Fréttablaðið - 04.09.2018, Síða 39
RAFRETTUR
Reykingar nútímans eru í formi
rafrettna og vape-búðir spretta upp
eins og gorkúlur um landið. Nú er
komin ný reglugerð um markaðs-
setningu á rafrettum en markmiðið
með reglugerðinni er að tryggja
að einungis séu seldar rafrettur og
áfyllingar sem uppfylla öryggis-
staðla og þau viðmið sem gilda hér
á landi. Rafrettur verða flokkaðar
eins og tóbak samkvæmt frumvarpi
um breytingar á lögum um tóbaks-
varnir.
Rúmur helmingur drengja undir
átján ára aldri í framhaldsskólum
hefur prófað rafrettu. Rafrettur
eru og verða deilumál næstu árin
og aðeins sagan mun skera úr um
hvort það sé rétt að flokka þær sem
tóbak eða ekki.
landi sínu sjónvarpsstöð, sem eys
yfir þá soranum einum úr andlegu
lífi stórþjóðar. Slíka sendistöð ber að
afmá, en ekki að magna, eins og nú
hefur verið leyft.“ Síðar sögðu þeir:
„Menn kunna að deila um, hvort Ís-
lendingar geti staðið undir kostnaði
af eigin sjónvarpi, en hitt ætti að
vera ágreiningslaust, að betra sé
að vera sjónvarpslaus en lúta að
erlendu hermannasjónvarpi.“
Pípurnar miklu betri
Sígarettuóþverrann hefur oft
borið á góma í ræðustól. Eitt sinn
þegar var verið að ræða varnir gegn
sígarettureykingum lögðu þeir Jón
Skaftason, Pálmi Jónsson, Eðvarð
Sigurðsson, Benedikt Gröndal
og Hannibal Valdimarsson fram
þingsályktunartillögu þar sem bent
var á skaðsemi sígarettunnar. En þar
var einnig sagt að vindlar og pípur
væru miklu betri kostur. Þau væru
nánast skaðlaus. „Á það skal bent,
að allt það, sem hér hefur verið
sagt um reykingar, á aðeins við um
sígarettureykingar.
Enda þótt pípu- og vindla-
reykingar séu ekki alveg hættu-
lausar, er skaðsemi þeirra hverfandi
borin saman við sígarettureykingar.
Sjúkdóms- og dánarlíkur minnka,
ef menn hætta reykingum og fara
minnkandi með hverju ári sem
líður, en ef menn treysta sér ekki til
að hætta alveg, er pípa eða vindlar
betra úrræði en sígarettur.“ Svo
mörg voru þau orð.
Aron Einar Gunnarsson, fyrir-liði íslenska karlalandsliðs-ins í knattspyrnu, og eigin-
kona hans, Kristbjörg Jónasdóttir,
afrekskona í fitness, eignuðust
dreng í gær. Barnið er þeirra annað
barn en fyrir eiga þau soninn Óliver.
Barnið kom í heiminn á Princess
of Wales sjúkrahúsinu en fjölskyld-
an býr í Wales þar sem Aron leikur
með félagsliðinu í Cardiff.
Landsliðsfyrirliðinn tilkynnti
sjálfur um fæðingu drengsins á
Instagram-síðunni sinni í dag og
sagði eiginkonu sína vera hetju.
Aron missti sem kunnugt er af
fæðingu Ólivers þegar hann var í
Kasakstan í landsliðsverkefni en
guttinn kom fimm dögum fyrir
settan dag.
Aron verður ekki með í komandi
verkefni gegn Sviss og Belgíu þar
sem hann er meiddur og hefur ekki
stigið inn á völlinn eftir að Cardiff
hóf leik í ensku úrvalsdeildinni.
– bb
Ofurparið Aron og Kristbjörg eignuðust son
Aron og Kristbjörg eru búsett í Wales þar sem Aron spilar með Cardiff City
í ensku úrvalsdeildinni. Litli guttinn kom í heiminn klukkan 14.18.
L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21Þ R I Ð J U D A G U R 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8