Fréttablaðið - 07.11.2015, Side 22

Fréttablaðið - 07.11.2015, Side 22
Sunnudagurinn 8. nóvember verður tileinkaður baráttu gegn einelti og er það í fimmta sinn sem það er gert hér á landi. Mark­ miðið er að vekja athygli á málefninu og hve alvarlegt einelti er. Í tengslum við þennan dag árið 2011 var undirritaður þjóðarsátt­ máli gegn einelti og stofnuð vefsíðan gegneinelti.is. Á vefsíðunni getur fólk lagt baráttunni lið með því að undir­ rita sáttmálann og skuldbinda sig þar með til þess að vinna af alefli gegn einelti í samfélaginu, standa vörð um rétt fólks til þess að geta lifað í sátt og samlyndi við umhverfi sitt og jafnframt að gæta sérstaklega að rétti barna og ungmenna og þeirra sem ekki eiga sér málsvara eða sterka rödd í samfélaginu. Ég hvet fólk til að undirrita þjóðar­ sáttmálann gegn einelti, taka þátt í baráttunni gegn því og leggja sitt af mörkum til að bæta samfélagið og hafa áhrif til góðs með breytni sinni. Við þurfum saman að vinna bug á þessu samfélagsböli sem eitrar og eyðileggur líf svo margra. Ný reglugerð gegn einelti Nú hefur verið birt ný reglugerð sem kveður á um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Þetta er mikilvægur áfangi, því þarna er sett fram hvaða skyldur hvíla á atvinnurekendum í þessum efnum, um skyldu allra vinnustaða um að setja sér áætlun um aðgerðir til að koma í veg fyrir einelti og viðbrögð ef á reynir. Öllum vinnustöðum ber að greina áhættuþætti innan vinnustaðarins með gerð áhættumats. Í reglugerð­ inni er með skýrum hætti kveðið á um að við gerð áhættumats skuli meðal annars greina áhættuþætti eineltis á vinnustaðnum þar sem tekið skuli tillit til andlegra og félags­ legra þátta, svo sem aldurs starfs­ manna, kynjahlutfalls, ólíks menn­ ingarlegs bakgrunns starfsfólks, skipulags vinnutíma, vinnuálags og fleira. Ljóst er að vinnustaðir eru jafn ólíkir og þeir eru margir og því mikilvægt að áhættumatið taki mið af aðstæðum á hverjum stað. Vinnueftirlit ríkisins hefur eftirlit með framkvæmd reglugerðarinnar en fyrirtæki og sérfræðingar sem Verðbréfa- og fjárfestingasjóðir í áskrift er góð leið til að byggja upp eignasafn. Byggðu upp þinn sjóð með reglubundnum sparnaði Lágmarksupphæð aðeins 5.000 kr. á mánuði. 100% afsláttur af upphafsgjaldi í áskrift í sjóðum. Enginn fjármagns- tekjuskattur greiddur fyrr en við innlausn.* *Skattameðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíð. 410 4000Landsbankinn landsbankinn.is Dagur gegn einelti 8. nóvember Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðis- málaráðherra Frjálsar kristnar kirkjur og gras­rótarsöfnuðir hafa vaxið veru­lega og telja nú tugi þúsunda Íslendinga. Allir kristnir ættu að fagna því. Þjóðkirkjustofnanir eru víðast hvar á undanhaldi í þeim löndum þar sem þær enn fyrirfinn­ ast. Það er eðlileg þróun í hinum kristna heimi. Þjóðkirkjan fær enn milljarða ár hvert, umfram aðrar íslenskar lút­ erskar kirkjur sem ættu að njóta þess sama samkvæmt stjórnarskrá. Þeir sem segja að aðskilnaður hafi þegar átt sér stað milli ríkis og þjóðkirkjustofnunarinnar láta sem lúterskar fríkirkjur séu ekki til. Sá kirkjusögulegi arfur jarðeigna sem veldur þessari hróplegu mismunun er auðvitað arfur allra kristinna Íslendinga. Nú hefur kirkjuþing hinnar ríkis­ reknu þjóðkirkju ákveðið að veita 150 milljónir til að fjölga í þjóð­ kirkjunni. Hvaðan skyldu þær sálir eiga að koma? Það eru nokkrir hópar sem koma til greina. Sá hópur fólks sem stækkað hefur hraðast undan­ farin ár er utan trúfélaga. Margir þar hafa fengið alveg upp í kok af ótrú­ verðugri og ókristilegri framgöngu afturhaldssamra trúarstofnana. Það væri erfiður kristniboðsakur. Skyldi markið sett á innflytjendur og flóttamenn sem margir eru mús­ limar eða kaþólskir? Það er erfiður akur. Langlíklegasti markhópurinn fyrir 150 milljóna „kristniboðsátakið“ eru kristnu fríkirkjurnar sem hafa vaxið svo mjög. Hver er þá staða Fríkirkj­ unnar í Reykjavík andspænis slíku milljóna áhlaupi? Jú, við höfum 62. gr. Stjórnar­ skrár Íslands okkur til varnar. Þar er fjallað um Fríkirkjuna í Reykjavík! Á þremur öldum hefur hún starfað og alltaf verið evangelísk lútersk. Frumlag 62. gr. er hin evangelíska lúterska kirkja en alls ekki þjóð­ kirkjustofnunin. Allt frá stofnun Fríkirkjunnar árið 1899 var hún og er íslensk grasrótarhreyfing og hluti af sjálfstæðisbaráttu landsmanna á meðan þjóðkirkjustofnunin var í raun leifar af dönsku stjórnsýsluapp­ arati með sínum landfræðilegu sókn­ armörkum og embættismannakerfi. Fríkirkjan hefur aldrei afsalað sér sínum kirkjusögulega arfi sem hún á rétt á samkvæmt stjórnarskrá. En þjóðkirkjan heldur henni nú utan­ garðs. Sporin hræða. Sjálfvirk útskráning Á fyrrihluta síðustu aldar voru bara tvær kirkjur í Reykjavík og um helm­ ingur íbúanna tilheyrði Fríkirkjunni. Síðan eftir miðja öldina þegar hverfis­ kirkjur þjóðkirkjunnar fóru að rísa þá var í bakherbergi ráðuneytisins búin til lítil reglugerð. Reglugerðin fól það í sér að ef fríkirkjufólk flutti lögheimili sitt þá var það sjálfkrafa skráð í þjóð­ kirkjuna. Fæstir vissu af þessari breyt­ ingu og því voru þúsundir Íslendinga teknir af skrá Fríkirkjunnar og settir í Þjóðkirkjuna án vitundar eða sam­ þykkis. Trúfélagsgjöldin runnu því óhindrað til þjóðkirkjustofnunarinn­ ar í áratugi. Í dag teldist þetta argasta mannréttindabrot. Reglugerðin olli því að þjóðkirkjan fékk aftur drottn­ andi stöðu. 2001 Gullið og asninn á kirkjuþingi Á kirkjuþingi árið 2001 var rætt um að gera lútersku fríkirkjunum tilboð sem þær gætu ekki hafnað. Þær áttu að fá að ganga inn í þjóðkirkjuna. Það var alls ekki gert að beiðni frí­ kirknanna heldur óttuðust þjóð­ kirkjumenn að fríkirkjur ættu rétt á að sækja á eigin forsendum í digra sjóði. Það vildu þeir fyrirbyggja. Í umræðum kirkjuþingsmanna var talað um kristilegt grasrótarstarf af mikilli fyrirlitningu og háði. Kirkju­ þingsmennirnir höfðu miklar efa­ semdir um að hleypa fríkirkjum að „sínum kirkjueignum“. Fríkirkjufólki var líkt við asna sem stendur utan við borgarmúrana. Kirkjuþings­ mennirnir ræddu sín á milli hvernig hægt væri að lokka asnann inn fyrir borgarmúrinn (þ.e. í þjóðkirkjuna), ná gullinu (trúfélagsgjöldunum) af baki hans en senda asnann síðan aftur út fyrir borgarmúrinn þar sem hann ætti helst heima. Árið 2003 hvatti formaður presta­ félagsins alla þjóðkirkjupresta til að skrá sem flesta úr frjálsum kristnum trúfélögum og inn í þjóðkirkjuna. Hvatinn var að fá fleiri stöðugildi frá ríkinu, meiri pening umfram önnur trúfélög. Enn í dag reyna sumir þjóð­ kirkjuprestar að fá fríkirkjufólk til að skrá sig yfir. Þegar stofnunin ræðst gegn gras­ rótinni eru góð ráð dýr. Legg ég því til að í stað þess að þjóðkirkjan setji milljónirnar til höfuðs okkur að hún afhendi kristnum fríkirkjum 150 milljónirnar til ráðstöfunar. Það væri þá loks í anda þess Jesú Krists sem stofnunin kennir sig við. Sú upphæð er aðeins örlítið brotabrot af öllum kirkjusögulegum arfi fríkirkjufólks sem ríkiskirkjan hefur haldið fyrir sjálfa sig. Þær milljónir munum við nota til að efla grasrótarkristni á Íslandi í anda víðsýni og umburðar­ lyndis. Við munum fagna fjölbreyti­ leika mannlífsins og vinna að því að sameina í stað þess að sundurgreina. Við munum ekki líta til kaþólsku miðaldakirkjunnar sem fyrirmyndar heldur til þess Jesú Krists sem var í nöp við trúarstofnanir og lifði og starfaði í grasrótinni. 150 milljónir til höfuðs fríkirkjum? Hjörtur Magni prestur og forstöðu- maður Fríkirkjunnar í Reykjavík Árið 2003 hvatti formaður prestafélagsins alla þjóð- kirkjupresta til að skrá sem flesta úr frjálsum kristnum trúfélögum og inn í þjóð- kirkjuna. Hvatinn var að fá fleiri stöðugildi frá ríkinu, meiri pening umfram önnur trúfélög. Einelti er alvarlegt og getur valdið fólki varanlegum skaða. Mikilvægt er að at- vinnurekendur geri sér grein fyrir skyldum sem á þeim hvíla og nýti þau verkfæri sem til eru í baráttunni gegn einelti. hlotið hafa viðurkenningu Vinnu­ eftirlitsins til að veita atvinnurek­ endum þjónustu við gerð áætlana um öryggi og heilbrigði á vinnu­ stöðum hafa á að skipa sérfræð­ ingum sem einnig geta veitt aðstoð við gerð áætlana um aðgerðir gegn einelti. Ég hvet atvinnurekendur til að nýta sér þessa sérfræðiþekkingu við gerð áhættumats á vinnustað þar sem meðal annars eru greindir áhættuþættir eineltis, líkt og reglu­ gerðin býður. Það er óumdeilt að aðbúnaður á vinnustað hefur áhrif á líðan og heilsu starfsfólks. Nútímaleg vinnu­ vernd á ekki einungis að snúast um að koma í veg fyrir slys og líkamlegt heilsutjón, heldur sýna rannsóknir að andlegir og félagslegir þættir eru ekki síður mikilvægir fyrir líðan og heilsu starfsfólks. Ef þessum þáttum er ekki sinnt aukast líkur á margskonar vanda sem getur dregið úr starfs­ ánægju, skert framleiðni og aukið starfsmannaveltu. Vanlíðan starfs­ fólks getur leitt til heilsufarsvanda­ mála, til lengri eða skemmri tíma. Einelti er alvarlegt og getur valdið fólki varanlegum skaða. Mikilvægt er að atvinnurekendur geri sér grein fyrir skyldum sem á þeim hvíla og nýti þau verkfæri sem til eru í bar­ áttunni gegn einelti. 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r22 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.