Fréttablaðið - 07.11.2015, Side 45
|Fólkheilsa
Vaxtarræktarmaðurinn David Alexander heimsækir PHO Vietnamese Res
taurant reglulega enda þarf hann
íþróttaiðkunar sinnar vegna að
borða á tveggja klukkustunda
fresti. „Ég vel því að fara reglu
lega á PHO því ég veit að þar er
eldað úr fersku og góðu hráefni
auk þess sem mér finnst alltaf
eins og ég sé að borða heima
tilbúinn mat þegar ég borða þar.
Ég er mikill matmaður en vegna
stífrar þjálfunar, þar sem ég þarf
að huga sérstaklega vel að mat
aræðinu, get ég einfaldlega ekki
borðað hvað sem er. Því er svo
gott að heimsækja PHO Vietnam
ese restaurant því staðurinn
býður upp á marga fjölbreytta
rétti og er lítið mál að velja góða
og bragðmikla rétti í hvert sinn.“
Uppáhaldsréttir Davids eru
steikt hrísgrjón með kjúklingi
og rækjum og svo grillað nauta
kjöt með sítrónugrasi, vermi
celli, salati og hnetum. „Þetta
eru þó bara tveir af næstum 100
réttum því úrvalið er mjög mikið
hjá þeim. Ég get svo sannarlega
mælt með þessum veitingastað
fyrir alla. Ekki bara býður veit
ingastaðurinn upp á góðan mat
á sanngjörnu verði heldur líka
þægilegt umhverfi og vingjarn
legt starfsfólk.“
húsgagnasmiðurinn og einkaþjálfarinn Heimir Einarsson er einn fjölmargra fastagesta
PHO Vietnamese Restaurant. Starf
húsasmiðs tekur oft á auk þess sem
Heimir hefur stundað líkamsrækt í
24 ár og starfað sem einkaþjálfari.
„Fyrir vikið spái ég eðlilega mikið í
hollum mat og er stöðugt að leita
að einhverju nýju og fersku til að
borað. Ég kynntist PHO einmitt í leit
minni að veitingahúsi með ferskum,
einföldum og hollum mat en á sama
tíma var ég líka að leita að stað sem
bauð upp á hraða og örugga þjón
ustu því ég hef sjaldan mikinn tíma
til að bíða eftir matnum.“
Heimir segir matinn á PHO virki
lega góðan og bragðmikinn og auð
vitað skemmi ekki fyrir að hann er
hollur og léttur í maga. „Staðurinn
býður upp á mikið úrval frábærra
rétta og ómögulegt fyrir mig að
nefna einn uppáhaldsrétt. Réttirnir
innihalda mikið af grænmeti, kjúk
lingi, góðum grjónum og öðru léttu
fæði ættuðu frá Víetnam.“
PHO Vietnamese Restaurant er
að sögn Heimis staður fyrir alla
þá sem vilja hugsa um heilsuna og
vilja auk þess borða borða mat sem
gefur mikla næringu. „Í raun hentar
þessi staður fólki á öllum aldri og
sérstaklega auðvitað þeim sem eru
að huga að hreyfingu og heilsu.
Ég get svo sannarlega mælt með
þessum stað fyrir alla þá sem vilja
hollt og gott.“
hollusta og bragðgóður matur er það fyrsta sem kemur upp í huga margra
þegar víetnamskan mat ber á
góma. Fyrir nokkrum árum var
opnaður fyrsti víetnamski veit
ingastaðurinn í Reykjavík og nú
hafa sömu aðilar sett á fót nýjan
stað eftir að sá fyrri var seldur.
Veitingastaðurinn ber nafnið Pho
Vietnamese restaurant og segir
eigandi hans, Quang Le, stað
inn bjóða upp á úrval rétta frá
Víetnam. „Matreiðsla frá Víetnam
nýtur sífellt meiri vinsælda hér á
landi, bæði meðal Íslendinga en
ekki síður þeirra fjölmörgu ferða
manna sem heimsækja landið
árlega. Við bjóðum upp
á nær 100 rétti og
óhætt að segja
að allir geti
fundið
eitthvað
við sitt
hæfi hér
enda
erum
við með
marga
ánægða
fasta við
skiptavini sem
koma aftur og
aftur.“
Fjöldi rétta í boði
Meðal vinsælla rétta má nefna
hinar vinsælu núðlusúpur en
uppskriftirnar sem staðurinn
notar hafa verið í fjölskyldu
Quang Le í margar kynslóðir.
Sumarrúllurnar eru líka mjög
vinsælar en þær er hægt að fá í
miklu úrvali, t.d. með rækjum,
grilluðum kjúklingi eða svína
kjöti, steiktum laxi og steiktu
tófúi svo eitthvað sé nefnt. „Vor
rúllurnar eru líka sívinsælar en
þær er hægt að fá með rækjum
og svínakjöti, kjúklingi eða með
grænmeti.“
Ferskt og gott hráeFni
Núðluréttir staðarins eru einnig
mjög vinsælir að sögn Le. „Þar
bjóðum við upp á steiktar eggja
núðlur, steiktar hrísgrjónanúðlur
og steiktar brúnar hrísgrjóna
núðlur með fjölbreyttu innihaldi
á borð við kjúkling, rækjur og
grænmeti.“ Auk þess
býður Pho Viet
namese res
taurant upp
á fjölda
bragð
góðra
kjúklinga
rétta,
nauta og
lamba
kjötskjöts
rétta, svína
kjöt, sjávarrétti
og grænmetisrétti.
Fjölskylda Quang Le
hefur lengi starfað í matvæla
iðnaði og þar starfaði hann áður
en hann flutti til Íslands fyrir
rúmum tíu árum. „Faðir minn
starfar hér í eldhúsinu en auk
hans eru þar lærðir matreiðslu
menn frá Víetnam. Við notum ein
ungis ferskt og gott hráefni enda
er maturinn hér afskaplega hollur
eins og einkennir víetnamsk an
mat og raunar flestan mat ætt
aðan frá Asíu.“
Vinsæl Verslun
Við hlið Pho Vietnamese res
taurant stendur verslunin
Vietnam market sem notið hefur
mikilla vinsælda meðal lands
manna undanfarin ár. „Matur frá
Asíu nýtur sífellt meiri vinsælda
hér á landi meðal allra aldurs
hópa. Íslendingum finnst gaman
að versla hér og prófa sig áfram
með framandi krydd, grænmeti
og sósur. Fyrir utan hráefni frá
Víetnam selur verslunin t.d. úr
val af indversku kryddi, ferskar
kryddjurtir og grænmeti, úrval
af ilmandi og sterkum sósum,
núðlur, hráefni til sushigerðar
og frosið sjávarfang.“
Auk Pho Vietnamese res
taurant og Vietnam market á Le
hreingerningarþjónustuna Vy
þrif sem sér um stórhreingern
ingar, flutningsþrif og regluleg
þrif fyrir fyrirtæki, húsfélög,
félagasamtök og auðvitað þrif í
heimahúsum af öllum stærðum
og gerðum.
Nánari upplýsingar má finna á
www.pho.is, www.vy.is og á Face
book undir Vietnam Market.
gómsætir og hollir réttir
Pho Vietnamese restaurant kYnnir Víetnamskur matur er bæði hollur og góður enda nýtur hann sívaxandi vinsælda hér á
landi. Veitingastaðurinn Pho Vietnamese restaurant var opnaður fyrir ári að Suðurlandsbraut 8 og er vinsæll meðal heimamanna
og ferðalanga. Við hlið hans stendur Vietnam market sem selur fjölbreytt hráefni til austurlenskrar matargerðar.
Fagmenn á Ferð Matreiðslumennirnir á PHO Vietnamese restaurant elda aðeins úr fersku og góðu hráefni. Quang le, eigandi, er
lengst til hægri. MYND/STEFÁN
gott ÚrVal „Staðurinn býður upp á
mikið úrval frábærra rétta og ómögulegt
fyrir mig að nefna einn uppáhaldsrétt,”
segir einkaþjálfarinn Heimir Einarsson.
bragðgott „Staðurinn býður upp á
marga fjölbreytta rétti og er lítið mál að
velja góða og bragðmikla rétti í hvert sinn,”
segir vaxtarræktarmaðurinn David Alex-
ander. MYNDir/STEFÁN
lífsstíll nútímamannsins hefur breyst gríðarlega mikið á stuttum tíma. Ekki er langt
síðan flestir á Íslandi störfuðu sem
bændur og við sjávarútveg. Fólk
vann erfiðisvinnu og var á fótum
stóran hluta dags. Maturinn sem
var á borðum á þessum tíma var
síðan afurðin frá ofangreindum
störfum.
Í dag er þetta breytt að sögn
Víðis Þórs Þrastarsonar, íþrótta og
heilsufræðings, enda starfa æ fleiri
við skrifborð, í sitjandi stöðu allan
daginn, starandi á tölvuskjá. „Það
er gríðarlegt framboð af unnum og
næringarsnauðum mat og því allt
of margir sem eru við slæma heilsu
sökum þess. Því er mjög mikilvægt
að allir stundi daglega hreyfingu
sem hluta af lífsstíl og leggi aðeins
fjölbreyttan, óunninn og heilsu
samlegan mat sér til munns.“
Víetnamski veitingastaðurinn
PHO á Suðurlandsbraut er því í
algeru uppáhaldi hjá Víði. „Í fyrsta
lagi er þar að finna virkilega hollan
og bragðgóðan mat. Matseðillinn
er mjög fjölbreyttur svo allir ættu
að finna eitthvað sér við hæfi. Ég
hef prófað ansi marga rétti af mat
seðlinum og þeir eiga það allir
sameiginlegt að vera bragðgóðir,
orku og næringarríkir en á sama
tíma léttir í maga.“
Ekki skemmir fyrir að maturinn
er ferskur og inniheldur engin
skaðleg aukaefni á borð við MSG.
„Aðeins eru notuð heilsusamleg
krydd og maturinn er ekki braser
aður eða löðraður í olíu, né er hann
of sterkur eða of sætur. Mér finnst
alveg tilvalið að fara þangað fyrir
eða eftir æfingu eða í raun bara
hvenær sem er, en ég starfa í World
Class Laugum svo það er ekki langt
að fara. Staðurinn býður líka upp á
hádegisrétti frá 1.090 kr. alla virka
daga sem er líka mjög gott fyrir
budduna. Ef ég vill svo spreyta mig
heima á víetnamskri matargerð lít
ég við í Vietnam market við hliðina
þar sem hægt er að finna gott úrval
af fjölbreyttum og heilsusamlegum
matvælum.“
Matur við allra hæfi
Maturinn á PHO er hollur og bragðgóður og hæfir ekki
síst íþróttafólki og öðrum sem hugsa um heilsuna. Í há-
deginu er boðið upp á hádegisrétti á 1.090 kr.
Frábær matur „Matseðilinn er mjög
fjölbreyttur og ættu allir að finna eitthvað
sér við hæfi,” segir Víðir Þór Þrastarson
íþrótta- og heilsusérfræðingur. MYND/STEFÁN
gott fyrir íþróttafólkið
fjölbreyttir réttir í boði