Fréttablaðið - 07.11.2015, Blaðsíða 18
Búrma Engar áreiðanlegar skoðana
kannanir hafa verið gerðar í Búrma,
eða Mjanmar eins og landið er einn
ig nefnt, fyrir þingkosningarnar
sem haldnar verða á morgun. Mikil
óvissa ríkir því um úrslitin þótt
Aung San Suu Kyi og flokkur hennar,
Lýðræðisfylkingin, njóti greinilega
mikilla vinsælda.
Hvernig sem fer, þá verða þetta
tímamótakosningar því þetta er í
fyrsta sinn í aldarfjórðung sem Lýð
ræðisfylkingin, helsta afl stjórnar
andstöðunnar, tekur þátt í þing
kosningum í landinu.
Herforingjastjórnin, sem stjórnað
hefur landinu áratugum saman,
hefur staðið fyrir ýmsum umbótum
á síðustu árum, bæði efnahagsleg
um og pólitískum.
Herforingjastjórnin þykir samt
ekki líkleg til að sleppa alveg hend
inni af stjórn landsins, jafnvel þótt
svo fari að Lýðræðisfylkingin vinni
stóran sigur. Stjórnin hefur sagt að
of hraðar breytingar geti leitt af sér
ólgu í landinu.
Framkvæmd kosninganna hefur
auk þess verið gagnrýnd, meðal
annars fyrir ónákvæma skráningu
á kjörskrá. Dæmi eru þess að látið
fólk sé á kjörskránni og margir
sprelllifandi kjósendur eru ekki á
skránni.
Og hvernig sem úrslitin verða, þá
verður Suu Kyi hvort eð er óheimilt
að gegna forsetaembætti vegna
tengsla hennar við Bretland, en
báðir synir hennar eru breskir ríkis
borgarar. Samkvæmt stjórnarskrá
landsins, sem herforingjastjórnin
samdi, má enginn gegna forseta
embættinu ef maki eða börn eru
erlendir ríkisborgarar.
Auk þess hefur herforingjastjórn
in fyrirfram tryggt sér fjórðung allra
þingsæta hið minnsta, alveg óháð
úrslitunum. Það þýðir að Lýðræðis
fylkingin nær ekki meirihluta nema
með því að tryggja sér meira en
tvö af hverjum þremur þeirra þing
sæta, sem í raun er kosið um.
Þetta þýðir líka að Lýðræðis
fylkingin og aðrir stjórnarand
stöðuflokkar geta ekki gert neinar
breytingar á stjórnarskrá landsins,
jafnvel þótt herforingjastjórnin fái
einungis þessi 25 prósent þingsæta,
því til þess að gera slíkar breytingar
þarf meira en 75 prósent atkvæða á
þingi.
„Ekki er hægt að líta svo á að
kosningar séu sanngjarnar ef
25 prósent þingsæta eru afhent
hernum, og þeim flokki sem hann
styður, áður en eitt einasta atkvæði
hefur verið greitt,“ segir Brad
Adams, framkvæmdastjóri Asíu
deildar mannréttindasamtakanna
Human Rights Watch.
Hann segir það að vísu jákvætt,
að fjölmennir kosningafundir hafi
verið haldnir hindrunarlaust. Hins
vegar nægir það ekki til að bæta upp
fyrir kosningakerfi, sem kerfisbund
ið styður einn flokk umfram aðra.
Suu Kyi segist engu að síður ætla
sér stóran hlut við stjórn landsins
að kosningunum loknum, vinni
flokkur hennar nægilegan sigur.
„Ég mun verða æðri forsetanum,“
sagði hún og lætur það ekki trufla
sig, þótt hún fái ekki forsetaemb
ættið. gudsteinn@frettabladid.is
11. nóvember 2015, kl. 8:30 – 15:00
á Reykjavík Natura
Húsið opnar með morgunverði kl. 8:30
09:00 Setning ráðstefnu
Ásta Bjarnadóttir - Best í heimi í ráðningarferlum - hvað segja rannsóknir?
Elsa Heimisdóttir - Mönnunaráætlun og greining á framtíðar starfsmannaþörf
10.25 Kaf
Ole I. Iversen - An investigation into possible aws in the recruitment process
Marina Dögg Jónsdóttir - Ráðningar hjá CCP - Starf eða leikur
12.00 Hádegisverður
Leifur Geir Hafsteinsson - Dýrustu ráðningamistökin eru ekki þau sem þú heldur!
Auðunn Gunnar - Breyttar áherslur umsækjenda, er hægt að verða við þeim?
14.10 Kaf
Árelía Eydís Guðmundsdóttir - Eldri vinnukraftur sem vinnur frá “Urban-hub” í
Honolúlú - er það framtíðin?
Lokaorð Halldóra Geirharðsdóttir
15:00 Ráðastefnulok
Er fyrirtækið
rétt mannað?
Ráðstefna um
mönnun og ráðningar
Skráninig og ítarlegar upplýsingar
á brennidepill.is
Brennidepill
Ásta
Elsa
Ole
Marina
Leifur Geir
Auðunn
Árelía
Birna
ráðstefnustjóri
Ráðstefna 2015.11.11.indd 1 3.11.2015 13:52:40
Viðskipti Um fjögur prósent allra
íbúða í Reykjavík eru í útleigu
til ferðamanna samkvæmt nýrri
skýrslu sem Háskólinn á Bifröst
kynnti fyrir iðnaðar og viðskipta
ráðherra í gær.
Í skýrslunni er umfang íbúða
gistingar dregið fram og jafnframt
settar fram tillögur sem miða að
því að einfalda skráningu íbúða í því
augnamiði að draga úr skattsvikum
og skýra reglur.
Á vefsíðunni Airbnb eru um 3.400
herbergi og íbúðir skráð á Íslandi.
Þar af eru 1.900 herbergi og íbúðir
í Reykjavík.
Í skýrslunni kemur jafnframt
fram að reglur um skattlagningu
íbúðagistingar séu ekki skýrar.
Mikilvægt sé að haga skattalöggjöf
með þeim hætti að hvati verði til
þess að stunda starfsemina löglega
með tilheyrandi greiðslum skatta og
gjalda. – sg
Fjögur
prósent
íbúða leigð
túristum
Horft yfir Reykjavík að hausti. Ekki sést
á húsunum hvar leigt er út til ferða-
fólks. FRéttablaðið/VilHElm
Tímamótakosningar en meingallaðar
Þingkosningarnar í Búrma á morgun verða þær fyrstu í aldarfjórðung þar sem kjósendum standa raunverulegir valkostir til boða. Her-
foringjastjórnin hyggst samt alls ekki sleppa hendinni alveg af stjórninni og hefur fyrirfram tryggt sér fjórðung þingsætanna.
Nóbelsverðlaunahafinn aung San Suu Kyi á fjölmennum kosningafundi í byrjun mánaðarins. FRéttablaðið/EPa
Aung San Suu Kyi hefur verið leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Búrma í meira
en aldarfjórðung, eða allt frá því hún
sneri aftur heim árið 1988 eftir að hafa
dvalist langdvölum erlendis.
Lýðræðisfylking hennar vann stór-
sigur í þingkosningum árið 1990, en
herforingjastjórnin í landinu tók ekki
mark á þeim úrslitum.
Suu Kyi var sett í stofufangelsi og
var það meira og minna næstu
tvo áratugina, með fáeinum
hléum.
Hún hlaut friðarverðlaun
Nóbels árið 1991 en komst
ekki til að taka við þeim fyrr
en árið 2012, 21 ári síðar.
Eftir að herforinginn Thein
Sein varð forsætisráðherra
landsins árið 2007 hófst
hann fljótlega handa við að gera
ýmsar lýðræðisumbætur og lét meðal
annars pólitíska fanga lausa í stórum stíl.
Árið 2010 efndi herforingja-
stjórnin aftur til þingkosninga,
en Lýðræðisfylkingin sá ekki
ástæðu til að taka þátt í
þeim, enda var Suu Kyi enn í
stofufangelsi.
Suu Kyi bauð sig hins vegar
fram til þings í aukakosningum
árið 2012 og hefur setið á þingi
síðan. Lýðræðisfylking hennar
tekur þátt í þingkosningunum á
morgun, í fyrsta sinn í aldarfjórðung.
Ég mun verða æðri
forsetanum.
Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar
Herforingjastjórnin og lýðræðisbaráttan
thein Sein
7 . n ó V e m B e r 2 0 1 5 L a U G a r D a G U r18 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð