Fréttablaðið - 07.11.2015, Síða 104

Fréttablaðið - 07.11.2015, Síða 104
Bragi Halldórsson 173 „Þetta finnst mér gaman, eldspýtnaþraut!“ sagði Lísaloppa og ljómaði öll. Ekki var Kata jafn ánægð. „Þú og þínar eldspýtnaþrautir,“ sagði hún önug. „Þér finnst þær bara skemmtilegar af því að þú ert betri í þeim en við,“ bætti hún við. „Sko,“ sagði Lísaloppa. „Hérna eru þrír jafn stórir ferhyrningar, getur þú fært til aðeins tvær eldspýtur svo úr verði klukkan 30 mínútur yfir fjögur?“ Róbert horfði vantrúaður á eldspýtnaþrautina. „Það er ekkert hægt að leysa þessa þraut,“ sagði hann fúll. „Svona nú,“ sagði Lísaloppa. „Þið getið nú reynt að leysa þessa þraut.“ „Nei,“ sagði Kata önug. „Ég neita að leysa fleiri eldspýtnaþrautir.“ „Þér gekk nú ekkert svo illa með þá síðustu var það nokkuð?“ sagði Lísaloppa. Kata hugsaði sig um smá stund. „Allt í lagi,“ sagði hún stundarhátt og það mátti heyra að keppnisskapið var komið í hana. „Upp með ermarnar, við leysum þetta.“ Getur þú leyst þessa eldspýtnaþraut? Það má aðeins færa tvær eldspýtur til að mynda klukkuna 30 mínútur yfir fjögur. Ekki má brjóta né beygja neina eldspýtu. Svar: Takið efstu eldspýtuna á fyrsta kassanum og færið hana fyrir neðan hægri eldspýtuna, þá eru þið komin með töluna fjóra. Færið svo eldspýtuna sem er vinstra megin í miðkassanum og setjið hana þvert inn í kassann, þá eru þið komin með töluna þrjá. Gátur ALLAR HELGAR 365.is Sími 1817 Afinn sem allir elska og fjörugu vinkonurnar Skoppa og Skrítla skemmta börnum og foreldrum á laugardags- og sunnudagsmorgnum á Stöð 2. HELGARFJÖR FYRIR FLOTTASTA FÓLKIÐ Hvað ertu gömul, Brynhildur Fía, og í hvaða skóla ertu? Ég er átta ára og er í Hlíðaskóla. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að leika við vinkonur mínar í alls konar leikjum og best er ef það eru dýraleikir. Mér finnst gaman að teikna, í heim­ ilisfræði og svo er ég að æfa dans. En allra skemmtilegast var að fara á reiðnámskeið í sumar. Fórstu í eitthvert ferðalag? Já, ég fór með mömmu, pabba og litlu systur sem heitir Þórey í sumarbústað í Aðaldal. Við skoðuðum Dimmuborgir, Náma­ skarð, Víti, Ásbyrgi og fleira. En skemmtilegast var að hitta vini mína á Húsavík og leika með þeim. Hvaða tónlist finnst þér best? Mér finnst Ariana Grande frábær söngkona. Næst á eftir er Katy Perry. En tölvuleikur? Allir stelputölvu­ leikir sem eru inni á girl games. com eru í uppáhaldi því þar getur maður til dæmis bakað og líka snyrt og málað persónurnar. Lest þú bækur þér til skemmt- unar? Ég las Huldu Völu dýravin í sumar og núna er ég að lesa Fíusól, þær eru báðar fínar. Bækurnar um Skyggni einhyrn­ ing sem mamma og pabbi lásu fyrir mig þegar ég var yngri eru líka alltaf uppáhalds og þegar ég var lítil dýrkaði ég líka bæk­ urnar um litla skrímslið og stóra skrímslið,  við lásum þær svo mikið að ein datt alveg í sundur og mamma þurfti að kaupa nýja. Núna les ég þær stundum fyrir litlu systur mína á kvöldin. Ég var því spennt að koma á sýninguna í Gerðubergi og ganga inn í heim skrímslanna, kíkja inn til stóra skrímslisins og heim­ sækja litla, fara um skrímsla­ skóginn og inn í MJÖG drauga­ legt hús. Maður getur lært margt af skrímslunum og svo eru þau líka skemmtileg og fyndin. Gaman  að ganga inn í heim  skrímslanna Brynhildur Fía Jónsdóttir var á sýningunni Skrímslin bjóða heim í Gerðubergi og fór þar í mjög draugalegt hús. Brynhildur Fía, Vala Ruther, Óðinn Breki Árnason og Þórey Hrund Jónsdóttir una sér vel í heimsókn hjá litla skrímslinu og stóra skrímslinu í Gerðubergi. FRéttaBlaðið/GVa Sú kona sem fann upp orðið geislavirkni hét Marie Sklo­ dowska Curie. Það var þó ekki þess vegna sem hún fékk Nóbels­ verðlaun fyrst kvenna en það var í eðlisfræði árið 1903 og hún hlaut þau ásamt manni sínum, Pierre Curie. Þau höfðu upp­ götvað að frumefnið radín gæti komið að gagni við að vinna á æxlum. Árið 1911 fékk Marie aftur Nóbelsverðlaun, nú í efna­ fræði er henni hafði tekist að ein­ angra hreint sýnishorn radíns. Marie fæddist í Varsjá árið 1867. Þá laut Pólland stjórn Rússa og konum var ekki leyft að afla sér æðri menntunar. Hún hjálpaði systur sinni að komast til Parísar í læknisnám og flutti þangað síðan sjálf til að leggja stund á stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði. Þar giftist hún starfsbróður sínum, Pierre Curie, en hann varð undir hestvagni og lést á besta aldri. Marie þáði prófessorsstöðu hans við Parísar­ háskóla og var fyrst kvenna til að gegna því embætti. Heimild: Vísindabókin – Mál og menning 2015. Fyrsta konan í heiminum sem fékk Nóbelinn Marie Curie við rannsóknarstörf sín í vinnuskúrnum sem hún hafði til afnota. 1. Hverju getur þú kastað upp í loftið án þess að það komi niður? 2. Hvað er það sem sólin getur ekki skinið á? 3. Ég hreyfi mig þeim mun meira sem fleiri gestir koma. Hver er ég? 4. Hver er það sem sér sólina, en aldrei sumarið? 5. Manneskja kom til okkar og var þar um kyrrt. Hún kom hvorki inn um dyrnar, né í gegnum glugga. Hver er það? Svör: 1. Lifandi fuglum. 2. Skugginn 3. Hurðin 4. Ísinn 5. Lítið systkini sem fæddist heima. 7 . n ó v e M b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r60 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.