Fréttablaðið - 04.09.2018, Blaðsíða 26
Loksins kom að því að BMW sýndi endanlegt útlit sport-bílsins BMW Z4 sem fyrirtækið
þróaði í samstarfi við Toyota. Það
gerðist fyrir skömmu í Monterey í
Kaliforníu. BMW sýndi svokallaða
Z4 M40i First Edition útgáfu bílsins
sem er með 6 strokka og 3,0 lítra vél
sem afkastar 340 hestöflum. Það
dugar honum til að taka sprettinn
í 100 á 4,6 sekúndum. BMW Z4
er með jafna þyngdardreifingu á
öxlunum eins og sönnum sportbíl
sæmir. BMW ætlar brátt að upplýsa
hvaða aðrir vélarkostir verða í boði
og þá má búast við því að fjögurra
strokka vél með forþjöppu bætist
við úrvalið. Þá mun BMW vafalaust
í leiðinni upplýsa hvaða verðmiði
verður á þessum grip sem skiptar
skoðanir voru um hvað fegurð
varðar. BMW þróaði þennan bíl í
samstarfi við Toyota og fær útgáfa
hans frá Toyota líklega nafnið Supra.
BMW sviptir
hulunni af Z4
Útlit BMW Z4 sportbílsins er umdeilt.
Í dag, 4. september, mun Mercedes Benz svipta hulunni af sínum fyrsta rafmagnsbíl í
röð bíla sem bera munu nafnið EQ.
Mun það gerast í Stokkhólmi. Þessi
bíll verður rafmagnsjeppi sem
fær heitið EQ C og er í grunninn
byggður á GLC-jeppa Benz. Þegar
þessi bíll kemur á markað verður
hann líklegast af árgerðinni 2020.
Heyrst hefur að bíllinn verði
með tvo rafmagnsmótora með
samtals 402 hestöfl sem send
eru til allra hjóla bílsins. Drægi
hans verður á bilinu 400 til 480
km. Þessar tölur benda til þess
að bílnum verði att gegn öðrum
rafmagnsjeppum sem þegar eru
komnir á markað, svo sem Tesla
Model X, Jaguar I-Pace og Audi
E-Tron. Því má telja líklegt að hann
muni kosta nálægt 70.000 doll-
urum, eða ríflega 7 milljónir króna.
Mercedes Benz ætlar að smíða
marga bíla undir merkjum EQ,
enda líkt og aðrir bílaframleið-
endur með mikil áform er kemur
að rafmagnsbílum.
Fyrsti EQ-rafmagnsbíll Benz frumsýndur í dag
Mercedes Benz EQ C er fyrsti hreinræktaði rafmagnsbíllinn frá Benz.
Hyundai á Íslandi kynnir nk. laugardag, 8. september, nýja og uppfærða útgáfu af
Tucson sem er einn af vinsælustu
sportjeppum framleiðandans.
Bíllinn hefur fengið uppfærða og
snarpari 1,6 lítra og 136 hestafla
dísilvél með forþjöppu en auk þess
er hægt að fá bílinn með nýrri, sk.
„mildri tvinntækni“ (Mild Hybrid)
sem Hyundai hefur valið að frum-
sýna með Tucson. Við 1,6 lítra
dísilvél Tucson er ný og afar skil-
virk sjö gíra DCT-sjálfskipting sem
dregur úr eldsneytiseyðslu um 0,9
lítra að meðaltali á hverja hundrað
kílómetra þar sem hún fer úr 6,1 l
í 5,2 l við blandaðan akstur. Þá er
bíllinn ennfremur kominn með
HTRAC-fjórhjóladrif sem upphaf-
lega var hannað fyrir lúxusmerkið
Genesis.
Mild Hybrid
Tucson er fyrsti bíll Hyundai sem
fáanlegur er með Mild Hybrid-
tækninni, 48 volta og 12 kW
hjálparrafmótor sem hefur það
hlutverk fyrst og fremst að draga
úr eldsneytisnotkun og losun
koltvísýrings. Tækni Mild Hybrid
í Tucson er frábrugðin tækni hefð-
bundinna tvinnbíla að því leyti að
rafmótor Tucson er ekki hugsaður
sem aflgjafi sem vinnur stöðugt
með sprengihreyflinum heldur
Hyundai kynnir
uppfærðan Tucson
Tucson er fyrsti bíll Hyundai sem fáanlegur verður með Mild Hybrid-tækninni,
48 volta og 12 kW hjálparrafmótor sem hefur það hlutverk fyrst og fremst að
draga úr eldsneytisnotkun og losun koltvísýrings og telst því vera „grænni“.
Uppfærður
Hyundai Tucson
sem nú er
kominn með
Mild Hybrid
tækni.
BMW hefur á undanförnum árum verið það bílafyrirtæki sem náð hefur hlutfallslega
mestum hagnaði af sölu bíla sinna,
en nú ber svo við á öðrum fjórðungi
þessa árs að Suzuki skákar BMW í
þessu tilliti. Suzuki náði 11,8% hagn-
aði af sölu en BMW var á sama tíma
með 11,4%. Á meðan allt gengur
Suzuki í haginn hefur BMW misst
titilinn söluhæsta lúxusbílafyrirtæki
heims til Mercedes Benz og flækst
að auki í dísilvélasvindl eins og svo
margir aðrir bílaframleiðendur og
geldur nú að auki fyrir þá innflutn-
ingstolla sem Trump hefur sett á
innflutta bíla í Bandaríkjunum.
Suzuki hefur hins vegar upplifað
síaukna eftirspurn eftir bílum fyrir-
tækisins í vanþróaðri löndum og
jók til dæmis hagnaðinn af sölu bíla
sinna á Indlandi um 68% á milli ára.
Indland er stærsti markaðurinn fyrir
Suzuki-bíla.
Suzuki skákar
BMW í hagnaði
Suzuki Swift er vinsæll víða um heim.
eingöngu sem hjálparaflgjafi við
vissar kringumstæður þegar reynir
á dísilvélina og eldsneytiseyðslan
eykst. Þá kemur 12 kW hjálpar-
rafmótorinn inn til að sporna við
aukinni eyðslu.
Svipsterkur sportjeppi
Tucson hefur ávallt verið svip-
sterkur sportjeppi vegna flæðandi
hliðarlína, stórra hjólfelga,
áberandi brettakanta og sterk-
byggðra þakboga sem undirstrika
góða eiginleika bílsins til aksturs
við misjafnar aðstæður. Þessir
eiginleikar eru undirstrikaðir enn
betur með breyttri útlitshönnun
Tucson, sem m.a. hefur fengið ný
aðalljós með LED sem gefa honum
enn svipsterkara yfirbragð. Þau ná
upp í efstu horn stallaða grillsins
og eru miðpunktur hins endur-
hannaða framhluta. Ný LED-ljósa-
samstæða blasir við að aftan sem
einnig gefur einkennandi útlit og
aukinn sýnileika. Að auki hafa
fram- og afturstuðari verið endur-
hannaðir í nýju útliti sem ýtir enn
undir sérkennandi útlit sport-
jeppans.
Nýtt mælaborð
og 8" miðjuskjár
Í farþegarými Tucson blasir við
breytt hönnun þar sem nýtt
mælaborð og 8" snertiskjár eru
mest áberandi auk vandaðra
leðuráklæða og textílefna sem
gefa bílnum fágaðra heildaryfir-
bragð. Á þægindasviðinu skapar
rafstýrð handbremsa meira pláss
á miðstokknum fyrir þráðlausa
hleðslustöð fyrir snjallsíma.
Þá auðveldar 360° umhverfis-
myndavélakerfið ökumanni
að leggja bílnum í stæði auk
þess sem leiðsögukerfið styðst
við þrívíddarkort og fimm ára
endurgjaldslausa áskrift að LIVE
Services sem veitir m.a. aðgang
að upplýsingum um veður,
umferð og fleira. Að lokum má
nefna að Tucson er búinn nýjustu
akstursöryggis- og aðstoðartækni
Hyundai, svo sem sjálfvirkri
hemlun, akreinavara, blindhorns-
viðvörun og annarri öryggistækni.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
Revolution Macalibrium®
Karlmenn sem komnir eru á miðjan aldur glíma margir
hverjir við einkenni sem rekja má til minnkandi
framleiðslu testósteróns.
Revolution Macalibrium er blanda ólíkra arfgerða
macajurtarinnar, sérstaklega ætluð karlmönnum til að
draga úr þessum einkennum og koma meira jafnvægi á
hormónabúskapinn.
Maca er afar virk rót og því er ráðlagt að byrja á því að taka 1 hylki á dag og
bæta við öðru hylki eftir 1-2 vikur. Eftir 3-4 mánuði má minnka skammtinn
aftur niður í 1 hylki en það gæti nægt til að viðhalda jafnvægi.
Meiri kynlöngun
- minni kvíði
Hefur góð áhrif á:
Orku og úthald
Beinþéttni
Kynferðislega virkni
Frjósemi og almennt heilbrigði
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R8 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍLAR