Fréttablaðið - 07.11.2015, Qupperneq 48
Fólk| helgin
P Karlsson ehf. hefur um langt skeið rekið ferða-vagnasölu en á árinu 2013 gekk fyrirtækið til samstarfs við stærstu húsbílaleigu Evrópu,
þýska fyrirtækið McRent, sem rekur 60 leigustöðvar
í álfunni en P. Karlsson á McRent Iceland ehf., ásamt
McRent í Þýskalandi.
„Í þessi þrjú ár hefur P. Karlsson sérhæft sig í
leigu og sölu á húsbílum og telur bílaleigufloti okkar
nú 72 húsbíla en þeim verður fjölgað nokkuð fyrir
komandi ár. Við áætlum að bílafloti í útleigu muni
samanstanda af alls 85 bifreiðum sumarið 2016 en
við munum flytja inn yfir 40 nýja húsbíla fyrir næsta
sumar,“ segir Geir Bachmann sem er annar eigenda
P. Karlsson ásamt Þrúðmari Karlssyni. Þeir benda á
að allt árið um kring sé einnig fjöldi bifreiða til sölu
og sýnis en markmið fyrirtækisins sé að geta boðið
viðskiptavinum sínum nýlega húsbíla til sölu, á mjög
góðu verði.
Mikið lagt uPP úr þjónustu
Þeir Þrúðmar og Geir segja að sambland af húsbíla-
leigu og -sölu hafi gengið afskaplega vel. „Leigustöð
McRent Iceland er þegar orðin með stærri leigum
McRent-keðjunnar og sala húsbíla hefur tekið veru-
lega við sér á árinu. Mikið er lagt upp úr góðri
þjónustu og góðri vöru á báðum vígstöðvum. Gott
viðhald á bílaflotanum er algert lykilatriði,“ segir
Þrúðmar en P. Karlsson hefur umboð fyrir húsbíla
frá hinum þekktu þýsku merkjum Dethleffs og Sun-
light.
„Við viðhöldum og þjónustum stóran flota af bílum
sem eru í útleigu og að sjálfsögðu veitum við öllum
þeim sem hafa keypt af okkur húsbíla fulla þjón-
ustu er viðkemur húsinu sjálfu enda höldum við úti
stórum varahlutalager og eigum yfirleitt til þá vara-
hluti sem vantar ef eitthvað kemur upp á,“ segir Geir.
salan tekur kiPP
Húsbílaleiga er í blóma enda hefur ferðamanna-
straumurinn til landsins stóraukist vegna sívax-
andi áhuga á Íslandi. „Salan á tækjunum sjálfum
hefur einnig tekið verulegan kipp á árinu og því
ljóst að það eru ekki bara erlendir ferðamenn
sem hafa áhuga á því að skoða þetta fallega land
okkar og upplifa frelsið og þægindin sem fylgir
því að ferðast um í húsbíl á Íslandi,“ bætir Þrúð-
mar við.
Þeir segja að vissulega hafi það verið gríðarleg
vinna að koma á fót fyrirtæki sem standi stærstu
og bestu húsbílaleigum í Evrópu fyllilega á
sporði en sérhæfingin hjálpi þar mikið til og ekki
síst gott starfsfólk. „Það að sérhæfa sig í ákveð-
inni vöru, sem í okkar tilfelli eru húsbílar, hefur
tvímælalaust þá kosti að við þekkjum það sem við
bjóðum upp á mjög vel. Við búum að mjög langri
reynslu í bæði leigu og sölu á þessum tækjum og
vitum því nákvæmlega hvað þarf til þess að ná
árangri. Einnig höfum við verið afskaplega lán-
samir með starfsfólk. Það er góður skilningur á
því innanhúss að sú manneskja sem skiptir mestu
máli er viðskiptavinurinn enda leggjum við allan
okkar metnað í að þjónusta alla okkar kúnna eins
og best verður á kosið,“ segir Geir.
Aðspurðir segja þeir Þrúðmar og Geir að þrátt
fyrir að mesta salan sé í notuðum tækjum þá sé
það lítið mál að flytja inn nýjan bíl fyrir þá sem
það vilja. „Hins vegar er engin launung á því að
verðin sem við getum boðið á húsbílum út úr
leigunni eru mjög góð og skýrist það að stærstu
leyti af því að McRent-keðjan kaupir hátt í þrjú
þúsund bíla árlega og fær fyrir vikið betra verð
sem við svo látum okkar viðskiptavini njóta góðs
af.“
Frí vetrargeyMsla
Sýningin um helgina verður nokkuð stór í sniðum og
margir bílar til sýnis. „Við erum í 1.100 m2 aðstöðu
sem við höfum útbúið nokkuð vel á stuttum tíma
undir alla okkar starfsemi og við hlökkum til að fá til
okkar fólk í heimsókn til að skoða tækin. Öllum seld-
um bílum um helgina fylgir frí vetrargeymsla þannig
að fólk getur tryggt sér sinn bíl og sótt hann svo eftir
að lóan er komin og vor er í lofti,“ segja þeir og benda
á að það hafi færst mikið í vöxt að fólk fjárfesti í hús-
bílum utan þessa hefðbundna sölutíma yfir sumarið
enda úrvalið af leigutækjum mun meira á haustin.
„Hins vegar munum við hafa til sýnis hjá okkur allt
árið gott úrval af tækjum sem eru ekki í leigunni.“
Á sýningunni um helgina verða húsbílar úr leigunni
til sölu, opið er laugardaginn 7. nóvember frá kl. 10-
16 og sunnudaginn 8. nóvember frá kl. 11-16. „En við
erum náttúrulega ekki að skella í lás eftir
helgina, hérna er opið alla virka
daga og fólk er alltaf velkom-
ið í heimsókn,“ segja
þeir Þrúðmar og Geir
að lokum.
húsbílasýning P. karlsson
haldin uM helgina
P. karlsson kynnir P. Karlsson heldur sýningu á húsbílum í glæsilegri aðstöðu sinni að Smiðjuvöllum 5a í Reykjanesbæ um helgina.
Nú er góður tími til að fjárfesta í húsbílum enda úrvalið gott af leigutækjum. Öllum seldum bílum um helgina fylgir frí vetrargeymsla.
Frábær FerðaMáti Húsbílar eru frábærir fyrir hið íslenska sumar þar sem von er á öllum veðrum. Mikill kostur er að geta stokkið af stað í átt til sólar án
mikils undirbúnings.
MagiC edition Innanrýmið er stórglæsilegt.
nóg Pláss Ekki ætti að væsa um þá sem fara í frí á húsbíl frá P. karlssyni.
P.Karlsson/Mcrent.
sMiðjuvellir 5 a, 230 reyKjanesbær.
síMar: 578 6070/517 5200.
www.PKarlsson.is