Fréttablaðið - 04.09.2018, Side 34
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Þriðjudagur
hvar@frettabladid.is
4. SEPTEMBER 2018
Tónlist
Hvað? Waco á Kexi
Hvenær? 20.30
Hvar? Kex hostel, Skúlagötu
Á næsta djasskvöldi Kex Hostels,
þriðjudaginn 4. september, kemur
fram norræni kvartettinn Waco
en hann skipa þeir Martin Myhre
Olsen á saxófóna, Kjetil André
Mulelid á píanó, Bárður Reinert
Poulsen á kontrabassa, og Simon
Olderskog Albertsen á trommur.
Kvartettinn hefur starfað síðan
2014, leikið víða um lönd og feng-
ið frábæra dóma. Tónlistin hefst
kl. 20.30 og er aðgangur ókeypis.
Kex Hostel er á Skúlagötu 28.
Hvað? Austurvígstöðvarnar í
Bæjarbíói
Hvenær? 20.30
Hvar? Bæjarbíó, Hafnarfirði
Ljóðapönksveitin Austurvígstöðv-
arnar sendi frá sér hina umdeildu
hljómplötu Útvarp Satan í sumar
og vakti hún talsverða eftirtekt
ekki síst fyrir hárbeitta ádeilu-
texta Davíðs Þórs Jónssonar. Í
tilefni af útgáfu plötunnar hafa
Austurvígstöðvarnar verið dug-
legar við tónleikahald og spilaði
hljómsveitin meðal annars á rokk-
hátíðinni Eistnaflugi í sumar við
góðar undirtektir. Nú er komið
að útgáfutónleikum í Bæjarbíói í
Hafnarfirði þar sem Útvarp Satan
verður leikin í heild sinni.
Viðburðir
Hvað? Argentínskur Tangó
Hvenær? 20.00
Hvar? Iðnó
Opinn kynningartími kl. 20-21,
allir velkomnir og ekki þarf að
mæta með dansfélaga. Dj er Þor-
varður. Njótum þess að dansa á
frábæru dansgólfi í yndislegu húsi.
Aðgangseyrir er kr. 1.000 en frítt
er fyrir 30 ára og yngri.
Hvað? Kevin Hart í Laugardalshöll
Hvenær? 20.00
Hvar? Laugardalshöll
Kevin Hart hefur skapað sér nafn
sem einn helsti grínisti, skemmti-
kraftur, höfundur og viðskipta-
maður afþreyingarbransans í dag.
Nú leggur hann af stað í einn allra
stærsta gríntúr fyrr og síðar og
við erum svo heppin að fá stór-
stjörnuna til Íslands með nýju
sýninguna sína. Nýja sýningin
hans, Irresponsible, er hlaðin
kostulegum sögum, beittum
húmor og hefur hvarvetna fengið
frábærar viðtökur. Því er óhætt
að lofa þeim sem mæta í Höllina
4. september útkeyrðum hlátur-
taugum að henni lokinni.
Hvað? Bókmenntakvöld með Lilju
Sigurðardóttur
Hvenær? 19.30
Hvar? Bókasafn Seltjarnarness
Lilja Sigurðardóttir rithöfundur
les upp úr og fjallar um bók sína
Búrið, en hún hlaut Blóðdropann
fyrir bestu íslensku glæpasöguna
2018. Búrið er lokaþátturinn í
þríleik Lilju um eiturlyfjasmygl,
efnahagsglæpi og eldheita ást í
Reykjavík samtímans. Fyrri bæk-
urnar, Gildran og Netið, koma að
sjálfsögðu einnig við sögu en þær
hafa einnig hlotið frábærar við-
tökur. Allir velkomnir – kaffi og
meðlæti.
Hvað? Bókarkynning á Gleymnu
óskinni eftir Ólaf Stefánsson og
Kára Gunn
Hvenær? 20.00
Hvar? Norðurbakkinn, Hafnarfirði
Bókakynning með léttu ívafi á
bókinni: Gleymna óskin eftir Ólaf
Stefánsson og Kára Gunnarsson
teiknara. Kynningin verður með
léttu sniði og við allra hæfi
Hvað? Hvernig breyttu „fjórar
dætur Guðs“ Íslandi? Erindi í Nes-
kirkju
Hvenær? 17.00
Hvar? Neskirkja
Jørn Øyrehagen Sunde, prófessor
við lagadeild háskólans í Björgvin
heldur erindið Hvernig breyttu
„fjórar dætur Guðs“ Íslandi?
Magnús lagabætir, Jónsbók og
samfélagsbyltingin á 13. öld.
Hvað? Stafræn tungumálaverk-
efni – kynjamunur?
Hvenær? 16.15
Hvar? Veröld – hús Vigdísar
Í fyrirlestrinum verður kynnt
verkefni sem unnið var að í
tengslum við vinnustofu í starf-
endarannsóknum (ARC) við
Nýmálasetrið í Graz. Nemendur
í dönsku á fyrsta ári í framhalds-
skóla, ásamt kennurum, lögðu
þar Þórhildi lið. Nemendur leystu
verkefni, sem fólst í því að velja
fréttir á netinu og kynna þær fyrir
samnemum sínum á Facebook
með eigin texta. Sjónum verður
einkum beint að þátttöku, efnis-
vali og kynningu nemendanna
með tilliti til kynjamunar.
Hvað? Uppskerutíð í matjurta-
garðinum
Hvenær? 17.00
Hvar? Nytjajurtagarður Grasa-
garðs Reykjavíkur
Garðyrkjufræðingar Grasa-
garðsins, félagar úr Hvönnum
– matjurtaklúbbi Garðyrkjufélags
Íslands, fræða gesti um leiðir til
að meðhöndla uppskeruna úr
mat- og kryddjurtagarðinum svo
ekkert fari til spillis. Þá verður
fjallað um hvernig best er að
undirbúa garðinn fyrir veturinn.
Einnig munu félagar úr Seljagarði
– borgarbýli kynna starfsemi sína.
Fræðslan fer fram í nytjajurtagarði
Grasagarðsins við Laugatungu
sem er rétt austan við aðalinngang
Grasagarðsins og er hægt að koma
við hvenær sem er á milli kl. 17.00
og 18.30.
Hvað? Ancient Antigonea –
searching for the lost city in the
Republic
Hvenær? 17.00
Hvar? Bókasafn Hafnarfjarðar
Þann 4. september kl. 17.00 mun
Dorota Sakowicz fjalla um hina
fornu borg Antigoneu á bóka-
safninu í Hafnarfirði. Dorota er
með MA í fornleifafræði og lista-
sögu og er nú í doktorsnámi við
háskólann í Gdansk. Fyrirlestur-
inn fer fram á pólsku kl. 17.00 og
ensku kl. 18.00.
Sýningar
Hvað? Náttúrulega | Solveig Thor-
oddsen
Hvenær? 16.00
Hvar? Ekkisens, Bergstaðastræti
Solveig Thoroddsen sýnir verk
sem fjalla um náttúruna og tengsl
manneskjunnar við hana.
Hvað? Myndlistarsýning | Svífur
að hausti
Hvenær? 16.00
Hvar? Bókasafni Kópavogs
Inga Kristjánsdóttir sýnir olíu-
málverk á striga sem máluð eru á
síðustu tveimur árum. Verkin tjá
lífsgleði sem á jafnt við á hausti
sem og á öðrum tímum.
Kona fer í stríð (ENG SUB) ............. 18:00
Kvíðakast (Atak Paniki) ................... 18:00
Andið eðlilega (ENG SUB) ............. 18:00
Whitney .................................................... 20:00
Kvíðakast (Atak Paniki) ................... 20:00
Nýjar hendur (ENG SUB) ................. 20:00
Adrift .......................................................... 22:00
Svanurinn (ENG SUB) ....................... 22:00
Whitney ..................................................... 22:20
HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS
Davíð Þór Jónsson hefur vakið athygli fyrir hárbeitta ádeilutexta í lögum Austurvígstöðvanna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Lilja Sigurðardóttir les upp bók sinni
Búrinu í Bókasafni Seltjarnarness í
kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Hlíðarendi 20-26
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 15. ágúst 2018 og borgarráði Reykjavíkur þann 23.
ágúst 2018 2018 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna
lóðarinnar nr. 20-26 við Hlíðarenda. Í breytingunni felst að valkvætt verður að byggja bílageymslu fyrir
atvinnuhúsnæði á jarðhæð eða í bílakjallara. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Vesturlandsvegur Hallar
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 15. ágúst 2018 og borgarráði Reykjavíkur þann 23. ágúst
2018 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á skilmálum deiliskipulags Vesturlandsvegar Halla.
Í breytingunni felst að fellt er úr gildi 1000 fermetra lágmarksstærð einstakra verslana. Nánar um
tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögur má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1.
hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 4. september 2018 til og með 16. október 2018. Einnig má sjá
tillögurnar á vefnum, www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna
að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila
skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 16. október 2018.
Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Reykjavík 4. september 2018
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Auglýsing um tillögur að breytingu
á deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér
með auglýstar tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R16 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð