Fréttablaðið - 07.11.2015, Síða 4
Vikan 02.11.2015–08.11.2015
króna var kortavelta
erlendra ferðamanna
á Íslandi í ágúst.
hjúkrunarfræðinga gæti Land-
spítalinn ráðið til vinnu strax í
dag – ef þeir væru á lausu.
93 ára
er elsti jógaiðkandinn
á Seltjarnarnesi.
150%
er aukningin á sölu jólabjórs á
síðustu 10 árum.
2 milljónir
skuldar Reykjavíkurborg á
hvern íbúa.
nýir Volkswagen-fólksbílar voru seldir í
október – þrátt fyrir hneykslismál.
22,2 milljarðar
100
83
magnús
Harðarson,
forseti Sálar-
rannsóknar-
félags Íslands,
sagði svika-
miðla falla á
skyggnilýsing-
arprófi. Fréttir af skyggnilýsinga-
fundi Önnu Birtu Lionaraki vöktu
athygli en hún stóðst öll próf upp á
hundrað, að sögn Magnúsar. Hann
gat þess að fólk sem ekki gæti
haft samband við handanheim
guggnaði á prófi félagsins.
Sýrlensku
hjónin Feryal
aldahash
og Wael
aliyadah, sem
dvalið hafa á
Íslandi í fjóra
mánuði ásamt
dætrum sínum, leggja nú hart að
sér í íslenskunámi. Útlendinga-
stofnun hafnar því að fjalla um
umsókn fjölskyldunnar um hæli
þar sem hún hafi þegar verið
komin með hæli í Grikklandi.
Ákvörðunin hefur verið kærð. Í
Grikklandi var fjölskyldan á ver-
gangi.
Páll Winkel
fangelsismála-
stjóri hefur
skorið niður
fjórðu hverja
krónu frá
hruni. Hann á
nú að ráðast í
enn frekari niðurskurð. Páll segir
aðstæður fanga óforsvaranlegar.
Sum fangelsin hafi verið á undan-
þágu frá heilbrigðiseftirliti um
áratugaskeið. Dæmi séu um að
fólk reyni ýmislegt til að gera sér
fangelsisvistina bærilegri.
Þrír í fréttum
Miðlar,
hælisleitendur
og fangar
Heilbrigðismál „Við gerðum
alvarlegar athugasemdir við geð-
heilbrigðisstefnuna þegar hún var
lögð fram í sumar og lýstum yfir
þungum áhyggjum af því að í henni
var ekki að finna áætlanir um að
tryggja þjónustu við yngsta og við-
kvæmasta aldurshópinn frá með-
göngu að tveggja ára aldri þrátt
fyrir að að fjöldi rannsókna í tauga-
vísindum bendi til þess að þessi tími
hafi gríðarlega mikil áhrif á fram-
tíðarheilbrigði fólks,“ segir Sæunn
Kjartansdóttir hjá Miðstöð foreldra
og barna.
Sæunn nefnir að í nýrri áætlun
sem Kristján Þór Júlíusson heil-
brigðisráðherra kynnti í byrjun
vikunnar sé að finna orðalagið
að lengi búi að fyrstu gerð og að
góður aðbúnaður barna og jákvæð
tengsl við aðra séu mikilvægustu
atriði þegar horft er á geðheilbrigði
þjóðar til lengri tíma. En það séu
orðin tóm. Engin tilraun sé gerð til
að útfæra úrræði.
„Það er mjög áberandi hér á landi
hversu mikil tregða er til að viður-
kenna bága stöðu yngstu barnanna
sem eiga foreldra sem glíma við til-
finningalegan vanda af einhverju
tagi, allt frá kvíða yfir í alvarlegar
geðraskanir eða neyslu. Rannsóknir
sýna svo að ekki verður um villst að
vandi foreldranna verður vandi
barnsins.
Vandi foreldra bitnar á andlegri
og líkamlegri heilsu barna og vel-
ferð þeirra. Afleiðingarnar geta
orðið veik sjálfsmynd, lök félagsleg
færni, kvíði og andfélagsleg hegðun.
Börn með örugg tengsl við foreldra
sína eru mun betur í stakk búin til
að takast á við mótlæti og velja heil-
brigðar leiðir þegar á þau reynir.“
Hjá Miðstöð foreldra og barna er
foreldrum í vanda hjálpað frá með-
göngu og á fyrsta æviskeiði barns-
ins. „Markmiðið er að efla tengsl
á milli foreldra og barna. Tengsla-
myndunin hefur mikil áhrif fram á
fullorðinsár. Ein helsta ógn við hana
er vanlíðan foreldra, ekki síst kvíði
og þunglyndi,“ útskýrir Sæunn.
„Hjálpin felst í að veita foreldrum
sem eiga von á barni eða eiga barn
á fyrsta ári meðferð. Hún er í formi
samtalsmeðferðar og barnið kemur
með í viðtölin þegar það er fætt. Við
fylgjumst með hvernig barni og for-
eldrum líður, tölum við barnið ekki
síður en foreldrana, og leitumst við
að skilja eðli vandans.“
Sæunn segir árangur góðan og
oft þurfi ekki mikið til, stundum
örfá viðtöl til að koma foreldrum og
barni á réttan kjöl. „Mjög áreiðan-
legar rannsóknir sýna fram á að börn
með örugg tengsl eiga betra með að
setja sig í spor annarra, vegna þess að
foreldrar hafa gert slíkt hið sama við
þau. Þau koma þar af leiðandi síður
illa fram við aðra sem er hluti af and-
félagslegri hegðun.“
Sæunn segir stjórnvöld ekki
mjög áhugasöm um árangurinn
og mikilvægi þjónustunnar. „Við
vitum ekki hvort við lifum eftir
áramót. Á hverju ári þurfum við að
eyða dýrmætum tíma sem annars
færi í meðferðarvinnu í að berjast
fyrir starfseminni. Við erum sífellt
að sanna tilverurétt okkar, eins
og þetta sé prívat áhugamál okkar
en ekki nauðsynlegur liður í heil-
brigðisþjónustu. Við myndum vilja
taka við miklu fleiri fjölskyldum
en okkur er mjög þröngur stakkur
skorinn. Það er tími til kominn að
við horfumst í augu við að það er
alvarleg brotalöm í íslensku vel-
ferðarkerfi þegar kemur að vanda
fjölskyldna með börn frá meðgöngu
og fyrstu þrjú til fimm árin.“
kristjanabjorg@frettabladid.is
Sæunn í viðtalsherberginu þar sem hún hittir foreldra sem vilja styrkja tengsl sín við barnið. Örugg tengsl barns við foreldri
minnka líkur á andfélagslegri hegðun. Fréttablaðið/anton
Vandi foreldra verður barna
Til Miðstöðvar foreldra og barna koma foreldrar, sem eiga von á barni og glíma við allt frá vægum geðrösk-
unum yfir í neyslu, til meðferðar. Rannsóknir sýna að með inngripi má bjarga börnum sem annars væru
líkleg til að leiðast á braut glæpa eða þurfa þjónustu geðheilbrigðiskerfisins.
slys Eldur kom upp í vélarrúmi rann-
sóknarskipsins Bjarna Sæmundssonar á
þriðja tímanum í gær. Skipið var í slipp í
Reykjavíkurhöfn þegar eldur kviknaði.
Allt tiltækt slökkvilið var sent á vett-
vang.
Orsök þess að kviknaði í er ókunn
að sögn Marteins Geirssonar, deildar-
stjóra aðgerðasviðs Slökkviliðsins á
höfuðborgarsvæðinu. Hann segir starfs-
menn Slippsins hafa brugðist rétt við
með því að loka vélarrýminu og setja
eldvarnakerfi skipsins af stað og þannig
kæft eldinn. Reykkafarar slökkviliðsins
könnuðu verksummerki og eftir að
gengið var úr skugga um að eldurinn
væri slokknaður hóf slökkviliðið að
reykræsta skipið.
Marteinn segir erfitt að meta
skemmdir en hann telur þær ekki
miklar. Þá segir hann björgunarstörf
hafa tekist afar vel.
„Ég held að við höfum sett eitthvert
Íslandsmet. Það tók okkur ekki nema
tvær mínútur að komast á vettvang.“
– srs
Slökkviliðsmenn að störfum við slippinn í reykjavíkurhöfn í gær þar sem upp kom
eldur í vélarrúmi rannsóknarskipsins bjarna Sæmundssonar. Fréttablaðið/Vilhelm
Lokuðu og settu eldvarnakerfið í gang
Við erum sífellt að
sanna tilverurétt
okkar, eins og þetta sé prívat
áhugamál okkar en ekki
nauðsynlegur liður í heil-
brigðisþjónustu.
Sæunn Kjartansdóttir hjá
Miðstöð foreldra og barna
7 . n ó V e m b e r 2 0 1 5 l a U g a r D a g U r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð