Fréttablaðið - 07.11.2015, Side 55
Strætó bs. leitar að kraftmiklum og reyndum stjórnanda til að stýra rekstrarsviði félagsins. Undir sviðið
teljast akstursdeild, birgða- og innkaupadeild, verkstæði og þvottastöð. Sviðsstjóri rekstrarsviðs heyrir
beint undir framkvæmdastjóra og á sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Starfið hentar sókndjörfum
einstaklingi sem hefur getu til að innleiða breytingar, áhuga á því að byggja upp öfluga liðsheild og að
taka þátt í því að leiða Strætó bs. inn í nýja tíma.
Upplýsingar veita:
Elísabet Sverrisdóttir
elisabet@hagvangur.is
Kristín Guðmundsdóttir
kristin@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 23. nóvember nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Með umsókn skal fylgja ítarleg
ferilskrá og greinargott kynningarbréf
sem færir rök fyrir hæfni umsækjanda.
Karlar jafnt sem konur er hvattir til
þess að sækja um starfið.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Starfssvið:
• Ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi rekstrarsviðs
• Stefnumótun og áætlanagerð (fjárhags- og rekstraráætlanir)
• Innleiðing stefnu, markmiða og ferla
• Vörustjórnun (innkaup og birgðahald)
• Útboðs- og samningagerð
• Rekstur gæðakerfa
• Samskipti við innlenda og erlenda birgja og samstarfsaðila
• Stjórnun mannauðs
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Framhaldsmenntun á sviði rekstrar- og stjórnunar kostur en ekki skilyrði
• Farsæl stjórnunar- og rekstrarreynsla úr efstu þrepum fyrirtækja eða stofnana
• Þekking og reynsla af stefnumótun og áætlanagerð
• Reynsla af umbótastarfi, teymisvinnu og breytingastjórnun
• Þekking og reynsla af vörustjórnun
• Þekking á gæðstjórnun og rekstri gæðakerfa
• Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
• Hæfni í ræðu og riti, á íslensku og ensku
• Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Sviðsstjóri rekstrarsviðs
Strætó bs. er öflugt þjónustufyrirtæki á sviði almenningssamgangna þar sem starfa um 300 manns sem saman
mynda sterka liðsheild. Strætó bs. er byggðasamlag, í eigu sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sem hefur
það meginmarkmið að veita viðskiptavinum góða þjónustu með öflugu og víðtæku leiðarkerfi og gefa þeim kost á
að komast leiðar sinnar á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
Rekstrarsvið Strætó bs. er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt ISO 14001 og öryggisstjórnunarkerfi
samkvæmt OHSAS 18001.
Stjórn Rauða krossins á Íslandi óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Leitað er að öflugum
einstaklingi til krefjandi stjórnunar- og leiðtogastarfa þar sem reynir á samskiptahæfni,
frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
Upplýsingar veitir:
Katrín S. Óladóttir
katrin@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 17. nóvember nk.
Umsóknir ásamt ferilskrá og
fylgigögnum óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Farið verður með allar fyrirspurnir
og umsóknir sem trúnaðarmál.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Starfssvið:
• Stjórnar daglegum rekstri Rauða krossins á Íslandi
• Fylgir eftir stefnu félagsins, ákvörðunum stjórnar og samþykktum aðalfundar
• Ber ábyrgð á starfsemi Rauða krossins á Íslandi gagnvart stjórn
• Stýrir og ber ábyrgð á rekstri landsskrifstofu og annarri starfsemi sem heyrir
undir skrifstofuna
• Stuðlar að góðum tengslum við deildir félagsins um allt land, styður og
samhæfir starf þeirra
• Stjórnar og ber ábyrgð á starfsemi félagsins á erlendum vettvangi
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun/framhaldsmenntun
• Reynsla af stjórnunarstörfum
• Reynsla af erlendri samvinnu
• Rík leiðtoga- og samskiptahæfni
• Miklir frumkvæðis- og skipulagshæfileikar
• Góð tungumálakunnátta er skilyrði, a.m.k.
enska og eitt Norðurlandamál
Framkvæmdastjóri
Rauði krossinn á Íslandi er félag sjálfboðaliða sem stendur vörð um mannréttindi og virðingu einstaklinga og vinnur að verkefnum sem snúa
að félagslegu öryggi og neyðarvörnum vegna áfalla og hamfara. Meginhlutverk Rauða krossins á Íslandi er að bregðast við hvers konar neyð
hvort heldur er af náttúru- eða mannavöldum, standa vörð um og aðstoða þá sem verst eru staddir í samfélaginu og veita aðstoð er gerir fólk
hæfara til að takast á við erfiðleika og bregðast við áföllum. Félagar í Rauða krossinum á Íslandi eru yfir 20 þúsund og skráðir sjálfboðaliðar
2.900 sem starfa í 42 deildum um land allt. Sérstaða Rauða krossins felst meðal annars í því að félagið starfar á breiðu sviði mannúðar- og
hjálparstarfs í samræmi við grundvallarhugsjónir Alþjóðahreyfingar Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Hreyfingin er elsta og umfangsmesta
mannúðarstofnun í heimi með um 97 milljónir félagsmanna og sjálfboðaliða í 188 löndum.
Upplýsingar veitir:
Rannveig J. Haraldsdóttir
rannveig@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 15. nóvember.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Starfssvið:
• Stýrir umbótaverkefnum með hugmyndafræði
Lean að leiðarljósi
• Tekur þátt í að viðhalda og efla gæðakerfi fyrirtækisins
• Er öflugur liðsmaður gæðateymisins og
stjórnendahópsins
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla og hæfni í verkefnastjórnun, umbótavinnu
og innleiðingu umbóta
• Þekking á Lean Management/straumlínustjórnun
• Þekking á gæðastöðlum matvælavinnslu kostur
Nói Síríus óskar eftir að ráða verkefnastjóra umbóta
Nói Síríus er öflugt fyrirtæki á matvælamarkaði, þekkt fyrir framleiðslu sína á sælgæti en flytur
einnig inn matvöru af ýmsu tagi. Nói Síríus vinnur markvisst að því að ná framúrskarandi árangri
með stöðugum umbótum og öflugri stjórnun í anda Lean Management/straumlínustjórnunar.
Leitað er að öflugum aðila til að sinna verkefnastjórnun og ýmsum umbótaverkefnum á gæðasviði fyrirtækisins.