning
og 17,36% lækkun á WLTP
Umferðin í Reykjavík er þung á álagstímum og útblástur frá bílum því mikill.
tekist ansi vel upp. Ný Lada Sport er
örlítið styttri bíll en Dacia Duster,
en hærri á vegi og með slaglengri
fjöðrun og brattari aðfallshornum
að framan og aftan og því torfæru-
hæfari bíll. Ennfremur eru stærri
hjólaskálar á bílnum og því hægt að
setja stærri dekk undir hann. Ekki
er ljóst hvaða vélar verða í boði í
bílnum, en víst er að hann verður
í boði sjálfskiptur og með háu og
lágu drifi. Að innan er líka búið að
færa Lada Sport inn í framtíðina
og hann er til dæmis með tveimur
skjáum í mælaborðinu. Tæknilega
er bíllinn líka kominn vel inní 21.
öldina öndvert við forverann og
tveggja svæða sjálfvirk miðstöð,
Bluetooth-tenging, skriðstillir og
fleira góðgæti færir þennan Lada
Sport heila öld fram í tímann.
Ný reglugerð
um skatta á öku-
tæki vegna nýju
WLTP-útblásturs-
gildanna mun
ekki hækka verð á
bílum að jafnaði.
TILBOÐ
Icetrack ehf. Sími 773 4334 · mtdekk@mtdekk.is
www.mtdekk.is
DEEGAN 38 A/T 285/70R17
kr. 37.900 stk.
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R2 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍLAR