Fréttablaðið - 07.11.2015, Side 26

Fréttablaðið - 07.11.2015, Side 26
Fundarstjóri er Margrét Grímsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun NLFÍ. Frummaðurinn og nútíminn Haraldur Erlendsson geðlæknir og forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ. Þarmar með sjarma Rakel Fleckenstein Björnsdóttir þýðandi. Þarmaflóran – okkar eigin hönnun Birna G. Ásbjörnsdóttir MSc í næringarlæknisfræði og MSc-nemi í gagnreyndum heilbrigðisvísindum. Pallborðsumræður að loknum erindum Þarmar með sjarma! Hollt mataræði – betri melting – heilbrigðir þarmar Fræðslunefnd Náttúrulækningafélags Íslands efnir til málþings á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, þingsal 1 þriðjudaginn 10. nóvember 2015 kl. 20:00 • Eru þarmar með sjarma? • Er fæði frummannsins betra fyrir þarmana? • Eru þarmar matvandir? • Byrjar og endar heilsa okkar í þörmunum? • Eru tengsl milli þarma og ADHD? • Hefur sykurneysla áhrif á þarma? Allir velkomnir. Aðgangseyrir 2.000 kr. Frítt fyrir félagsmenn. Rakel F. Björnsdóttir Birna G. Ásbjörnsdóttir Haraldur ErlendssonMargrét Grímsdóttir Hvað ég eða einhver annar hugsar kemur engum við. Sumar hugsanir eru gæluhugsanir, aðrar íþyngjandi, þrálátar og enn aðrar sjálfvirkar í þeirri merkingu að við ákveðnar aðstæður eða áreiti þá skjótast þær fram og taka stjórnina. Hugs- anir, jákvæðar sem neikvæðar eru á ábyrgð þess einstaklings sem á þær og hann velur hvort hann ætlar að leyfa þeim að hafa einhver sérstök áhrif á líðan eða atferli sitt. Það er næstum því hægt að full- yrða að enginn fari í gegnum lífið án þess að upplifa einhvern tímann að einhver fari í taugarnar á sér. Það er ekki merki um að vera slæm mann- eskja að hugsa hugsanir eins og mér líkar ekki við þennan eða þessi er ekki mín týpa eða mér finnst þessi pirrandi. Það er hluti af tilverunni að vera stöðugt að máta sig við menn og málefni, vega, meta og flokka. Hins vegar, þegar kemur að hegðun og framkomu gagnvart öðru fólki gilda ákveðnar reglur. Þær vísa veginn um hvernig okkur ber að koma fram við aðra og að ákveðin framkoma og hegðun, þ.m.t. einelti, sé óásættanlegt og bannað. Þetta leiðir af sér að hugsun eins og „ÞÚ ferð í taugarnar á mér“ gefur eiganda hennar ekki eitt- hvert sérstakt leyfi til að koma illa fram við þessa tilteknu manneskju. Honum leyfist ekki að hreyta í hana ónotum, niður lægja hana eða sýna henni fyrirlitningu. Ef hann gerir það engu að síður ber okkur sem einstaklingum, atvinnurekendum, löggjafanum og samfélaginu að segja stopp, hingað og ekki lengra, EKKI MEIR, EKKI AFTUR. Skilvirkt viðbragðskerfi Ef kvörtun kemur frá einstaklingi sem upplifir að hafa orðið fyrir óásættanlegri framkomu eða ein- elti ber að grípa strax inn í með skilvirku viðbragðskerfi. Slíkt við- bragðskerfi felur í sér að skoða málið, ræða við aðila og skila niðurstöðu. Viðbragðskerfi er hluti af forvörnum sé það á annað borð sýnilegt. Í viðbragðskerfinu felst að kanna réttmæti kvörtunarinnar. Eigi kvörtunin við rök að styðjast þarf að finna leiðir til að lágmarka skaðann sem orðið hefur, vinna með aðila og tryggja að framkoman endurtaki sig ekki. Sá sem á hugsunina „ÞÚ ferð í taugarnar á mér“ og sýnir hana í framkomu á við vandamál að stríða. Hann hefur slaka tilfinningastjórn og leyfir neikvæðum tilfinningum að ráða för frekar en dómgreind og skynsemi. Gera má því skóna að innra með honum búi pirringur og minnimáttarkennd. Mesta gæfa þessarar manneskju væri að hafa innsæi í vanda sinn og vilja taka á honum. En jafnvel þótt innsæi skorti eða löngun til að láta af neikvæðri hegðun og framkomu geta allflestir engu að síður lært hvað má og ekki má. Í lærdómnum felst að meðtaka kröfuna um að láta af hinni nei- kvæðu hegðun gagnvart öðrum. Krafan er: Hvað sem þér þykir um þessa til- teknu manneskju ber þér að sýna henni almenna kurteisi eins og að bjóða góðan dag o.s.frv. Hættu að sýna henni andúð, fyrirlitningu, hroka, baktala hana eða hunsa. Hvað varðar börnin þá er ábyrgð okkar allra að brýna fyrir þeim að ekkert okkar er eins. Öll höfum við séreinkenni sem sýna á virðingu og umburðarlyndi. Segja þarf börnum að ekkert réttlæti að koma illa fram við aðra krakka, alveg sama hvað þeim finnst um þá. Við unglingana þarf einnig að árétta að skrifa aldrei neitt um aðra á netið sem þeir myndu ekki vilja að væri skrifað um þá. Fullorðnir eru fyrirmyndir barnanna. Sjái barn fyrirmynd sína koma illa fram við aðra manneskju telur barnið að hegðun af þessu tagi sé í lagi. Það er öllum hollt að spyrja af og til, er ég góð fyrirmynd barna minna og annarra sem ég umgengst þegar kemur að framkomu og hegð- un við annað fólk? ÞÚ ferð í taugarnar á mér! Fullorðnir eru fyrirmyndir barnanna. Sjái barn fyrirmynd sína koma illa fram við aðra manneskju telur barnið að hegðun af þessu tagi sé í lagi. Það er öllum hollt að spyrja af og til, er ég góð fyrirmynd barna minna og annarra sem ég umgengst þegar kemur að framkomu og hegðun við annað fólk? Eyþór Arnalds, RÚV-skýrsluhöf- undur, sendir undirritaðri kulda- kveðju í Fréttablaðinu fyrir helgi og sakar um ósæmilegar rangfærslur af ýmsu tagi. Eyþór telur sig vita betur en ég, sem þó sit í stjórn RÚV, hvenær stjórnin fékk skýrsluna. Upplýst skal að skýrslan kom til stjórnar í tölvupósti frá útvarpsstjóra 29. október, klukkan 13.39. Þrjátíu og níu mínútum eftir að hún var kynnt almenningi á blaðamannafundi í Þjóðminjasafninu. Mörgum dögum áður hafði birst umfjöllun um skýrsluna og tilvís- anir í hana og skýrslubrot á Eyj- unni. Og síðar hefur komið fram að almannatengill sá um dreifinguna. Í viðbót við ásakanir um rang- færslur, dylgjur og að fara í mann- inn en ekki boltann, telur Eyþór að ég ætti að nota tímann til að skoða vanda útvarpsins af yfirvegun og ræða efnisatriði skýrslunnar, sem menntamálaráðherra telji svo góðan umræðugrunn. Og vissulega verður fróðlegt að ræða efnisatriði skýrslunnar við ráðherrann sem pantaði hana. Eyþór hefði hins vegar mátt ræða við fleiri á meðan skýrslan var í vinnslu, en þar vant- aði talsvert upp á af hans hálfu. En nú hefur starfandi formaður RÚV, Guðlaugur Sverrisson, boðað fund með skýrsluhöfundum á mánudag. Fullseint er það og ekki að frum- kvæði skýrsluhöfunda, sem virðast ekki hafa gefið því gaum að yfir RÚV, var og er, þverpólitísk stjórn kjörin af Alþingi, þótt skýrslan gagnrýni stjórnir RÚV frá ohf-stofnun. Hefðu vandvirkir skýrsluhöfundar ekki átt frumkvæði að því að gefa bæði fyrrverandi og núverandi stjórn- endum RÚV færi á að útskýra sínar ákvarðanir, meðan skýrslan var í vinnslu? Í stað þess að birta hana í sam keppnis miðlum fyrst og rífast svo um hana við þá sem bornir eru sökum í fjölmiðlum á eftir. Því sýnist mér að málið liggi núna þannig að það sé Eyþór Laxdal Arn- alds sem skuldi afsökunarbeiðni. Og ekki mér sérstaklega, heldur öllum þeim sem vilja Ríkisútvarpinu vel og að áfram starfi fjölmiðill í þágu og í eigu almennings. Blákalt um birtingu RÚV-skýrslu Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur Upplýst skal að skýrslan kom til stjórnar í tölvupósti frá útvarpsstjóra 29. október, klukkan 13.39. Þrjátíu og níu mínútum eftir að hún var kynnt almenn- ingi á blaðamannafundi í Þjóðminjasafninu. Björg Eva Erlendsdóttir núverandi stjórnarmaður og fv. stjórnarformaður RÚV 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r26 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.