Fréttablaðið - 07.11.2015, Qupperneq 28
Sund „Þetta er alveg geðveikt,“ segir
Eygló Ósk Gústafsdóttir kampakát í
samtali við Fréttablaðið, en íslenska
sunddrottningin og Ólympíufarinn
var valin, ásamt Hrafnhildi Lúth-
ersdóttur, í úrvalslið Evrópu sem
mætir Bandaríkjunum í Einvíginu
í lauginni í byrjun desember.
„Ég frétti af þessu fyrir svona
mánuði en nafnalistinn var ekki
gefinn út fyrr en núna. Þarna verður
fullt af stjörnum. Ég hoppaði alveg
af kæti þegar ég frétti að við yrðum
með og ætlaði varla að trúa þessu.
Þetta er alveg frekar stórt mót,“
segir Eygló.
Einvígið í lauginni (e. Duel in the
Pool) er keppni sem fram fer annað
hvert ár og er eins konar Ryder-
bikar í sundinu þar sem bestu sund-
menn Bandaríkjanna og Evrópu
mætast. Fyrst var keppt árið 2003
en í fyrstu þrjú skiptin mættust
Bandaríkin og Ástralía.
Skærustu stjörnur heims
Bandaríkin og Evrópa hafa mæst
þrisvar sinnum og Bandaríkin haft
betur í öll skiptin. Fyrir tveimur
árum í Skotlandi þurfti þó bráða-
bana til að skilja á milli liðanna en
þar kom bandaríska sveitin í 4x50
metra fjórsundi á undan í mark á
nýju heimsmeti.
Það er ekki ofsögum sagt að
Eygló og Hrafnhildur verða þarna í
stjörnu fans. Það má alveg leiða að
því líkur að stöllurnar hafi kiknað
aðeins í hnjánum þegar þær sáu
listann yfir skipan liðanna.
Bara til að gefa lesendum smá
hugmynd um hversu stórt þetta
er þá eru með Hrafnhildi og Eygló
í liði ungverska járnfrúin Katinka
Hosszú sem er ósnertanleg í fjór-
sundi, Ranomi Kromowidjojo,
hollenskur Ólympíumeistari í 50
og 100 metra skriðsundi, og Dániel
Guyrta, Ungverji sem er heimsmet-
hafi í 200 metra bringusundi.
Í bandaríska liðinu eru bæði
Missy Franklin og Ryan Lochte.
Það á í raun ekkert að þurfa að segja
meira. Segjum samt aðeins meira.
Franklin er aðeins tvítug en er samt
fjórfaldur Ólympíumeistari og ell-
efufaldur gullverðlaunahafi á HM.
Lochte hefur lengi verið næstbesti
sundmaður Bandaríkjanna á eftir
Michael Phelps og á að baki fimm
Ólympíugull og 39 gull á HM.
Æfingar á landi að skila sér
„Þarna verður einfaldlega saman-
safn af besta sundfólki heims og
því öllu skellt saman í eitt mót.
Við Hrafnhildur verðum örugg-
lega í sjokki að vera í kringum
þessar stjörnur en það verður bara
gaman,“ segir Eygló.
Hún keppir um næstu helgi á
Íslandsmeistaramótinu í 25 metra
laug og svo á EM í 25 metra laug
áður en kemur að veislunni í Indi-
anapolis í Bandaríkjunum.
„Við erum bara að æfa fyrir
EM núna á fullu. Næsta ár er svo
Ólympíuár þannig að allir eru að
einbeita sér að því. Það verður
spennandi að sjá hvað gerist,“ segir
Eygló.
Þessi gríðarlega efnilega sund-
kona rakaði saman verðlaunum á
Íslandsmeistaramótinu í 50 metra
laug fyrr á árinu og komst svo í
úrslit á HM í Rúss-
landi í sumar líkt
og Hrafnhildur
s e m g e r ð i
það tvívegis.
Hverju þakk-
ar hún þennan
árangur?
„Ég hef ekki breytt miklu í
sundinu sjálfu en ég geri meira af
brakkaþreki og æfingum á landi
ef þannig má að orði
komast. Ég er í mun
meiri þrekæfingum
og lyftingum og það
hefur komið sterkt
inn,“ segir Eygló Ósk
Gústafsdóttir.
Nýjast
Synda á meðal stjarnanna
Eygló Ósk Gústafsdóttir og Hrafnhildur Lúthersdóttur voru báðar valdar í úrvalslið Evrópu sem mætir
Bandaríkjunum í Indianapolis. Þar keppa margar af skærustu sundstjörnum heims.
Gulldeildin fer fram um helgina
Eygló
Ósk Gúst-
afsdóttir er
tvítug
sundkona
úr Ægi sem
komst í fyrsta
sinn í úrslit á
HM í sumar.
Hrafnhildur Lúthers-
dóttir er 24 ára sundkona úr
SH sem keppir fyrir Florida
Gators-háskólann í Banda-
ríkjunum. Hún komst
tvívegis í úrslit á HM í
Rússlandi í sumar.
365.is Sími 1817
SUNNUDAG KL. 15:50
Bardaginn um Norður-London
Þá er komið að leiknum sem Lundúnabúar kalla „The North London
Derby“. Með sigri á Emirates geta Skytturnar tyllt sér á toppinn og
Spurs eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti.
Ekki missa af þessum stórveldaslag á Stöð 2 Sport 2!
ARSENAL–TOTTENHAM
domino´s deild karla í körfubolta
Haukar - FSu 104-88
Stigahæstir: Haukur Óskarsson 26, Steph-
en Madison 24, Hjálmar Stefánsson 15, Kári
Jónsson 12, Finnur Atli Magnússon 12/8
frák./7 stoðs. - Cristopher Caird 30.
Höttur - KR 50-85
Stigahæstir: Tobin Carberry 19 - Þórir
Þorbjarnarsson 18, Darri Hilmarsson
17, Michael Craion 15/18 frák., Ægir Þór
Steinarsson 13/7 frák./6 stoðs.
Þór Þorl. - ÍR 107-64
Stigahæstir: Vance Michael Hall 27, Davíð
Arnar Ágústsson 17/17 mín./5 af 7 í 3ja, Þor-
steinn Már Ragnarsson 15, Halldór Garðar
Hermannsson 11 - Oddur Rúnar Kristjáns-
son 19, Vilhjálmur Theodór Jónsson 15.
KR-ingar fóru illa með nýliðana í
Egilsstöðum og unnu sinn fjórða
leik í röð. Kanalausir ÍR-ingar og
nýliðar FSu og Hattar litu ekki vel
út þegar liðin seinlágu öll í gær.
Í dag
12.35 Bournem. - Newcast. Sport 2
14.50 Norwich - Swansea Sport 4
14.50 Man. Utd. -WBA Sport 2
14.50 West Ham - Everton Sport 3
16.55 Verona - Bologna Sport
17.00 Keflavík - Grindavík Sport 3
17.30 Stoke - Chelsea Sport 2
19.40 AC Milan - Atalanta Sport
13.30 HK - Valur Digranes
13.30 ÍR - Stjarnan Austurberg
14.00 Fram - KA/Þór Framhús
15.00 Fjölnir - Fylkir Dalhús
16.00 Selfoss - ÍBV Selfoss
16.00 Haukar - Grótta Ásvellir
17.15 Keflavík - Grindavík Keflavík
Á morgun
13.20 A.Villa-Man. City Sport 2
13.55 Roma - Lazio Sport
14.55 Barcelona - Villarreal Sport
16.00 Liverpool - C. Palace Sport 2
16.00 Arsenal - Tottenham Sport
19.25 Sevilla - Real Madrid Sport
19.40 Sampdoria - Fiorent. Sport 3
21.20 Colts - Broncos Sport
13.30 Afturelding - FH Varmá
domino’s-deild kvenna í körfubolta
Haukar - Hamar 84-49
Stigahæstar: Helena Sverrisdóttir 14/11
frák./5 stolnir, Sólrún Inga Gísladóttir 12,
Dýrfinna Arnardóttir 11, Þóra Kristín Jóns-
dóttir 9, Pálína Gunnlaugsdóttir 9 - Suriya
McGuire 14, Nína Jenný Kristjánsdóttir 9.
Snæfell - Valur 82-38
Stigahæstar: Haiden Denise Palmer 25,
Gunnhildur Gunnarsdóttir 14, Rebekka Rán
Karlsdóttir 13 - Karisma Chapman 15.
BIRGIR LEIFUR ByRjaR VEL
Birgir Leifur Hafþórsson er í 2.
sæti eftir fyrsta keppnisdaginn af
fjórum á öðru stigi úrtökumótsins
fyrir Evrópumótaröðina í golfi sem
fer fram á Las Colinas-vellinum
í alicante á Spáni. Birgir Leifur
lék á 66 höggum í gær eða fimm
höggum undir pari. Hann fékk
meðal annars fjóra fugla á síðustu
níu holunum. Birgir er tveimur
höggum á eftir efsta manni en gera
má ráð fyrir að 15 efstu kylfingarn-
ir komist áfram á lokaúrtökumót-
ið. Birgir Leifur er nú að
leika í sautjánda
sinn á úrtöku-
mótinu
frá árinu
1997 en
hann hefur
ellefu sinnum
komist inn á
lokaúrtöku-
mótið.
Mætir löndum sínum á morgun Guðmundur Guðmundsson, stýrir
danska landsliðinu á móti því íslenska á æfingamótinu í Ósló annað
kvöld. Í dag spilar Ísland við heimsmeistara Frakka en Danir mæta
Norðmönnum. NoRDiCPHoToS/GETTy
7 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 L A u G A r d A G u r28 S p o r t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SpoRt