Fréttablaðið - 07.11.2015, Qupperneq 20
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Gunnar
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Internetið getur verið kaldranalegur staður. Í vikunni las ég níð um sjálfa mig sem sveið sárar en nokkurt uppnefni sem mér hefur verið gefið. Ég var kölluð
„miðaldra kerling“. Sjálfsmynd mín hefur ekki beðið
jafnmikinn hnekki síðan mér var sagt á Kaffibarnum fyrir
nokkrum árum að ég liti út eins og frambjóðandi til sjötta
sætis í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins – í sveitarstjórnar
kosningum.
Nettröll eru þó ekki eina hættan sem steðjar að grand
lausum egóum á vafri um veraldarvefinn. Um samfélags
miðla á borð við Facebook og Instagram seytlar margt
hættulegra. Eins og heimalagaðar bollakökur, kossa
myndir frá Balí, fullkomlega lakkaðar táneglur í flæðar
máli, fólk að hlaupa maraþon, hrukkulausir jafnaldrar,
brjóstaskorusjálfur, hvítlaukslegnar nautalundir bornar
fram með seljurótarfroðu, yngra fólk en maður sjálfur í
yfirmannsstöðum.
Rannsóknir sýna ítrekað að samfélagsmiðlar hafa nei
kvæð áhrif á sjálfsmynd fólks. Athugun sem gerð var við
háskólann í Salford í Bretlandi leiddi til að mynda í ljós að
helmingi þeirra sem nota slíka miðla líður verr fyrir vikið.
Ástæðan: Fólki fannst eigin tilvist blikna í samanburði
við fullkomlega „filteruð“ og „fótósjoppuð“ líf vina sinna í
netheimum.
Ég taldi þó um tíma að ástandið væri að lagast.
Ekki vera aumingi
Síðustu mánuði hefur sprottið upp fjöldi herferða í fjöl
miðlum og á samfélagsmiðlum sem ætlað er að vekja
athygli á málefnum sem eiga það sameiginlegt að vera
tabú. Skemmst er að minnast átaksins „Útmeð’a“ sem
beindi sjónum að sjálfsvígum ungra karla. Á Facebook
síðunni „Ekki halda stressi til streitu“ er vakin athygli
á skaðsemi streitu. Konur hafa greint frá reynslu sinni
af kynferðisofbeldi undir formerkinu #þöggun. Og svo
mætti lengi telja.
Sumum virðist hins vegar mislíka þessi opna umræða.
Um síðustu helgi birtist í Fréttablaðinu grein sem vakti
töluverða lukku eftir Óttar Guðmundsson geðlækni þar
sem hann skammaðist út í þá sem bera raunir sínar á torg.
Kallaði hann þá „aumingja vikunnar“ og vitnaði í systur sína.
Óttar stendur ekki einn í átakinu sem nefna mætti „Inn
með’a“ – #bældaraÍsland2015. Rithöfundurinn Guðbergur
Bergsson fór háðulegum orðum um kollega sinn, Hallgrím
Helgason, er Hallgrímur opinberaði fyrir alþjóð að honum
hefði verið nauðgað sem ungum manni í München.
Óttar og Guðbergur eru talsmenn forneskjulegra gilda:
Það er miklu betra að henda sér bara tignarlega fram af
klöpp en að vera að væla þetta um vanlíðan. Nauðgun.
Plís, kerlingar, ekki vera í svona stuttum pilsum. Þung
lyndi. Taktu þig taki. Átröskun. Fáðu þér hamborgara.
Stress. Það er ekkert að þér. Krabbamein. Hvað er svona
merkilegt við það? Kvíði. Ekki vera aumingi.
Valíum og vodka
Þegar maður hefur ekki tíma til að lakka á sér táneglurnar
(hvað þá að staðsetja þær í flæðarmáli og taka mynd),
finnur ekki hreinan brjóstahaldara og veiðir einn upp úr
þvottakörfunni, gleymir að fara í Bónus og býður matar
gestum upp á 1944 með tómatsósu og er svo bara allt í
einu orðinn miðaldra án þess að hafa nokkru sinni verið
nálægt því að hafa mannaforráð er mynd af hvítlauks
legnum nautalundum með seljurótarfroðu á Facebook
nóg til að maður teygi sig í valíumið og vodkaflöskuna.
Einlægar játningar fólks um erfiðleika sem það tekst á
við og ráð til þeirra sem ef til vill glíma við það sama gera
samfélags og fjölmiðla svo miklu manneskjulegri en
„fótósjoppaðar“ ýkjusögur um Sigga sem segist hróðugur
vera að „meikaða“ í útlöndum en lifir í raun á kerfinu í
Köben og spilar á gítar fyrir klink sem kastað er í hann á
Strikinu sem hann eyðir svo í bjór.
Óskandi er að átakið „Innmeð’a“ verði ekki til þess að
þau tabú sem hugrakkar sálir hafa hrakið fram úr skugg
anum hverfi aftur úr umræðunni. Þótt það fari vel um þá
Óttar og Guðberg á átjándu öldinni megum við hin alveg
halda áfram för okkar um þá tuttugustu og fyrstu.
Bældara Ísland 2015
Þegar Edda Jónsdóttir myndlistarmaður opnaði Gallerí i8 fyrir tuttugu árum grunaði fáa hvað í vændum væri. Sýnt var í borulegri kjallaraholu við Ingólfsstræti 8. Hreinn Friðfinnsson, einn dáðasti listamaður sinnar kynslóðar, reið á vaðið
með ný verk. Fyrr en varði var galleríið komið á
listamessur úti í heimi með framúrskarandi lista
menn á sínum vegum: bræðurna Kristján og Sigurð
Guðmundssyni, Rögnu Róbertsdóttur og fleiri. Nú er
i8 alþjóðlegt gallerí með um 20 listamenn á mála hjá
sér, útlenda og íslenska í bland.
Edda rekur þessa sögu í viðtali í Fréttablaðinu í dag.
Meðal listamanna i8 eru heimsfræg nöfn sem seljast
fyrir fúlgur fjár. Þeir geta valið úr galleríum stórborg
anna en sjá hag sínum best borgið hjá i8. Aðrir eru
rísandi stjörnur. Þar fer Ragnar Kjartansson fremstur
– verður með hverja sýninguna á fætur annarri í
virtustu sýningarsölum höfuðborga vestanhafs og
austan næstu misserin. Enn aðrir eru ungir, óskrifað
blað líkt og Ragnar var fyrir stuttu.
Gallerí er fyrst og fremst hópur listamanna. Stóru
nöfnin lyfta hinum sem færri þekkja á hærri stall. Sum
ná fótfestu, kveikja áhuga ástríðusafnara og safnstjóra.
Galleristinn þekkir þá – það er hans hlutverk. Verk
listafólks i8 eru í nokkrum af kunnustu einkasöfnum
samtímalistar í heimi. Verk Lawrence Weiner, Roni
Horn, Ólafs Elíassonar og Ernesto Neto eru í flestum
nútímalistasöfnum sem nöfnum tjáir að nefna. Öll
vinna náið með i8.
Edda kunni lítið í gallerírekstri þegar hún sýndi
Hrein um árið. En hún átti sér draum – að sýna alþjóð
lega nútímalist á Íslandi og kynna framúrskarandi
íslenska list fyrir umheiminum. Hún var djörf og
hafði skýrar hugmyndir um hvaða kostum góðir lista
menn þyrftu að vera gæddir – einbeittir og vissir um
að myndlistin væri það eina sem þeir gætu hugsað
sér að sinna, segir hún. Innsæi hennar hefur sjaldan
brugðist.
Listalífið var frekar dauft, segir Edda. Auðvitað voru
margir góðir listamenn þó að fáir væru á hennar línu.
En viðskipti og myndlist voru eitruð blanda í huga
margra. Kjarval, Ásgrímur og Jón Stefánsson seldust –
mest olía á striga í gylltum ramma. Það gerði lítið fyrir
lifandi listamenn. Hún vildi breyta því.
Hún naut vinfengis við Rögnu Róbertsdóttur og
Pétur Arason, sem eiga eitt forvitnilegasta einka
safn í okkar heimshluta. Ragna og Pétur voru í góðu
sambandi við erlenda listamenn í fremstu röð. Sumir
sýndu hjá þeim á Annarri hæð við Laugaveg. Nýló átti
spretti – og enn lifði í glæðum frá SÚM. Edda var rétt
manneskja, á réttum stað, á réttum tíma.
Gallerí i8 þjónar aðeins broti þeirra listamanna
sem eiga erindi út í heim – ef þeir kæra sig um. Mörgu
frábæru listafólki líkar best heima. Alþjóðleg kynning
útheimtir mikla þekkingu, mikla vinnu og miklar
skuldbindingar. Sérhæfðir starfsmenn i8 gefa gott for
dæmi. En þeir geta varla sinnt fleirum í einu.
Við þurfum fleiri gallerí – fleira þrekmikið fólk sem
eltir drauma sína þangað sem þeir verða að veruleika.
Þetta er hægt
Listalífið var
frekar dauft,
segir Edda.
Auðvitað
voru margir
góðir lista-
menn þó að
fáir væru á
hennar línu.
En viðskipti
og myndlist
voru eitruð
blanda í huga
margra.
40.000
fréttaþyrstir
notendur
Nálgastu appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum:
7 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r20 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
SKOÐUN