Fréttablaðið - 04.09.2018, Side 40
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H.
Hákonarson olafurh@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI
512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Queen
13.693 kr.
á mánuði*
KING KOIL ALPINE PLUSH
Hágæða Amerískt heilsurúm með millistífu fimm
svæða skiptu poka gorma kerfi, mjúkur toppur
og steyptir kantar, ásamt botni og fótum.
Stærð King (193x203 cm)
AFMÆLISVERÐ
213.459 kr.
18.816 kr.* á mánuði með kredikortaláni
Fullt verð 355.765 kr.
Stærð Queen (153x203 cm)
AFMÆLISVERÐ
154.070 kr.
13.693 kr.* á mánuði með kredikortaláni
Fullt verð 256.783 kr.
King
18.816 kr. á mánuði*
*12 mánaða vaxtalaus kreditkortalán**. Einnig hægt að greiða með Netgíró.
HÁGÆÐA IÐNAÐARHURÐIR
Járnháls 2-4 | 414-8600 | velaborg@velaborg.is
HUGINN MUNINN
SKYRTUR
NÝ
VEFVERSLUN
www.huginnmuninn.is
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdin
Uppbygging ferðaþjónustu í Hveradölum
skuli háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykja-
vík og á og á vef stofnunarinnar www.skipulag.is. Ákvörðunina má kæra
til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála til 3. október 2018.
Svava Sigbertsdóttir er eig-andi The Viking Method þjálfunarkerfisins en hún hefur verið búsett í London þar sem hún hefur verið með stórstjörnur á borð við
Nicole Scherzinger úr Pussycat Dolls
og Amöndu Holden í þjálfun. Hún er
stödd á landinu og ætlar að skella í
námskeið 5. til 7. september í Sport-
húsinu.
„Mig hefur mjög lengi langað til að
gera þetta hérna. Ég kem lítið heim til
Íslands og þegar ég er hérna er það í
stuttan tíma sem ég vil nota í að vera
með fjölskyldunni. Ég er með mikið
af Íslendingum í fjarþjálfun og tala
mikið um það úti hvað við Íslend-
ingar erum harðir af okkur og gerum
bara hvað sem er, þannig að mér
fannst bara tilvalið að enda sumarið
svona hérna á Íslandi – láta fólk prófa
eitthvað nýtt og byrja hreyfingar árið
sitt á einhverju skemmtilegu og öðru-
vísi,“ segir Svava.
Æfingakerfið hennar hefur verið
vinsælt og hún ferðast um heiminn
með það. Um er að ræða þjálfunar-
aðferð þar sem menn nota eigin
líkamsþyngd auk handlóða og gera
nokkuð sérstæðar æfingar á ákveðinn
hátt og innan ákveðins tímaramma.
En The Viking Method tekur ekki
bara á þjálfun og næringu heldur er
andlegi þátturinn mjög stór hluti
hennar.
„Þetta er þríþætt hjá mér en flest
hreyfingarkerfi eru tvíþætt og koma
að utan, það er að segja utan við þann
sem notar þau. Þau snúast einungis
um þjálfun og næringu, en ekkert
hver þú ert sem manneskja og and-
lega þáttinn. Ég tek andlega þáttinn
svo mikið inn í því ég hef verið að
þjálfa rosalega mikið af fólki og það
er alltaf þessi andlegi þáttur sem er
að hrjá fólk: flestir vita alveg að þeir
eiga að borða hollt
og hreyfa sig en það
er rosalega erfitt að
ná því ef þú ert ekki
í lagi – hvernig þú
hugsar og þér líður.
Það er svo erfitt að
komast úr þessari holu
og byrja að fara að gera
hluti sem eru góðir
fyrir þig. Þannig
vinn ég mikið með
fólki.“
Svava segir að
þeir sem séu í þjálf-
un hjá henni taki
einn dag í viku sem
er helgaður „think like
a viking“ hluta þjálfunar-
aðferðar hennar. Hún heldur einnig
fyrirlestra þar sem hún fer yfir þessar
hugarfarsbreytingar sem hún lætur
fólk temja sér til að koma sér í stand.
En hvernig hugsa víkingar?
„Víkingar hafa stjórn á lífi sínu,
þeir láta tilfinningarnar ekki flækjast
fyrir sér, gera það sem þarf að gera,
þeir standa fyrir sjálfan sig, segja
nei þegar þarf að segja nei og ef þeir
þurfa að gera eitthvað þá finna þeir
bara út úr því hvernig á að gera það.
Góð saga sem kjarnar þetta er um
stelpu sem segir við mömmu sína:
„Mig langar til að verða geimfari,“ og
mamman svarar: „Það á eftir að verða
ógeðslega erfitt – fyrst þarftu að fara í
skóla, svo menntaskóla, svo þarftu að
komast í besta háskólann, svo vinna
hjá ákveðnum fyrirtækum og vera
þar best til að vera valin til að verða
geimfari. Þá segir stelpan: „Ókei, þú
ert að segja mér að ég þurfi bara að
gera fimm hluti?“ Ekki vera að halda
aftur af þér með að þú
kunnir ekki eitt-
hvað, getir ekki
eitthvað, að
þú bara sért
svona – þá
bara breytir
maður því.
Þetta snýst
s v o l í t i ð
þetta hugar-
far.“
Á næsta ári
er á leiðinni
bók frá Svövu
þar sem hún fer í
saumana á þjálfunar-
og hugarfarsaðferðum sínum.
Bókin kemur út í bæði Evrópu og
Bandaríkjunum á sama tíma.
„Í bókinni verða uppskriftir, pró-
gramm og svo það hvernig maður á
að hugsa eins og víkingur. Þarna
verður líka sagan mín og eitthvað
um Ísland og okkar hugarfar. Þetta
verður rosalega spennandi.“
Hún segir námskeiðið verða rosa-
lega keyrslu og að fólk þurfi að vera
með smá reynslu af líkamsrækt til að
geta fengið sem mest út úr því.
Þetta verða þrír dagar af átökum
og hægt verður að velja úr tveimur
hópum – annars vegar einn sem byrj-
ar 7 um morgun og annar sem byrjar
hálf sjö að kvöldi. Nánari upplýsingar
má finna á vefsíðu Sporthússins.
stefanthor@frettabladid.is
Þjálfari stjarnanna
með námskeið á Íslandi
Svava Sigbertsdóttir þjálfar stjörnurnar í London og hefur gert það
gott með The Viking Method þjálfunaraðferðinni. Hún heldur nám-
skeið í Sporthúsinu sem hún segir að verði alveg brjáluð keyrsla.
Svava gefur út á næsta ári bókina um The Viking Method í Bandaríkjunum og Evrópu. MYND/SVAVA SIGBERTSDÓTTIR
VÍKINGAR HAFA
STJÓRN Á LÍFI SÍNU,
ÞEIR LÁTA TILFINNINGARNAR
EKKI FLÆKJAST FYRIR SÉR,
GERA ÞAÐ SEM ÞARF AÐ GERA,
ÞEIR STANDA FYRIR SJÁLFAN
SIG, SEGJA NEI ÞEGAR ÞARF AÐ
SEGJA NEI OG EF ÞEIR ÞURFA AÐ
GERA EITTHVAÐ ÞÁ FINNA ÞEIR
BARA ÚT ÚR ÞVÍ HVERNIG Á
AÐ GERA ÞAÐ.
Svava
hefur verið að
koma popp-
stjörnunni Nicole
Scherzinger í vík-
ingaformið
síðustu
árin.
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð