Fréttablaðið - 04.09.2018, Side 28
Ég hef líka stundað
lotubundna föstu í
nokkur ár núna en er
ekki með fastan ramma
sem þýðir að ég borða
eingöngu þegar ég er
svöng sem er misjafnt
milli daga. Fyrsta mál-
tíðin er yfirleitt ekki fyrr
en í kringum hádegið,
stundum fyrr, stundum
seinna.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
Linda æfði áhaldafimleika í níu ár og stundaði hópfimleika með Gerplu í þrjú ár. Í dag
stundar hún Crossfit og starfar sem
einkaþjálfari í Reebok Fitness en
hún lærði einkaþjálfun í Íþrótta-
akademíunni.
Hvað æfir þú oft í viku?
Þrisvar til fjórum sinnum.
Hver er uppáhaldsæfingin þín?
Fyrir utan handstöðu verð ég að
segja bulgarian split squat.
Hver er besta teygjan?
Efra baks teygjan eða figure 4.
Aðhyllist þú einhverja sérstaka
stefnu í mataræði?
Borða það sem mér líður vel
með að borða og fer vel í mig.
Ég reyni að borða sem mest úr
plönturíkinu og vel af fitu til að
fá jafnari og stöðugri orku yfir
daginn. Ég hef líka stundað lotu-
bundna föstu í nokkur ár núna
en er ekki með fastan ramma sem
þýðir að ég borða eingöngu þegar
ég er svöng sem er misjafnt milli
daga. Fyrsta máltíðin er yfirleitt
ekki fyrr en í kringum hádegið,
stundum fyrr, stundum seinna. Ég
borða um tvær til þrjár stórar mál-
tíðir yfir daginn.
Ég hef gengið í gegnum miklar
meltingartruflanir gegnum árin
og það að leyfa líkamanum að
stjórna hvenær hann fær mat
og hvíla meltinguna þar á milli
hefur hjálpað mér ótrúlega mikið.
Líkaminn fær tíma til að sinna
öðrum verkefnum og öllum líður
betur.
Er eitthvað sem þú neitar þér um?
Ég er með ofnæmi fyrir mjólk og
soja svo ég forðast það algjörlega.
Ég reyni að forðast hvítan sykur,
sætuefni og önnur fylliefni en leyfi
mér allt í hófi. Ég hef minnkað
neyslu á rauðu kjöti og kjúklingi
verulega undanfarið en borða
ennþá fisk og egg.
Getur þú lýst dæmigerðum mat-
seðli yfir daginn?
Fyrsta máltíðin gæti verið til
dæmis chia-grautur með fjalli af
hituðum berjum, hampfræjum,
kókosflögum og blöndu af möl-
uðum fræjum. Eða þykkt rautt
boozt í skál með hnetusmjöri,
kókos flögum og frosnum blá-
berjum ofaná.
Önnur máltíð gæti verið steikt
Borða bara þegar ég er svöng
Einkaþjálfarinn Linda Björk Árnadóttir mælir með því að fólk finni sér þá hreyfingu sem það hefur
gaman af. Þá sé gott að hlusta á líkamann og borða eingöngu vegna hungurs en ekki af vana.
Linda Björk Árnadóttir einkaþjálfari reynir að borða sem mest úr plönturíkinu og vel af fitu. MYND/EYÞÓR
Taco er hægt að gera á margvíslegan hátt. Litlu tortilla-kökurnar eru frá-
bærar í mjúkt taco með risarækj-
um. Rækjurnar eru kryddaðar með
ólífuolíu, papriku, cumin, salti og
hvítlaukskryddi. Með þeim er haft
ferskt salsa og lárperumauk sem er
mjög gott. Þetta er mjög einfaldur
réttur og góður.
Salsa
2 ferskjur, skornar smátt
½ rauð paprika, skorin smátt
½ laukur, smátt skorinn
Safi úr einni límónu
1 msk. ólífuolía
Smávegis ferskt kóríander og salt
Öllu blandað saman í skál.
Gott er að hafa lárperumauk með
en í það þarf eina lárperu, 1 msk.
sýrðan rjóma, safa úr hálfri lím-
ónu, salt og ferskt kóríander. Setjið
allt í matvinnsluvél.
Einnig er gott að hafa sýrðan rjóma
með sriracha-sósu. Sex msk. sýrður
rjómi og 3 tsk. sriracha hrært
saman.
Steikið rækjurnar í olíu í stutta
stund. Setjið í volga tortillu og
kreistið límónusafa yfir. Setjið
salsa yfir ásamt sósunni. Setjið
meiri sriracha-sósu ef þið viljið
hafa þetta sterkara.
Taco með risarækjum
Rækjur eru góðar í mjúkt taco með fersku salsa og lárperumauki.
egg eða stökkar kjúklingabaunir
með helling af grænmeti. Eða
samloka með túnfisk í tahini sósu,
avókadó, tómatsneiðum og káli.
Þriðja máltíð gæti verið kókos-
karrý fiskisúpan mín eða sítrónu-
lax með sætkartöflumús, hvít-
laukssósu úr sýrðum hafrarjóma
og ferskt salat með.
Hvað borðar þú fyrir og eftir
æfingu?
Það fer allt eftir hvenær æfingin
er hvort ég borði eða ekki. Fyrir
mig er ekkert mál að taka vel á því
á æfingu án þess að borða ef ég
borðaði vel daginn áður. Annars
borða ég ekkert öðruvísi fyrir
eða eftir æfingu, bara sama og
venjulega en þó með aðeins meiri
áherslu á próteingjafa eftir æfingu.
Hvaða borðar þú milli mála?
Þegar það gerist leita ég í hnetur
og fræ, ferskt grænmeti eins og
papriku, gulrætur og gúrku eða
ávexti eins og banana, epli og
vínber
Lumar þú á einhverjum góðum
heilsuráðum?
- Að hlusta á líkamann og borða
eingöngu þegar hann er raunveru-
lega svangur en ekki af vana eða
þorsta. Ég bendi fólki á að þamba
tvö glös af vatni, bíða í 30 mínútur
og sjá svo til.
- Að finna þá hreyfingu sem fólk
hefur gaman af. Besta planið fyrir
þig er það plan sem þú munt fylgja.
- Kókosolía til steikingar, sem
tannkrem, hárnæring, body lotion,
farðahreinsir, rakamaski, græðir,
varasalvi, handáburður … nefndu
það bara.
LOSAÐU ÞIG VIÐ FÓTAPIRRINGINN
Sölustaðir: Flest apótek og www.heilsanheim.is
Ertu að glíma
við fótapirring og
sinadrátt á nóttinni?
MAGNESÍUM NIGHT
húðvörurnar geta
hjálpað þér.
Innihalda:
Magnesíum
Arnica
Lavender
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R