Fréttablaðið - 04.09.2018, Síða 22
Fáir verða fyrir
vonbrigðum
við að stíga inní
þennan bíl. Það
sem enn meira
máli skiptir er
hve vel er frá
öllu gengið og
smíðin góð, sem
reyndar ein-
kennir Kia-bíla.
Þrautabrautin sem reyndi mikið á aksturshæfni blaðamanna og bílsins.
Kia Ceed mun
einnig fást sem
langbakur og verður
hann 95 mm lengri og
með 625 lítra flutnings-
rými, það stærsta í þess-
um flokki bíla. Síðan
kemur að „Shooting
Break“ útfærslu bílsins.
Reynsluakstur
Finnur
Thorlacius
finnurth@frettabladid.is
KOSTIR OG GALLAR
KIA CEED ● 1,4 LÍTRA BENSÍNVÉL ● 140 HESTÖFL
● FRAMHJÓLADRIF
Eyðsla frá: 5,6 l/100 km í bl. akstri
Mengun: 125 g/km CO2
Hröðun: 9,2 sek. í 100 km hraða
Hámarkshraði: 205 km/klst
Verð frá: 2.990.777 kr.
Umboð: Askja
● Útlit
● Aksturshæfni
● Smíðagæði
● Búnaður
● Lítið vélarúrval enn sem
komið er
Askja kynnti nýja þriðju kyn-slóð Kia Ceed í lok síðasta mánaðar en fyrri kynslóðir
hans hafa reynst æði vinsælar
hér á landi sem víðar og er það
ekki að ósekju. Ceed, eins og aðrir
Kia-bílar, eru einstaklega bilana-
frír og það er engin furða að Kia
sitji í efsta sæti á flestum þeim
listum sem mæla lága bilanatíðni
og ánægju bíleigenda. Kia Ceed
kom fyrst til sögunnar árið 2006 og
önnur kynslóð hans var kynnt árið
2012. Ceed fellur í C-stærðarflokk
bíla og er með 4,5% af heildarsölu
bíla í þessum flokki og seldust
98.000 slíkir í Evrópu á síðasta ári.
Kia hefur ekki lengt Ceed á milli
kynslóða, eins og svo títt er með
nýjar kynslóðir bíla, en hann er
þó 2 cm breiðari. Ceed hefur frá
byrjun verið snotur bíll útlits en
þessi nýja kynslóð tekur þeim
fyrri þó vel fram og ekki skaðar að
hann erfir ýmis útlitseinkenni frá
fegurðardísinni Kia Stinger. Núna
gerir flatari gluggalína bílinn lengri
ásýndar og þar sem húddið hefur
verið lengt um 7 cm virðist bíllinn
allur veglegri og stærri. Eina ferð-
ina enn er bíll sem teiknaður er
undir yfirumsjón Peters Schreyer
sláandi laglegur þó hann nái samt
Kia Stinger seint.
Líka langbakur
og „Shooting Brake“
Kia Ceed mun einnig fást sem
langbakur og verður hann 95 mm
lengri og með 625 lítra flutnings-
rými, það stærsta í þessum flokki
bíla. Stallbakurinn er með 395 l
rými og hefur það stækkað um
15 lítra á milli kynslóða. Auk
þess skartar hann stærstu skott-
opnuninni í sínum flokki sem og
lægstu hleðslustöðunni. Ceed mun
ekki lengur fást með 3 hurðum,
eingöngu 5, og munu fáir gráta þá
tilhögun. Síðar mun enn bætast
í útgáfuflóru Ceed því von er á
„Shooting Brake“-útgáfu bílsins
og fer þar sjúklega flottur bíll sem
þeir blaðamenn sem sóttu kynn-
inguna á Ceed í Algarve í Portúgal
í sumar fengu að sjá. Sá bíll verður
kynntur á fjórða fjórðungi þessa
árs. Kia hefur aukið verulega hlut-
fall hástyrktarstáls í bílnum og
gert hann 30% stífari, en að auki
hefur hann lést um 23 kíló á milli
kynslóða. Kia ætlar ekki að kynna,
a.m.k. ekki á næstunni, neina raf-
magnsútgáfu Ceed, en þar teflir Kia
hvort sem er fram nokkrum bílum,
bæði í tengiltvinnútgáfum sem og
hreinræktuðum rafmagnsbílum.
Kia lagði mikla áherslu á aksturs-
gæði nýs Ceed og í því augnamiði
var tilraunagerðum hans mikið
ekið á Nürburgring-brautinni. En
hvernig skyldi hafa tekist til?
Mögnuð akstursgeta
Í sem fæstum orðum þá hefur
aksturshæfni bílsins aukist
mikið og til að sýna það með sem
skýrustum hætti setti Kia upp
ýmsar skemmtilegar þrautabrautir
Fimari og fríðari Kia Ceed
Þriðja kynslóð Kia Ceed var að lenda og mikil bót hefur orðið á aksturshæfni hans og hann er
nú enn fríðari bíll. Ekki er að spyrja að smíðagæðum í þessum bíl frekar en í öðrum bílum frá Kia.
Kia Ceed kom fyrst til sögunnar árið 2006 og önnur kynslóð hans var kynnt árið 2012. Ceed fellur í C-stærðarflokk bíla og hefur selst mjög vel í Evrópu.
í reynsluakstrinum í Portúgal og
þar reyndi mjög á bílinn og var
hreint með ólíkindum hversu mjög
mátti leggja á hann. Til dæmis var
hann þaninn úr kyrrstöðu og upp
í um 70 km hraða og þá skyldi
forðast hindrun (bara keila þó)
með því að rífa bílinn til hliðar og
snarhemla skömmu síðar. Þetta
gerði bíllinn svo fimlega að furðu
sætti og ökumaður sat eftir með
„hissuna“ á andlitinu. Einnig var
lögð lengri þrautabraut sem fara
skyldi á tíma og þar reyndi sko á
aksturshæfni bílsins og galið hvað
hann gat. Gaman er að geta þess
að af þeim 126 blaðamönnum
sem staddir voru þarna náðu
tveir Íslendingar 1. og 3. sæti í
brautinni. Askja býður Ceed í upp-
hafi með 1,4 lítra og 140 hestafla
T-GDI bensínvél, sem og 1,0 lítra
og þriggja strokka vél sem skilar
120 hestöflum. Báðar þessar vélar
reyndust þrælskemmtilegar og
bíllinn snarpur með þeim báðum.
Ceed er þó líka framleiddur með
1,6 lítra dísilvél sem fá má í 115 og
136 hestafla útfærslum.
Teiknaður í Evrópu
Það sést mjög vel á Kia Ceed að
hann er teiknaður í Evrópu fyrir
Evrópubúa, bæði að utan sem
innan. Fáir verða fyrir vonbrigðum
við að stíga inn í þennan bíl. Það
sem enn meira máli skiptir er hve
vel er frá öllu gengið og smíðin
góð, sem reyndar einkennir Kia
bíla. Auk þess er bíllinn merki-
lega vel hlaðinn tæknibúnaði, t.d.
árekstrarvara sem bremsar sjálfur,
bílastæðaaðstoð, akreinaaðstoð,
hita og kælingu í sætum og fá má
hann með frábæru 320 watta JBL
hljóðkerfi. Kia Ceed má fá í ódýr-
ustu útfærslu á 3 milljónir með 1,0
lítra vélinni og í sparibúningi með
1,4 lítra vélinni upp að 4 millj-
ónum króna. Kia Ceed er og hefur
alltaf verið mjög samkeppnishæfur
bíll í sínum flokki og margir munu
áfram meta 7 ára ábyrgðina sem
á honum og öðrum Kia-bílum er,
lága bilanatíðni hans og nú ferlega
flott útlit og mikla aksturshæfni.
Þessi bíll mun áfram seljast vel á
Íslandi af skiljanlegum ástæðum.
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R4 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍLAR